Morgunblaðið - 03.12.2019, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2019
Nauðungarsala
Lausafjáruppboð
Fimmtudaginn 5. desember n.k. kl. 14:00 verður haldið
lausafjáruppboð á eldhústækjum úr atvinnueldhúsi í
Eldfjallamiðstöðinni á Hvolsvelli, Austurvegi 14, 860 Hvols-
velli, lista yfir uppboðsmuni má finna á vefsíðu sýslumanna á
slóðinni https://www.syslumenn.is/naudungarsolur/
Krafist verður greiðslu við hamarshögg og hægt verður að greiða
með reiðufé, millifærslu eða debetkorti.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi,
2. desember 2019
Tilboð/útboð
Breyting á Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022
Í landi Dagverðarness, ofan Skorradalsvegar (508)
Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 139. fundi sínum þann 27. nóvember 2019 tillögu að breytingu á
Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022.
Tillagan var auglýst frá 30. september til og með 11. nóvember 2019. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma
tillögunnar og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá embætti skipulagsfulltrúa Skorradalshrepps um netfangið skipulag@skorradalur.is .
Í landi Indriðastaða á svæði er nefnist Dyrholt
Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 139. fundi sínum þann 27. nóvember 2019 tillögu að breytingu á
Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022.
Tillagan var auglýst frá 30. september til og með 11. nóvember 2019. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma
tillögunnar og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá embætti skipulagsfulltrúa Skorradalshrepps um netfangið skipulag@skorradalur.is .
Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Jólapeysudagur - Opin vinnustofa kl.9:30-12:30, nóg
pláss - Hreyfisalurinn er opinn milli 9:30-11:30 - Kraftur í KR kl.10:30,
rútan fer frá Vesturgötu kl.10:10, Grandavegi 47 kl.10:15 og Aflagranda
kl.10:20 - Félagsvist kl.13:00 - Myndlist kl.13:00 - Jólabíó kl.13:15, ELF -
Kaffi kl.14:30-15:00 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 -
Allir velkomnir –
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Opin
handavinnuhópur kl. 12-16. Boccia með Guðmundi kl. 10.
Göngubretti, æfingarhjól m/leiðb. kl. 12:30. Félagsvist með
vinningum kl. 12.45. Myndlist með Elsu kl. 16-19. Opið fyrir innipútt.
Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:45-15.30.
Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700.
Boðinn Félagsvist kl. 13:00. Boccia kl. 10:30. Gönguhópur kl. 10:30.
Myndlist kl. 13:00.
Dalbraut 27 Fylgt í sundleikfimi í Laugardalslaug, kl. 8:30 frá Dal-
braut 27.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Við hringborðið
kl. 8:50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-12. Ganga ef veður leyfir kl. 10.
Byrjendanámskeið í Línudansi kl. 10. Hádegismatur kl. 11:30. Myndlis-
tarnámskeið kl. 12:30-15:30. Handavinnuhornið kl. 13. Félagsvist kl.
13. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Allir velkomnir óháð aldri.
Nánari upplýsingar í síma 411-2790
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8:30. Núvitund kl. 10:30.
Silkimálun kl. 12:30. Göngutúr um hverfið kl. 13:00. Handaband kl.
13:00. Bridge kl. 13:00. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13:10-13:30. Skák kl.
14:00. Handavinnuhópur hittist kl. 15:30. Verið öll hjartanlega
velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411-9450.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi
kl. 13:00. Vatnsleikf. Sjál kl.7:10/7:50/15:15. Kvennaleikf Sjál. kl. 9:30.
Kvennaleikf Ásg. kl.11:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Jólafrí
Zumba
Gullsmára Postulínshópur kl. 9.00. Jóga kl. 9.30 og 17.00.
Handavinna og Bridge kl. 13.00. Félagsvist kl. 20.00.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9 – 14. Jóga kl. 10:00 – 11:00. Hádegismatur kl.
11.30. Sögustund kl. 12:30-14:00. Prjónaklúbbur kl. 14:00-16:00.
Námskeið í olíumálun kl. 14:00-18:00, nokkur sæti laus.
Námskeiðið kostar 5.500 kr, litir og pennslar á staðnum en striga þarf
að koma með.
Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl 8.00-12.00,
kl 9.00 Myndmennt, kl 11.00 Gaflarakórinn, kl 13.00 Félagsvist
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Jóga með
Carynu kl. 8:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Jóga með Ragnheiði kl. 11:10.
