Morgunblaðið - 03.12.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2019
HÁDEGIS-
TILBOÐ
Mánudaga-föstudaga
kl. 11.00-14.30
Borðapantanir í síma 562 3232
Verð frá 990
til 1.990 kr.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóraSigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is FréttirGuðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfssonmenning@mbl.is
ViðskiptiStefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
Arnar Þór Ingólfsson
Þórunn Kristjánsdóttir
Erla María Markúsdóttir
Kennsla verður samkvæmt stunda-
skrá í Grunnskóla Seltjarnarness í
dag, samkvæmt tilkynningu skólans
til foreldra í gær. Kennarar í Val-
húsaskóla felldu niður kennslu í 7.-10.
bekk í gær vegna óánægju með fram-
göngu bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, sem mynda meirihluta, og
fulltrúa Viðreisnar/Neslistans á bæj-
arstjórnarfundi í síðustu viku.
Stjórn foreldrafélags skólans hélt
fund í gærkvöld vegna málsins.
Kristinn Ingvarsson varaformaður
sagði að félagið ætlaði að senda for-
eldrum nemenda póst til að upplýsa
um atburðarásina og aðdraganda
hennar. Foreldrafélagið hefði ekki
fengið útskýringar frá skólastjórn-
endum en verið í sambandi við
fræðslustjóra bæjarins.
„Við hörmum það að skólahald hafi
ekki verið með eðlilegum hætti í dag.
Okkur finnst nemendur skólans vera
fórnarlömb í þessari togstreitu.
Okkur finnst að þeir sem koma að
þessu hafi ekki verið til fyrirmyndar
og okkur finnst það skipta máli að við
séum góðar fyrirmyndir fyrir börnin
okkar,“ sagði Kristinn og kvaðst þar
eiga jafnt við skólastjórnendur,
kennara og bæjarfulltrúa sem koma
að málinu.
Fundargerð skólanefndar var m.a.
á dagskrá fyrrnefnds bæjarstjórnar-
fundar. Meirihlutinn gerði langa bók-
un við hana og harmaði ágreining
sem kom upp um námsmat í skólan-
um og lokamat 10. bekkjar sl. vor.
Einnig bað meirihlutinn „nemendur
og foreldra afsökunar á því tilfinn-
ingalega tjóni og óþægindum sem
það kann að hafa valdið, og afleið-
ingum sem þetta hafði í för með sér“.
Bæjarfulltrúi Viðreisnar/Neslista
gerði einnig bókun og harmaði þá
stöðu sem útskriftarnemendur voru
settir í við lok síðasta skólaárs.
Gagnrýni bæjarfulltrúanna á fyrr-
nefnt námsmat olli mikilli óánægju.
Töldu kennarar og stjórnendur að
með gagnrýninni hefði verið vegið að
heilindum þeirra, fagmennsku og
starfsheiðri. Foreldrar og stjórnend-
ur í Grunnskóla Seltjarnarness
sendu foreldrum barna í Valhúsa-
skóla póst í gær og kváðust „harma
þann dóm sem pólitískir fulltrúar hafi
fellt yfir skólanum. Þessi umfjöllun
hefur haft þau áhrif inn í skólann að
kennurum og stjórnendum finnst
freklega að sér vegið og kennarar
treysta sér ekki til að taka á móti
nemendum í dag“. Til stóð að fella
niður kennslu frá kl. 8 til 10.15 í gær
en eftir fund var ákveðið að fella nið-
ur kennslu allan daginn.
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjórn sendi frá sér yfirlýsingu
í gær og lýsti yfir „fullu trausti við
skólastjórnendur og kennara við
Grunnskóla Seltjarnarness og um
leið ánægju með gott starf í skólan-
um til fjölda ára“. Þá sagði meirihlut-
inn að fundað yrði um málið með
kennurum skólans.
Ólga vegna orða bæjarfulltrúa
Kennt verður samkvæmt stundaskrá í Valhúsaskóla í dag Kennsla féll niður í 7.-10. bekk í gær
Óánægja með orð bæjarfulltrúa um námsmat í skólanum Stjórn foreldrafélagsins kölluð saman
Morgunblaðið/Eggert
Valhúsaskóli Kennarar og stjórnendur voru ekki sáttir við gagnrýni á námsmat í Grunnskóla Seltjarnarness.
