Morgunblaðið - 03.12.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2019
ÖRYGGI ÖLLUM STUNDUM
ÖRYGGISHNAPPUR
SECURITAS
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is
SAMSTARFSAÐILI
ÖRYGGISHNAPPUR SECURITAS
09:41 100%
Látinn er í Hafnarfirði
Ágúst G. Sigurðsson, vél-
stjóri, skipatæknifræð-
ingur, kennari og út-
gerðarmaður, 88 ára að
aldri. Ágúst fæddist í
Hafnarfirði 15. septem-
ber 1931. Foreldrar hans
voru Sigurður Eiríksson
vélstjóri, f. 1903, d. 1977,
og Jenný Ágústsdóttir
húsmóðir, f. 1908, d.
1995. Ágúst var þriðji í
röðinni af 11 börnum
þeirra.
Ágúst kvæntist 21. mars 1953 eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Guðrúnu Helgu
Lárusdóttur útgerðarkonu, f. 1933,
dóttur Lárusar Sigurbjörnssonar,
cand. phil., rithöfundar og skjala- og
minjavarðar Reykjavíkurborgar, f.
1903, d. 1974, og Ólafíu Sveinsdóttur, f.
1903, d. 1937.
Ágúst lauk Flensborgarskóla í
Hafnarfirði 1948, Iðnskóla Hafnar-
fjarðar 1950, var í vélvirkjanámi í Vél-
smiðju Hafnarfjarðar 1948-52; hlaut
meistararéttindi 1952. Hann lauk vél-
stjóraprófi í Vélskólanum í Reykjavík
1954 og rafmagnsdeild 1955, prófi í
skipasmíðum í Maskinteknikum í
Odense í Danmörku og röntgen-
myndatökum af rafsuðu í Teknologisk
Institut í Kaupmannahöfn 1959. Hann
var vélstjóri á bv. Ísólfi 1954-55 og bv.
Júlí 1955-56, vann hjá Skipaskoðun
ríkisins 1960-63, var skipaeftirlits-
maður hjá Skipadeild SÍS 1963-66,
tæknilegur fram-
kvæmdastjóri Stálvíkur
skipasmíðastöðvar
1966-69, en þar var
hann jafnframt einn af
stofnendum og stór
hluthafi, og kennari í
Vélskóla Íslands 1969-
93. Hann annaðist
hönnun og tæknilega
ráðgjöf vegna smíði
fiskiskipa fyrir ýmsar
skipasmíðastöðvar,
bæði innlendar og er-
lendar.
Árið 1970 hófu Ágúst og Guðrún
rekstur útgerðarfyrirtækisins Stálskip
hf. en þá höfðu þau fest kaup á nýleg-
um breskum síðutogara, Boston Well-
vale, sem strandað hafði við Arnarnes í
Ísafjarðardjúpi í desember 1966. Gerði
Ágúst skipið upp og fékk það síðar
nafnið Rán. Þetta var fyrsta skipið og
upphafið að meira en fjögurra áratuga
útgerðarsögu þeirra hjóna. Á þessu
tímabili gerðu þau út mörg skip, allt
frá síðutogurum upp í stór frystiskip.
Togarar í þeirra eigu báru aðallega
nöfnin Rán, Ýmir og Þór.
Börn þeirra Ágústar og Guðrúnar
eru Jenný tannlæknir, f. 1953, Ólafía
Lára kennari, f. 1959, og dr. Helga
öldrunartannlæknir, f. 1966. Barna-
börnin eru fimm og barnabarnabörnin
eru fjögur.
Útför Ágústar verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
11. desember klukkan 13.
Andlát
Ágúst G. Sigurðsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Starfsfólki Landsvirkjunar hefur
fjölgað um 156 frá árinu 2005, eða
um 57%. Þá hafa laun forstjóra
Landsvirkjunar, aðstoðarforstjóra
og framkvæmdastjóra hækkað um
tæp 140% á sama tíma. Tekið skal
fram að tölurnar eru á verðlagi
hvers árs og ekki tekið tillit til
verðlagsbreytinga á samanburðar-
tímabilinu.
Á árinu 2005 voru starfsmenn
Landsvirkjunar 273 talsins en voru
orðnir 429 í lok árs 2018. Þeim hef-
ur því fjölgað um 156 eða 57% á
þessum þrettán árum. Í báðum til-
vikum er miðað við fjölda stöðu-
gilda við lok árs.
Upplýsingar um starfsmanna-
fjöldann og laun yfirstjórnar koma
fram í skriflegu svari fjármálaráð-
herra við fyrirspurn Þorsteins Sæ-
mundssonar, þingmanns Miðflokks-
ins, sem dreift hefur verið á
Alþingi. Þorsteinn spurði um fjölda
starfsmanna sl. 20 ár og um þróun
launakjara æðstu stjórnenda á
sama tíma. Fjármálaráðuneytið
byggir svör sín á upplýsingum frá
Landsvirkjun og eru þær úr árs-
reikningum samstæðu Landsvirkj-
unar. Í töflunni hér að ofan er sýnd
þróunin frá 2005, eftir að laun for-
stjóra voru sérgreind í reikningum
fyrirtækisins.
