Morgunblaðið - 03.12.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.12.2019, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2019 3. desember 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.67 121.25 120.96 Sterlingspund 155.59 156.35 155.97 Kanadadalur 90.74 91.28 91.01 Dönsk króna 17.763 17.867 17.815 Norsk króna 13.123 13.201 13.162 Sænsk króna 12.636 12.71 12.673 Svissn. franki 120.68 121.36 121.02 Japanskt jen 1.101 1.1074 1.1042 SDR 165.51 166.49 166.0 Evra 132.73 133.47 133.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.2567 Hrávöruverð Gull 1456.35 ($/únsa) Ál 1785.0 ($/tonn) LME Hráolía 63.77 ($/fatið) Brent ● Bréf Eimskipafélagsins hækkuðu um tæp 6% í Kauphöll Íslands í gær. Námu viðskipti með bréf félagsins 158,7 millj- ónum króna. Ekkert félag hækkaði með viðlíka hætti í viðskiptum gærdagsins. Á sunnudagskvöld sendi félagið frá sér tilkynningu þess efnis að stjórn þess hefði ákveðið fyrr um daginn fram- kvæmd endurkaupaáætlunar. Felst í henni að félagið kaupir allt að 1,6% af útgefnu hlutafé sínu. Kaupin mega þó ekki nema hærri fjárhæð í heildina en 500 milljónum króna. Þá má gengi á þeim hlutum sem félagið kaupir ekki vera hærra en hæsta gengi af lokagengi síðasta viðskiptadags, síðustu óháðu viðskipta eða í hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði á þeim markaði sem viðskipti eru átt með hlutabréf félagsins. Þá má hámarksmagn hvers viðskipta- dags ekki fara yfir fjórðung af meðaltali daglegra viðskipta með bréf félagsins á aðalmarkaði Kauphallarinnar eins og þau voru í nóvember síðastliðinum. Því mun hámarksmagn leyfilegra kaupa á hverjum viðskiptadegi nema 69.185 hlutum. Endurkaupaáætlunin virkjaðist í gær og er hún framkvæmd af Íslandsbanka sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum í félaginu og tíma- setningu kaupanna og eru þær óháðar félaginu. Eimskipafélagið á fullu stími í Kauphöllinni STUTT BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Jafnvel þó að afgangur af viðskipta- jöfnuði á 3. fjórðungi þessa árs sé tæp- lega 15% minni en á sama tíma í fyrra, eða um 63 milljarðar króna í saman- burði við 73,8 milljarða króna á 3. árs- fjórðungi 2018, er viðskiptaafangurinn nú þegar orðinn meiri í ár á fyrstu níu mánuðum ársins en allt árið í fyrra. „Þetta er áhuga- vert og ákveðið gleðiefni,“ segir Jón Bjarki Bents- son, aðalhagfræð- ingur Íslands- banka, í samtali við Morgunblaðið en bráðabirgðatöl- ur Seðlabankans um greiðslujöfnuð við útlönd og erlenda stöðu þjóðarbús- ins komu út í gær. Samanlagður afgangur af viðskipta- jöfnuði er tæpur 121 milljarður króna á fyrstu 9 mánuðum ársins en sam- anlagður afgangur ársins 2018 í heild sinni nam 79,3 milljörðum króna. Að sögn Jóns Bjarka spilar fall WOW air inn í þessar tölur í formi sölu flugvéla félagsins á fyrsta fjórðungi, sem nam um 19 milljörðum króna. Sé sú tala tekin með í reikninginn er viðskipta- afgangurinn það sem af er þessu ári enn 22,5 milljörðum meiri en allt árið í fyrra. Ef horft er til þess að loðnuvertíðin hafi brugðist og ferðamönnum hafi fækkað er staðan „býsna ásættanleg“ að sögn Jóns Bjarka. „Hluti af skýr- ingunni er sá að þeir ferðamenn sem hingað koma eru að eyða meiru hver og einn en þeir gerðu í fyrra,“ segir hann aðspurður. Ferðamenn eyða meiru „Krónan hefur verið að jafnaði um 10% lægri í ár en hún var í fyrra og það ætti að öðru óbreyttu að skila 10% fleiri krónum í kassann. En því til við- bótar er eitthvað um 10% meira sem hver ferðamaður virðist vera að eyða í sinni heimamynt. Ferðamaðurinn virðist því dvelja hérna lengur og gera almennt svolítið betur við sig,“ segir Jón Bjarki. Hann segir