Morgunblaðið - 03.12.2019, Síða 25

Morgunblaðið - 03.12.2019, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2019 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com „ÉG ÆTLAÐI AÐ HÆTTA EN ÞÁ BUÐU ÞEIR MÉR HORNSKRIFSTOFU MEÐ ÚTSÝNI.” „PABBI, HVAÐA HLUTI KJÚKLINGSINS ER NÚÐLAN?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá toppþjónustu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann AFMÆLISDAGURINN MINN ER Á NÆSTA LEITI, ÉG FINN ÞAÐ Á MÉR EÐA KANNSKI ER ÉG BARA VÆNISJÚKUR ÉG FÆRI ÞÉR SLÆMAR FRÉTTIR! FJÁRHÚSIN BRUNNU TIL KALDRA KOLA Á MEÐAN ÞÚ VARST Í BURTU! Æ NEI! GÓÐU FRÉTTIRNAR ERU ÞÆR AÐ VIÐ MUNUM HALDA HELJARINNAR GRILLVEISLU! móðir. Þau voru búsett á Akranesi. Börn Ólafs og Ólafar Guðlaugar: 1) Sigríður Viktoría, f. 18.12. 1954, d. 14.1. 1955; 2) Þuríður, f. 16.6. 1956, húsmóðir í Reykjavík, maki Guðmundur Jóhann Guðmundarson, hún á einn son; 3) Ólafur Georg, f. 5.6. 1958, húsasmiður, búsettur í Danmörku og á hann þrjár dætur; 4) Ingibjörg, f. 23.3. 1961, vinnur hjá VÍS, búsett á Akranesi, gift Guðmundi Sörla Harðarsyni og eiga þau þrjár dætur; 5) Sigríður Guð- laug, f. 26.7. 1962, kennari á Akra- nesi, maki Ellert Björnsson og hún á þrjú börn; 6) Eiður, f. 23.10. 1964, útgerðarmaður á Akranesi, en kona hans er Guðrún Helga Guðjóns- dóttir og þau eiga tvö börn og hann á einn son fyrir; 7) Elías, f. 12.8. 1969, sjómaður á Akranesi, kvæntur Björgheiði Valdimarsdóttur og eiga þau þrjú börn. Stjúpsonur Ólafs er Reynir Theódórsson, f. 12.1. 1951, húsasmiður á Akranesi og á hann þrjú börn. Systkini Ólafs: Einar Tjörvi, f. 7.1. 1930, vélaverkfræðingur í Reykjavík; Gunnar Hafsteinn, f. 24.2. 1931, bakarameistari og kjöt- iðnaðarmaður á Akranesi; Hreinn, f. 19.9. 1933, myndlistarmaður á Akranesi; Edda, f. 13.2. 1936, hús- móðir og kaupkona á Akranesi; Ið- unn, f. 6.7. 1938, húsmóðir og saumakona við Borgarleikhúsið, bú- sett í Garðabæ; Guðrún, f. 6.3. 1941, húsmóðir og hjúkrunarfræðingur, búsett í Garðabæ; Sigríður, f. 25.7. 1943, sjúkraliði í Reykjavík. Foreldrar Ólafs voru hjónin Elías Guðmundsson, f. 1.12. 1904, d. 9.8. 1989, skipstjóri, og Sigríður Vikt- oría Einarsdóttir, f. 18.8. 1902, d. 26.11. 1993, húsmóðir. Þau voru bú- sett á Akranesi. Ólafur Tryggvason Elíasson Ingibjörg Stefánsdóttir húsfreyja í Miðvogi á Akranesi Sigríður Sigurgeirsdóttir húsmóðir á Hvoli á Akranesi Sigríður Einarsdóttir húsmóðir á Akranesi Einar Tjörvason sjómaður á Hvoli á Akranesi Margrét Einarsdóttir húsfreyja á Efra-Hvoli Tjörvi Jónsson bóndi á Efra-Hvoli í Hvolhr., Rang. Árni Einarsson forstjóri Reykjalundar Jónas Sigurgeirsson skipstjóri í Vinaminni Sigurgeir Guðmundsson sjómaður og bóndi í Miðvogi og á Geirsstöðum á Akranesi Oddur Sigurgeirsson, Oddur sterki Jóhannes Guðmundsson vélstjóri í Reykjavík Áróra Sigurgeirsdóttir fl ugfreyja og sendiherrafrú Sigurgeir Einarsson kaupmaður í Reykjavík Þuríður Jónsdóttir húsfreyja á Ísafi rði Bjarni Jónsson verkamaður á Ísafi rði Guðrún Þorbjörg Bjarnadóttir húsfreyja á Ísafi rði Guðmundur Jónsson bátasmiður á Ísafi rði Karítas Pálsdóttir húsfreyja á Króki Jón Bjarnason bóndi á Króki í Selárdal Úr frændgarði Ólafs Tryggvasonar Elíassonar Elías Guðmundsson skipstjóri á Akranesi Á fésbókarsíðu sinni rifjarHjálmar Freysteinsson upp þessa limru sem hann orti 30. nóvember fyrir ári: Þau héldu fámennan fund og fjölluðu drykklanga stund um kvenfólksins alla kosti og galla í klaustri við Templarasund. En 28. nóvember sl. skrifaði Hjálmar „Elliglöp“: Minninu förlast ég fann, fátt nú veit eða kann, greindin er skert, samt er guðs þakka vert að ég gleymi ekki því sem ég man. Sigurlín Hermannsdóttir yrkir á Boðnarmiði, – og segist aldrei hafa „skilið „snilldina“ í orðmyndun/ ummyndun fössara“. Hún viti ekki betur en að fullt sé af öðrum orðum sem mynduð eru á sama hátt og sumir nota jafnvel, – og mér sýnist vísan auðskilin, ég verð að segja það!:“ Fjöllan í kaupstaðarferð á fössara, þá er best verð, sér hammara fékk og fröllur að smekk með öllara af öndvegis gerð. „Furðufugl“ hugsar Guðmundur Arnfinnsson og yrkir: Með konunum suður til Kanarí kenndur hann ferðalög spanar í, ströndinni á sér unir þeim hjá allsber, en þær eru vanar því. Pétur Stefánsson minntist full- veldisdagsins: Strokið getum frjáls um fés fjarri Dana böli. Fagna skulum fyrsta des. með flösku af góðu öli. Magnús Halldórsson yrkir: Eftir reglum ýmsir fara, ögn á ská. Oft þeir líka eldinn skara, öðrum frá. Ingólfur Ómar Ármannsson hlakkar til jólanna: Jólafastan birtu ber boðskap dreifir fínum, þakklæti og auðmýkt er efst í huga mínum. Jón Ingvar Jónsson segir „Æ, það er ljótt að skipa almættinu fyrir verkum,“ – en yrkir samt: Heyr mitt bljúga bænasuð, beindu mér á réttan stig, almáttugur góði guð gerðu þetta fyrir mig. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af klaustri við Templara- sund og fössara

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.