Morgunblaðið - 03.12.2019, Page 7

Morgunblaðið - 03.12.2019, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2019 , , , oskahamlaðir, blindir, ónskertir, Crohn’s, Co s, hreyfihamlaðir, ein erfir, heyrnarlausir, yrnarskertir, lesblind rsjúklingar, nýrnasjú ðraskanir, geðfötlun, artasjúklingar, heilas- ði, flogaveiki, Parkins am, talhömlun, málhö n, ME, MG, MND, MS, lu BJÓÐUM BETUR! Á alþjóðlegum degi fatlaðs fólks vekjum við athygli á útilokun þess. Útilokun sem birtist víða, þar á meðal í fjölmiðlum, auglýsingaefni, umræðu og umfjöllun. Við hvetjum fjölmiðla, fyrirtæki og stofnanir til að sýna allar hliðar mannlífsins í máli og myndum — ekki bara í dag, heldur alltaf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Viðfangsefni okkar sem störfum að málefnum fatlaðs fólks eru jafnan þau að umbjóðendur okkar geti lifað með reisn og átt sjálfstætt líf. Enn eru margvíslegar hindranir fyrir því að svo megi verða og þeim verðum við að ryðja úr vegi,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands. Auka stuðning við fólk Í dag, 3 desember, er alþjóðlegur baráttudagur fatlaðs fólk. Að til- stuðlan Sameinuðu þjóðanna var dagurinn merktur þessu málefni, fyrst árið 1992. Tilgangurinn var sá að bæta þekk- ingu á fötlun og auka stuðning við fólk sem þannig er sett. Tækifæri mannfólksins eru aldrei hin sömu og mannréttindi eru algild. Einnig hangir á spýtunni að auka skilning á hagkvæmni sam- félags án aðgreiningar. Í því sam- bandi minnir ÖBÍ á að samkvæmt bandarískri könnun sem var birt fyrir um ári kemur fram að fyrir- tækjum með fjölbreyttan starfs- mannahóp vegnar yfirleitt betur en öðrum vegna þess að fatlað fólk sé almennt úrræðagott og hugsi í lausnum, sem sé mikils virði. „Ör- yrkjar vilja nefnilega vinna en kerfið sem við búum við letur og í raun refsar þeim sem voga sér út á vinnu- markaðinn. Breytingar á þessum veruleika verða að ganga í gegn og að því munum við vinna,“ segir Þur- íður Harpa. „Sæmilegur fjárhagur er mikil- væg forsenda þess að fólk geti tekið virkan þátt í samfélaginu. Við hömr- um jafnan á mikilvægi þess að um- bjóðendum okkar séu tryggð mann- sæmandi laun,“ segir Þuríður Harpa. Hún bendir á að í dag fái fólk með fulla örorku tæplega 248 þús- und á mánuði frá Tryggingastofnun ríkisins. Eftir skatt komi rétt um 200 þúsund inn á reikninginn. Í heimilisbókhaldi flestra sé húsnæði stærsti kostnaðarliðurinn – og þegar kannski ¾ fari í húsaleigu sé svig- rúmið til annarra þátta í tilverunni orðið mjög lítið. „Okkur er í mun að fatlað fólk geti aflað sér menntunar sem greiðir því leiðina út í lífið. Samt eru mörg dæmi þess að fólk hafi þurft að hverfa frá námi, til dæmis vegna peningaleysis og þess að aðgeng- ismál í skólum eru ekki í lagi. Úr þessu – og mörgu fleiru – þarf að bæta svo fatlað fólk geti blandað sér í leikinn. Slíkt skiptir miklu fyrir okkur öll,“ segir Þuríður Harpa að síðustu. Okkar fólk geti lifað með reisn  Alþjóðlegur baráttudagur fatlaðs fólks er í dag  ÖBÍ lætur til sín taka  Hindrunum verði rutt úr vegi  Tekjur og menntun meðal baráttumála Morgunblaðið/Árni Sæberg Afrek Már Gunnarsson, Patrekur Andrés Axelsson, Stefanía Daney Guðmundsdóttir og Arna Sigríður Alberts- dóttir eru öll fötluð. Hafa þau þó ekki látið það stöðva sig og eru í fremstu röð meðal íþróttamanna. Þuríður Harpa Sigurðardóttir Alþjóðlegur baráttudagur fatlaðs fólks var fyrst haldinn hátíðlegur á Íslandi árið 2007, en það ár skrifuðu fulltrúar Íslands undir samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks. Hvatningarverðlaun ÖBÍ voru sömuleiðis þá fyrst veitt, en þau falla jafnan í skaut fólki, fé- lögum og fyrirtækjum sem hafa unnið gott starf í þágu fatlaðra. Í fyrra komu verðlaunin í hlut Knattspyrnusambands Íslands, Rúnars Björns Herrera, Bata- skóla Íslands og MS-félagsins, en allir þessir aðilar hafa beitt sér mjög í þágu fatlaðs fólks og að bæta stöðu þess. Góð störf sem bæta stöðuna VERÐLAUN FRÁ ÁRINU 2007 2018 Guðni Bergsson, Rúnar Björn Herrera og Þorsteinn Guðmundsson. Þokkalega hefur gengið á kolmunna- veiðum austur af Færeyjum undan- farið, en í gær voru nokkur íslensk skip þar að veiðum. Beitir NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun með 3.100 tonn, en mestum afla úr einni veiðiferð Beitis var landað 20. apríl sl., en þá komu 3.212 tonn upp úr skipinu. Ekkert annað íslenskt fiski- skip hefur komið með svo mikinn afla að landi úr veiðiferð, segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Þar er haft eftir Sturlu Þórðar- syni skipstjóra að enginn svakalegur kraftur hafi verið í veiðunum undan- farið. „Við vorum átta daga að veið- um og fengum aflann í átta eða níu holum. Mest fengum við 480-490 tonn í holi en yfirleitt var lengi dreg- ið. Við drógum upp í 22 tíma. Venju- lega var kastað seinni part dags og híft morguninn eftir. Stærsti plúsinn við túrinn var veðrið, en það var blíða hvern einasta dag. Fiskurinn er að ganga í austur og undir lokin vorum við komnir alveg að ensku lín- unni,“ segir Sturla. Alls eru íslensk skip búin að veiða 234 þúsund tonn af kolmunna í ár og eiga 33 þúsund eftir, samkvæmt vef Fiskistofu. aij@mbl.is Ljósmynd/Haraldur Hjálmarsson Beitir Ekkert íslenskt fiskiskip mun hafa komið með eins stóra farma. Beitir með 3.100 tonn af kolmunna  Skipin að veiðum austur af Færeyjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.