Morgunblaðið - 03.12.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 03.12.2019, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2019 þriðjudaginn 3. desember, kl. 18 þriðjudag kl. 10–17 Forsýning á verkunum í Gallerí Fold Fold uppboðshús kynnir Rauðarárstígur 14–16, sími 551 0400 · www.uppbod.is JÓLAUPPBOÐ Jóhannes S. Kjarval Hafsteinn Austmann Karólína Lárusdóttir Tryggvi Ólafsson Listmunauppboð nr. 117 50 ára Sigurlaug er Keflvíkingur, fædd þar og uppalin. Hún tók skrifstofutækninám og er förðunar- og nagla- fræðingur. Sigurlaug er gjaldkeri hjá Íslenskum aðal- verktökum. Maki: Reynir Þór Reynisson, f. 1963, jarðvinnuverktaki. Börn: Ingi Þór, f. 1994, Reynir Þór, f. 1998, Sara Lind, f. 2002, og Stella María, f. 2007. Barnabarnið heitir Auð- ur María Ingadóttir, f. 2018. Foreldrar: Jóhann Eggert Jóhannsson, f. 1936, d. 1993, verkamaður, og Alda Kristín Jóhannsdóttir, f. 1931, d. 1989, dagmóðir. Þau voru búsett í Keflavík. Sigurlaug Hanna Jóhannsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Samtal við vin getur gert þig óör- ugga/n. Hvaðan kemur sú tilfinning? Taktu það sem þitt er traustataki. 20. apríl - 20. maí  Naut Einhver náinn þér gæti komið þér á óvart í dag. Orð góðs vinar fela í sér sér- staka visku í augnablikinu. Ekki gefa tommu eftir í deilumáli. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Í samstarfi hefst ekkert án mála- miðlana. Aðrir gætu auðveldlega misskilið þig svo farðu að öllu með gát. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það skiptir öllu máli að halda ró sinni þegar á móti blæs. Láttu ekki aðra halda fyrir þér vöku. Vandamálin leysast af sjálfu sér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er ekkert vit í öðru en að þú setj- ist niður og gerir þér grein fyrir því hvað það er sem þú sækist eftir í lífinu. Gakktu bara í það og þú munt undrast hversu auðvelt það er. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú getur fundið mjög sterka reiði- tilfinningu þó allt sé í lukkunnar velstandi í tilfinningalífinu. Grafðu upp hvað veldur og reyndu að sættast við liðna tíð. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þið saknið gömlu skóladaganna og ykkur langar til þess að mennta ykkur frekar. Með tíð og tíma eignast þú draumaheimilið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Dagurinn verður erfiður ef þú berst gegn straumnum. Áætlanir fara stundum út um þúfur og þá er gott að hafa plan b. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gleðitíðindi berast af fjölgun í stórfjölskyldunni. Hvort sem það er með- vitað eða ekki þá kallarðu á athygli. Dreifðu verkefnum á aðra. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það léttir lífið að hafa gam- ansemina alltaf við höndina. Lærðu af reynslunni og bíttu í tunguna á þér þegar þér mislíkar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur verið hrókur alls fagn- aðar að undanförnu og ættir að gefa þér frí frá félagslífinu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þótt gott sé að eiga góða muni, þá eru dauðir hlutir ekki það sem lífið snýst fyrst og fremst um. Einhver segir ekki alla söguna. Ó lafur Tryggvason Elías- son fæddist 3. desem- ber 1934 í Reykjavík og ólst þar upp í Skerjafirðinum fyrstu fjögur árin en síðan á Akranesi. „Pabba bauðst bátur á Skaganum og þess vegna fluttumst við hingað og bjuggum fyrst á Bárugötunni í húsi sem kallað var draugahöllin, en það var af því að það hafði verið lengi í byggingu og klætt skelja- sandi. Síðan festist nafnið við hús- ið.