41 milljón í árslaun
Laun forstjóra Landsvirkjunar
voru 17 milljónir á árinu 2005 en 41
milljón á árinu 2018. Laun stað-
gengils forstjóra, síðar aðstoðarfor-
stjóra, og framkvæmdastjóra hjá
fyrirtækinu hækkuðu úr 72 millj-
ónum í 171 milljón. Flest árin eru
framkvæmdastjórarnir fimm, þar á
meðal árin 2005 og 2018, en ein-
staka ár eru þeir fleiri, allt upp í
átta á árinu 2011.
Launin hjá forstjóra og öðrum í
yfirstjórn hafa hækkað á þessum
árum um tæp 140%. Þess ber að
geta að tölurnar eru á verðlagi
hvers árs og samanburður því erf-
iður nema notaður sé samanburður
við þróun verðlags. Launavísitala
sem Hagstofa Íslands reiknar út
hefur hækkað svipað og launin hjá
yfirstjórn Landsvirkjunar. Vísitala
neysluverðs hefur raunar hækkað
mun minna eða innan við 90% á
þessum tíma.
Launakjör yfirstjórnar Landsvirkjunar og starfsmannafjöldi
2005-2018
250
200
150
100
50
0
450
360
270
180
90
0
2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
89 91
105 106
115
130
162
136 141
160
174
188
214 212
Laun framkvæmdastjóra samtals, milljónir kr.*
Laun forstjóra, milljónir kr.
Fjöldi stöðugilda við árslok
*Laun aðstoðarforstj., fjármálastj. og annarra framkvæmdastj. Heimild: Svar ráðherra við fyrirspurn.
273
381
317
429
Laun, m.kr. Starfsmannafjöldi
72
17
73
18
85
20
84
22
84
31
109
21
141
21
119
17
121
20
140
20
152
22
163
25
182
32
171
41
Starfsmönnum fjölg-
að um 156 á 13 árum
Laun yfirstjórnar Landsvirkjunar upp um tæp 140%
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hafnarfjarðarbær hefur á síðustu
tveimur árum unnið að því að koma
upp eftirlitsmyndavélum við grunn-
skóla bæjarins. Verkefninu lýkur
fyrir áramót með því að myndavélar
verða settar upp við síðasta grunn-
skólann. Á nýju ári hefst vinna við að
setja upp eftirlitsmyndavélar við
leikskóla bæjarins.
„Fyrst og fremst er þetta gert til
að auka öryggi og draga úr
skemmdarverkum,“ segir Rósa Guð-
bjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnar-
firði. Hún segir að eftirlitið sé þegar
farið að skila árangri því verulega
hafi dregið úr skemmdarverkum og
þjófnaði í og við skólana og á skóla-
lóðum bæjarins. Vélarnar eru bæði
utanhúss og á völdum stöðum innan-
dyra.
Í vinnslu hjá Reykjavíkurborg
Umræða hefur verið um eftirlit
við skóla á undanförnum árum, sér-
staklega eftir að brotið var á barni í
Austurbæjarskóla á skólatíma nú í
haust. Reykjavíkurborg setti í kjöl-
farið á fót starfshóp um öryggi
barna í skóla- og frístundastarfi á
vegum borgarinnar. Starfshópurinn
á að skoða þá öryggisferla sem fyrir
eru og gera tillögur að samræmingu.
Meðal annars á að kanna kosti þess
að nýta öryggismyndavélar í aukn-
um mæli, merkingar starfsfólks og
strangari aðgangsstýringu.
Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla-
og frístundasviðs, segir að verkefnið
sé í vinnslu og greiningu. Í sumum
skólum séu öryggismyndavélar og
verið sé að leggja mat á það hverju
þær hafa skilað í úrvinnslu mála og
lægri viðhaldskostnaði, í samanburði
við aðra skóla.
Starfshópurinn á að skila tillögum
eigi síðar en 1. febrúar næstkom-
andi.
Mál þessi eru til skoðunar víðar,
til dæmis í Kópavogi og Garðabæ,
eins og fram kom í frétt í Morgun-
blaðinu í gær.
Eftirlitsvélar við
alla grunnskóla
Næsta verkefni í Hafnarfirði er að
setja myndavélar við alla grunnskóla
Morgunblaðið/Kristinn
Skógrind Dregið hefur úr skemmd-
arverkum og þjófnaði í Hafnarfirði.
Kona var í Héraðsdómi Vestfjarða
dæmd í tveggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að veitast að
barnungri dóttur sinni og sýna
henni vanvirðandi háttsemi og
ruddalega framkomu. Var móðirin
einnig dæmd til að greiða dóttur
sinni 200 þúsund krónur í miska-
bætur, en dómurinn var kveðinn
upp 28. nóvember síðastliðinn.
Konan var fundin sek um að hafa
kastað dóttur sinni nauðugri í rúm
á heimili þeirra með þeim afleið-
ingum að hún endurkastaðist á
gólfið. Einnig reif hún svo harka-
lega í buxur stúlkunnar að hún féll
við og ofan á leikföng. Stúlkan
hlaut við þetta eymsli í baki, sár við
tvo hryggjarliði, mar á baki og
hruflusár á hnésbót.
Móðirin neitaði sök fyrir dómi,
sagðist hafa verið pirruð og reið
þegar brotin áttu sér stað. Eldri
dóttir hennar varð vitni að þessu.
Móðir veitti barnungri dóttur sinni áverka