Guðni Einarsson
Jóhann Ólafsson
Umsóknarfrestur um starf útvarps-
stjóra var framlengdur í gær um
eina viku, eða til 9. desember.
Fresturinn átti að renna út í gær.
Kári Jónasson, stjórnarformaður
Ríkisútvarpsins
(RÚV), sagði að
þegar rætt hefði
verið við Capa-
cent, sem annast
ráðningarferlið,
hefði verið talað
um að hafa um-
sóknarfrestinn
þrjár vikur. Síðar
hefði verið sagt
að tvær vikur
væru nógu langur umsóknarfrestur
og stjórn RÚV fallist á það. Staðan
var auglýst 15. nóvember.
„Einhverjir hugsanlegir umsækj-
endur höfðu síðan samband við
Capacent og þá var fallist á að hafa
umsóknarfrestinn í þrjár vikur. Mér
skilst að þrjár vikur séu venjulegur
umsóknarfrestur,“ sagði Kári.
Hann sagði að stjórn RÚV bíði
eftir niðurstöðu úrskurðarnefndar
um upplýsingamál um hvort stjórn-
inni væri skylt að birta nöfn um-
sækjenda um starfið eða ekki.
Vísir.is sendi stjórn RÚV fyrir-
spurn með ósk um að nöfn
umsækjenda yrðu birt með vísan í
upplýsingalög og lög um Ríkis-
útvarpið ohf.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, greindi
frá því á Alþingi í gær að hún hefði
skrifað stjórn RÚV 28. nóvember
og óskað skýringa á því hvers vegna
ekki ætti að birta nöfn umsækjenda
um stöðu útvarpsstjóra og hvers
vegna ekki ríkti fullt gagnsæi um
það. Þetta kom fram í svari hennar
við fyrirspurn Þorsteins Sæmunds-
sonar, þingmanns Miðflokksins.
Hann spurði m.a. hvers vegna það
væri ekki gefið út hverjir sæktust
eftir stöðu útvarpsstjóra.
Lilja sagði að það þyrfti að vera á
hreinu hvort RÚV væri heimilt að
birta ekki nöfn umsækjenda. Kári
sagði að stjórn RÚV ætti eftir að
fjalla um bréf ráðherrans. »8
Umsóknarfresturinn
framlengdur um viku
Bíða eftir niðurstöðu úrskurðarnefndar um upplýsingamál
Morgunblaðið/Eggert
Ríkisútvarpið Starf útvarpsstjóra er laust til umsóknar til 9. desember.
Kári Jónasson
Þingsályktunartillaga um óháða út-
tekt á Landeyjahöfn var samþykkt í
gær með 55 atkvæðum.
Í henni felst að Alþingi feli sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra
að láta nú þegar hefja óháða úttekt
á Landeyjahöfn. Henni á að vera
lokið 31. ágúst 2020. Flutnings-
menn voru níu þingmenn Suður-
kjördæmis úr öllum flokkum.
Í greinargerð eru spurningar
sem óskað er svara við. Þ. á m.
hvort hægt sé að gera úrbætur svo
dýpkunarþörfin minnki verulega
eða hverfi. Þyki slíkar úrbætur
ekki gerlegar, hvaða dýpkunar-
aðferð þyrfti þá til að halda höfn-
inni opinni allan ársins hring.
Óháð úttekt
Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta- og
menningarmála-
ráðherra, mun
mæla fyrir frum-
varpi um stuðning
til einkarekinna
fjölmiðla á Al-
þingi á næstu
dögum. Síðan
mun allsherjar-
og menntamálanefnd fjalla um frum-
varpið.
„Málið er nú komið til þingsins og
er ég ánægð með það. Mikilvægt er
að styrkja umgjörð fjölmiðla á
Íslandi. Frumvarpið er liður í því,“
sagði Lilja í skriflegu svari til
Morgunblaðsins í gærkvöld.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
afgreiddi frumvarpið í gær með
nokkrum fyrirvörum og snúa þeir
m.a. að þátttöku RÚV á auglýsinga-
markaði og útfærslu á þeim styrkj-
um sem finna má í frumvarpinu.
gudni@mbl.is, johann@mbl.is
Fjölmiðlafrumvarp
væntanlegt fljótlega
Lilja
Alfreðsdóttir