“ Nafnið Ólafur Tryggvason er tilkomið af því að faðir hans las mik- ið fornsögurnar og var sérstakur aðdáandi Ólafs Tryggvasonar. „Móðir mín ætlaði þá að láta skíra mig Ólaf Tryggva en þá sagði pabbi: Eigum við ekki að skíra hann fullu nafni, Ólafur Tryggvason, og það varð úr.“ Ólafur gekk í barnaskóla á Akra- nesi. Hann lærði verkstjórn og fisk- mat hjá Fiskmati ríkisins 1971, síð- ar lærði hann skreiðar- og saltfisk- mat 1982 og niðurlagningu matvæla 1983 við Fiskvinnsluskóla ríkisins í Hafnarfirði. Sjómennsku og fiskvinnslu stundaði Ólafur frá fjórtán ára aldri, einkum hjá Haraldi Böðv- arssyni og co. og var hann síðan um skeið kjötvinnslu- og verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Suður-Borgfirðinga. Þá var hann eftirlitsmaður í nokkur ár. Hann starfaði við verkstjórn hjá Frysti- húsi Haraldar Böðvarssonar 1968- 79.Ólafur var ofngæslumaður við Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga 1979-81. Eftir að hann lauk náminu við fiskvinnslu- skólann í Hafnarfirði var hann fiskmatsmaður hjá Haraldi Böðv- arssyni hf. þar til hann lauk störf- um vegna aldurs. Ólafur sat í stjórn Sjálfstæðis- félags Akraness og var formaður þess í þrjú ár. Hann var lengi í Rot- aryklúbbi Akraness og formaður 1992-93. „Mest var ég þó að sinna fjölskyldu minni og afla henni við- urværis, það var nóg að gera við peningana enda stór fjölskylda. Ég var með 20-25 kindur og yfir 100 hænsn í Kalmansvíkinni og það var búbót í því.“ Ólafur er enn við góða heilsu og sinnir konu sinni en hún missti heils- una fyrir nokkrum árum og er á Dvalarheimilinu Höfða, en Ólafur býr enn á Garðabrautinni. „Ég er duglegur að fara á bókasafnið og les aðallega ævisögur og sannar sögur. Ég er núna að klára Úr húsi afa míns eftir Finnboga Hermannsson og það er góð afþreying. Svo fór ég í sund nánast daglega en sundlauginni var lokað vegna viðgerða og ég hef ekki náð að koma upp sömu rútínu eftir að hún var opnuð en það stendur til.“ Fjölskylda Ólafur kvæntist 1.1. 1955 Ólöfu Guðlaugu Sigurðardóttur, f. 1.9. 1931, fiskvinnslukonu og húsmóður. Foreldrar hennar voru hjónin Sig- urður Guðmundsson, 9.7. 1897, d. 2.6. 1981, húsasmiður, og Guðlaug Ólafs- dóttir, f. 9.7. 1897, d. 8.9. 1990, hús- Ólafur Tr. Elíasson, fyrrverandi fiskmatsmaður – 85 ára Fjölskyldan Samankomin á fimmtugsafmæli Ingibjargar árið 2011. Efri röð frá vinstri: Sigríður Guðlaug, Ingi- björg, Þuríður, Ólafur Georg og Reynir. Neðri röð frá vinstri: Eiður, Ólafur, Ólöf og Elías. Nefndur eftir Noregskonungi Hjónin Ólafur og Ólöf stödd heima á Garðabrautinni á þessu ári. 70 ára Hálfdan Ómar er fæddur og uppalin á Ytra-Seljalandi undir Eyjafjöllum en býr á Seltjarnarnesi. Hann er skógarbóndi á Ytra- Seljalandi, líffræð- ingur og þýðandi hjá utanríkisráðuneytinu. Maki: Þuríður Þorbjarnardóttir, f. 1954, líffræðingur, lýðheilsufræðingur og fv. framhaldsskólakennari. Börn: Gauja, f. 1973, Sara Hlín, f. 1976, og Anna Þyrí, f. 1990. Stjúpbörn eru Svala, f. 1978, og Indriði, f. 1981, Sigurðarbörn. Barnabörnin eru orðin 11. Foreldrar: Hálfdan Auðunsson, f. 1911, d. 2001, og Sigríður Kristjánsdóttir, f. 1920, d. 2000, bændur á Ytra-Seljalandi. Hálfdan Ómar Hálfdanarson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.