þessa tvo þætti, þ.e. gengisveikinguna og aukna eyðslu ferðamanna, skýra það hvers vegna ferðaþjónustan hefur það sem af er ári skilað álíka miklum tekjum í krónum talið og á sama tíma í fyrra. Vöruskiptajöfnuður var neikvæður um tæpa 45,85 milljarða króna sem er heldur minna en á þriðja ársfjórðungi í fyrra (-47,6 ma. kr.) og árið 2017 (-46,5 ma. kr.). Jón Bjarki segir Íslendinga beina eftirspurn sinni inn í landið. „Það hefur dregist talsvert úr inn- flutningi og meira en við bjuggumst raunar við en þetta hjálpar til við að halda afganginum þetta myndar- legum.“ Erlend staða þjóðarbúsins batnaði um 91 milljarð króna og er nú jákvæð um 714 milljarða króna, sem er um 24,5% af vergri landsframleiðslu (VLF). Hefur þessi staða aldrei verið jafn sterk frá því að mælingar hófust en að sögn Jóns Bjarka er hún komin til að stórum hluta vegna viðvarandi viðskiptaafgangs. „Þetta er allt önnur þróun en við höfum áður séð hér á Ís- landi. Við endann á hagsveiflu höfum við yfirleitt verið komin með viðskipta- halla og átt í erfiðleikum með gjald- eyrisflæðið og bætt í viðskiptahallann tímabundið. Núna er ennþá innflæði inn í landið. Það er frábær og upplífg- andi breyting því þetta þýðir að það er miklu minni hætta á að hér verði ein- hver spíralmyndun sem hefst með gengisveikingu sem ýtir undir verð- bólgu og veldur efnahagslegum usla.“ Erlend staða þjóðarbúsins aldrei verið sterkari en nú Ársfjórðungslegur greiðslujöfnuður Milljarðar króna 2018/3 2018/4 2019/1 2019/2 2019/3 Viðskiptajöfnuður 73,8 2,7 42,7 15 63 Vöruskiptajöfnuður -47,6 -37,6 2,7 -42,6 -45,9 Þjónustujöfnuður 123,4 36,3 29,6 51,4 101,3 Jöfnuður frumþáttatekna 3,9 11,1 17,4 13,1 13,4 Rekstrarframlög, nettó -5,9 -7,1 -7 -6,9 -5,9 Jöfnuður fjárframlaga -0,3 -0,7 -0,4 -0,5 -0,4 Fjármagnsjöfnuður 88,7 36,2 87,4 29,1 114,8 Bein fjárfesting 44,9 -6,6 23,4 25,5 7,6 Verðbréf 22,7 112,9 25,8 -27,6 107,4 Afl eiður -0,7 2,6 0,1 1,7 0,4 Önnur fjárfesting 21,4 -82,8 45 -34,8 -6,4 Gjaldeyrisforði 0,4 10,1 -7 64,3 5,7 Skekkjur og vantalið 15,2 34,2 45,1 14,5 52,2 Erlend staða þjóðarbúsins Erlendar eignir alls 3.375 3.395 3.724 3.882 3.870 Erlendar skuldir alls 3.023 3.079 3.158 3.259 3.156 Hrein staða þjóðarbúsins 352 316 566 623 714 Sem % af VLF 21,3% 3,9% -0,2% -0,6% 24,5% Heimild: Seðlabanki íslands  Afgangur af viðskiptajöfnuði á fyrstu níu mánuðum ársins meiri en allt árið 2018 Jón Bjarki Bentsson Húsnæði veitingastaðarins Skelfisk- markaðarins, sem var opnaður 28. ágúst 2018 og lokað í mars 2019, hefur verið auglýst til sölu. Seljandi er verk- takafyrirtækið Þingvangur og er um að ræða 622,9 fermetra með nýjum innréttingum. Sagt var frá því í sumar að viðræð- ur stæðu yfir við mögulega kaupend- ur og voru vonir uppi um að í rýminu yrði opnaður annar veitingastaður. Ekki hefur þó orðið af þeim áformum. „Þetta er fyrsta auglýsingin og það hefur verið mikill áhugi. Þetta hefur verið selt og ekki náð fjármögnun og slíkt, þannig að við ákváðum að láta reyna á það hvort það væru einhverjir fleiri sem hefðu áhuga því við ætlum ekki að leigja þetta,“ segir Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þing- vangs. Hann kveðst ekki tjá sig um hugsanlegt verð eignarinnar á þessu stigi máls, en fasteignamat hennar nemur 395,6 milljónum króna sam- kvæmt opinberri skráningu Þjóð- skrár. Morgunblaðið/Valli Sala Á veitingastaðnum var pláss fyrir 310 gesti og glænýjar innréttingar. Skelfiskmarkað- urinn enn til sölu  Fasteignamatið 395,6 milljónir króna JÓLASERÍUR við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA kr.275 Inni- og útiseríur. Verð frá

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.