Jóga með Ragnheiði kl. 12:05. Tálgun – opinn hópur kl. 13:00-16:00.
Frjáls spilamennska 13:00. Bíó í Sambíó Kringlunni kl 14:00.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 9 í Borgum, ganga kl 10 frá
Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll. Skartgripagerð kl 13 í
Borgum, félagsvist kl. 13 í Borgum. Tréútskurður í umsjón Gylfa kl. 13
á Korpúlfsstöðum og kóræfing kl. 16 í Borgum í umsjón Kristínar
kórstjóra. Allir hjartanlega velkomnir.
Seltjarnarnes Gler neðri hæð félagsheimilisins kl. 9.00 og 13.00.
Leir Skólabraut kl. 9.00. Billjard Selinu kl. 10.00. Krossgátur og kaffi í
króknum kl. 10.30. Jóga salnum Skólabraut kl. 11.00. Handavinna,
prjón, föndur ofl. í salnum á Skólabraut kl. 13.00.
Allir velkomnir. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30.
Stangarhylur 4, ZUMBA Gold byrjendur kl. 9.20 -ZUMBA Gold
framhald kl. 10.30 -STERK OG LIÐUG leikfimi fyrir dömur og herra kl.
11.30 umsjón Tanya.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Stórglæsilegur sjónvarps-
skápur Eins og nýr. Ótrúlegt verð.
Breidd: 180cm, hæð: 38cm,
dýpt: 45cm. Fullt verð: 29.950kr,
Tilboð 8.000kr.
Uppl. í síma: 698-2598.
Bókhald
NP Þjónusta
Sé um liðveislu við
bókhaldslausnir o.þ.h.
Hafið samband í síma
831-8682.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Rað- og smáauglýsingar
Nú
þú það sem
þú eia að FINNA.is
✝ Ólafur EinarMagnússon
fæddist á Seyðis-
firði 26. júlí 1932.
Hann lést á Drop-
laugarstöðum 19.
nóvember 2019.
Foreldrar hans
voru Vilborg Júl-
íana Guðmunds-
dóttir, f. 18 júní
1898, d. 21 apríl
1978, og Magnús
Símon Guðfinnsson, f. 4. desem-
ber 1898, d. 1978. Ólafur var
áttundi í röð 12 systkina, eftir-
lifandi er Heiðrún Helga, f.
1935, látin eru Óskar, f. 1922, d.
1991, Einar Áskell, f. 1923, d.
1923, Vilhelmína Kristín, f.
1925, d. 2015, Guðmundur, f.
1927, d. 1946, Oddný, f. 1928, d.
2016, Guðný Guðfinna, f. 1929,
d. 2017, Gunnar, f. 1931, d.
2019, Árni, f. 1933, d. 1952,
Ottó, f. 1936, d. 2017, Hrefna, f.
1939, d. 2018.
Ólafur fór átta ára í fóstur
tilVilhelms Björns Kjartans-
sonar og Þórunnar Stefaníu
Sigurðardóttur og bjuggu þau á
nokkrum bæjum í Jökulsárhlíð.
Ólafur stundaði nám í Lauga-
skóla í Þingeyjarsýslu og á
Eiðum. Hann flutti til Reykja-
víkur eftir tvítugt og vann ýmis
störf fyrstu árin. Árið 1966
stofnaði Ólafur Glerskálann,
sem ásamt bróður sínum og
ráku þeir hann saman til 1998.
Ólafur kvæntist Fríðu
Valdimarsdóttur
1956. Þau ætt-
leiddu tvö börn,
Silvíu Bryndísi, f.
1959, og Jón Þór, f.
1969. Þau tóku
einnig að sér fóst-
urdóttur, Gunni, f.
1965, d. 1982. Börn
Silvíu eru Ólöf,
Páll og Fríða Sæ-
dís. Jón er kvæntur
Janis Ramos, börn
þeirra eru Dan Ólafur, Silvía
Hlíf og Kristján Jóhann. Jón
Þór eignaðist tvær dætur fyrir
hjónaband, þær eru Arna Ýr, f.
1991, og Sonja Rut, f. 1997.
Barnabörn Ólafs eru orðin
fimm. Eftirlifandi eiginkona
Ólafs er Hlíf Kristjánsdóttir, f. í
mars 1946. Ólafur og Hlíf hófu
sambúð 1990 og gengu í hjóna-
band 2014. Börn Hlífar eru
Anna Kristín Sigurbjörnsdóttir,
f. 1963, maður hennar er Reyn-
ir Áslaugsson. Börn þeirra eru
Ingvar Þór, Áslaug Ósk, Mel-
korka Diljá og Hrafnhildur
Gígja. Sonur Hlífar er Bjarni
Þór Sigurbjörnsson, f. 1973,
börn hans eru Ísidór Jökull,
Katla og Hlífar Bragi.
Ólafur hafði yndi af tónlist
og söng í ýmsum kórum. Hann
var liðtækur harmonikkuleik-
ari, náttúruunnandi og úti-
vistarmaður.
Útför hans fer fram í Bú-
staðakirkju í dag, 3. desember
2019, klukkan 13.
Við Ólafur fórum að búa sam-
an 1990. Er maður hugsar til
baka hafa þessi ár liðið ótrúlega
hratt. Við ferðuðumst mikið bæði
utan- og innanlands. Við ferðuð-
umst til Kúbu, Krítar og margra
annarra landa. Sérstaklega var
ferðin skemmtileg þegar syst-
urnar Guðný, Vilhelmína og
Hrefna voru með í ferð og þá var
nú sungið og ferðafélagarnir
höfðu mikið gaman af. Við ferð-
uðumst einnig mikið um landið
okkar, t.d. urðu vinnuferðir í
Þórsmörk margar. Útilegur með
tjaldvagninn, fjallgöngur, berja-
ferðir og góðar stundir í sum-
arbústaðnum á Laugarvatni.
Ekki má gleyma hvað okkur þótti
gaman að dansa. Barnabörnin
mín átti í honum góðan afa.
Síðustu árin voru erfið, sjúk-
dómurinn tók frá honum færnina.
Ólafur var í Fríðuhúsi í fjögur ár,
þar naut hann sín vel á meðan
stætt var. Síðastliðið eitt og hálft
ár var Ólafur á Droplaugar-
stöðum.
Ég þakka mínum kæra eigin-
manni samfylgdina og óska hon-
um góðrar ferðar í sumarlandið.
Hans eiginkona,
Hlíf.
Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt
sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt
hverju orði fylgir þögn
og þögnin hverfur alltof fljótt.
En þó að augnablikið aldrei fylli stund
skaltu eiga við það mikilvægan fund
því að tár sem þerrað burt
aldrei nær að græða grund.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
Þú veist að tímans köldu fjötra
enginn flýr
enginn frá hans löngu glímu aftur snýr.
Því skaltu fanga þessa stund
því fegurðin í henni býr.
(Bragi Valdimar Skúlason)
Á liðnum misserum hafa
systkini mín hvert af öðru farið í
Sumarlandið. Í dag kveðjum við
Óla bróður og er ég nú ein eftir af
tólf systkina hópi sem fæddist á
Vestdalseyri við Seyðisfjörð á ár-
unum 1922-1939, fimm systur og
sjö bræður. Móðir okkar átti við
veikindi að stríða og vegna þess
sundraðist fjölskyldan. Öll náð-
um við þó saman á ný þegar fram
liðu stundir og höfum í gegnum
tíðina átt yndislegar stundir sam-
an, m.a. á ættarmótum og jóla-
skemmtunum.
Óli var ætíð hrókur alls fagn-
aðar á þessum góðu skemmtun-
um stórfjölskyldunnar, spilaði
fyrir dansi á harmónikuna og
leiddi sönginn af miklu öryggi.
Óli var mikill tónlistaraðdáandi
og þótt hugurinn væri orðinn
fjarri þá lifnaði ætíð yfir honum
ef hann heyrði tónlist spilaða og
hann hóf upp raust sína. Auð-
heyrt var að textarnir og músíkin
voru ekki horfin úr huga hans.
Óli var mikið góðmenni og
hafði einstaka nærveru sem ég á
sannarlega eftir að sakna.
Elsku Óli, ég er mjög þakklát
fyrir allar okkar góðu samveru-
stundir.
Ég sendi eftirlifandi eiginkonu
þinni og afkomendum þínum öll-
um mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Heiðrún Helga Magnús-
dóttir (Helga systir).
Ólafur Einar
Magnússon
Fleiri minningargreinar
um Ólaf Einar Magnússon
bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar