Morgunblaðið - 03.12.2019, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2019
Rússland
CSKA Moskva – Arsenal Tula................ 0:1
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn fyrir CSKA Moskvu og Arnór Sig-
urðsson kom inn á sem varamaður á 78.
mínútu.
Krasnodar – Tambov .............................. 0:0
Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn fyr-
ir Krasnodar.
Danmörk
Midtjylland – Silkeborg .......................... 2:1
Mikael Anderson lék ekki með Midt-
jylland vegna meiðsla.
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Njarðvík: Njarðvík – Keflavík b ......... 19.15
Enski boltinn á Siminn Sport
Burnley – Manchester City ................. 20.15
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
Olísdeild karla
Selfoss – FH.......................................... 31:37
Staðan:
Haukar 12 9 3 0 333:302 21
Afturelding 12 9 1 2 334:307 19
FH 12 7 2 3 347:326 16
ÍR 12 7 2 3 364:334 16
Valur 12 7 1 4 320:275 15
Selfoss 12 7 1 4 369:365 15
ÍBV 12 6 1 5 335:320 13
KA 12 4 1 7 329:345 9
Stjarnan 12 2 4 6 308:326 8
Fram 12 3 1 8 291:320 7
Fjölnir 12 2 1 9 309:364 5
HK 12 0 0 12 294:349 0
HM kvenna í Japan
A-riðill:
Kúba – Serbía ....................................... 27:46
Angóla – Holland.................................. 28:35
Slóvenía – Noregur .............................. 20:36
Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg.
Noregur 4, Serbía 4, Holland 2, Slóvenía
2, Angóla 0, Kúba 0.
D-riðill:
Argentína – Rússland .......................... 22:35
Kongó – Japan ...................................... 16:28
Kína – Svíþjóð....................................... 19:32
Rússland 4, Svíþjóð 4, Japan 4, Argent-
ína 0, Kongó 0, Kína 0.
Danmörk
Ribe-Esbjerg – SönderjyskE ............. 30:24
Gunnar Steinn Jónsson skoraði 4 mörk
fyrir Ribe-Esbjerg, Rúnar Kárason 3 en
Daníel Þór Ingason komst ekki á blað.
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 4
mörk fyrir SönderjyskE og Sveinn Jó-
hannsson 1.
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hljóðið var gott í Tryggva Snæ
Hlinasyni, landsliðsmiðherja í körfu-
knattleik, þegar Morgunblaðið sló á
þráðinn til hans í gær. Er það ekki
skrítið þar sem Zaragoza, lið
Tryggva, vann stórveldið Real Mad-
rid á sannfærandi hátt á sunnudaginn
84:67 í spænsku úrvalsdeildinni.
„Þetta var magnað. Hjá okkur
small allt og þetta gekk dásamlega.
Að vinna þetta lið er náttúrlega bara
veisla,“ sagði Tryggvi, sem var maður
leiksins út frá framlagspunktunum
sem fundnir eru út með tölum úr
helstu þáttum íþróttarinnar. „Mér
gekk mjög vel og held að ég hafi skil-
að því sem ég var beðinn að gera.
Tavares, miðherjinn þeirra, er mjög
mikilvægur fyrir þá og okkur tókst að
koma honum í vandræði. Hann var í
villuvandræðum í gegnum leikinn og
fór loks út af með fimm villur. Gaf það
okkur meira frelsi til að losa okkur
nærri körfunni á lokamínútunum og
við lönduðum sigrinum nokkuð þægi-
lega, eins asnalegt og það hljómar.“
Real Madrid varð Evrópumeistari
fyrir einu og hálfu ári og er á toppn-
um ásamt öðru stórveldi, Barcelona.
Zaragoza hefur komið skemmtilega á
óvart og unnið bæði þessi lið á tíma-
bilinu og er tveimur stigum á eftir í 3.
sæti.
„Þegar við unnum Barcelona var
mun meiri spenna í þeim leik og mað-
ur var lengur að ná sér niður. Stuðn-
ingsmennirnir eru mjög glaðir yfir
því sem er í gangi og hvernig liðinu
hefur gengið. Ef maður gengur um
miðbæinn þá eru hinir og þessir að
heilsa manni og senda manni bar-
áttukveðjur,“ sagði Tryggvi.
Hart barist í deildinni
Að mati Tryggva og liðsfélaga hans
er Zaragoza með sterkt lið. Þeir
höfðu á tilfinningunni að liðið gæti
gert fína hluti í vetur en ekki var bú-
ist við því í toppbaráttunni í fjölmiðla-
umfjöllun fyrir tímabilið.
„Að okkar mati erum við með
geggjað lið en utanaðkomandi aðilar
áttuðu sig ekki á því. Þegar ég gekk í
raðir liðsins reiknaði ég heldur ekki
með þessu. Við höfum komið vel á
óvart á öllum sviðum en sigrar gegn
Real Madrid og Barcelona sýna að
við erum tilbúnir. Þegar við spilum
okkar leik getum við unnið hvaða lið
sem er í deildinni,“ sagði Tryggvi en
bendir jafnframt á að deildin sé mjög
jöfn og baráttan um sætin átta í úr-
slitakeppninni sé hörð.
„Við erum einum sigri á eftir
Barcelona og Real Madrid. Svo koma
fjögur lið rétt á eftir okkur. Þetta er
því mjög jafnt og eiginlega ótrúlegt
hversu mikið getur breyst hjá liðum
við það að tapa tveimur leikjum.
Mörg lið eru jafn hungruð og við en
deildin er yfirleitt svakalega jöfn. Í
fyrra minnir mig að fimm sigrar hafi
skilið að lið sem féll og lið sem komst í
úrslitakeppnina.“
Fjölþjóðaher hjá flestum liðum
Spænsku úrvalsdeildarliðin þurfa
að vera með alla vega helming leik-
manna frá Spáni eða með spænskt
ríkisfang. Aðrir í leikmannahópunum
koma gjarnan héðan og þaðan úr
heiminum. „Við erum með leikmenn
frá Svartfjallalandi, Þýskalandi,
Tékklandi, Kanada, Bandaríkjunum,
Kúbu og Argentínu fyrir utan Íslend-
inginn,“ sagði Tryggvi, sem er
ánægður með sitt hlutverk, ekki síst
vegna þess að hann hefur spilað
meira í vetur en hann bjóst við. „Ég
var í raun fenginn sem þriðji maður
undir körfuna en vegna meiðsla hef
ég fengið stærra hlutverk en reiknað
var með. Ég reyni að halda áfram að
sanna mig og halda mínu striki. Við
erum með fullkominn þjálfara hvað
það varðar að hann er opinn fyrir því
að gefa yngri mönnum tækifæri. Ég
hef því fengið mín tækifæri og tel að
ég hafi sýnt gegn Real Madrid að ég
sé tilbúinn í slaginn.“
Býr inni í landi
Tryggvi kann ágætlega við sig í
Zaragoza, sem er í norðausturhluta
landsins og þar búa um 660 þúsund
manns. „Þetta er svolítið frábrugðið
því sem ég hef kynnst á Spáni.
Fyrst var ég í Valencia, sem er gull-
falleg borg og stutt frá sjónum. Síð-
asta vetur var ég í Santiago, sem er
einnig virkilega falleg og þar er
náttúran líkari þeirri íslensku. Nú
er ég inni í miðju landi. Hér er að-
eins kaldara og meiri vindur. En
borgin er fín og á heildina litið er ég
ánægður bæði með staðsetninguna
og liðið. Ég kem öllu frá mér á
spænsku og skil allt þótt ég tali
örugglega ekki fallegustu spænsk-
una,“ sagði Tryggvi sem tók málið
strax föstum tökum þegar hann
flutti til Spánar og óskaði eftir að
komast í spænskunám.
Allt small
saman gegn
stórveldinu
Tryggvi hæstánægður hjá Zaragoza
Sigrar gegn Real og Barcelona
Ljósmynd/FIBA
Kraftur Tryggvi Snær Hlinason treður boltanum í körfuna í leik með Zara-
goza gegn Bonn frá Þýskalandi í Meistaradeild Evrópu í vetur.
Lionel Messi, fyrirliði spænska
knattspyrnuliðsins Barcelona, skrif-
aði sig á spjöld sögunnar í gærkvöldi
þegar hann hlaut Gullboltann í sjötta
sinn á ferlinum á árlegri verðlauna-
afhendingu France Football sem
fram fór í París. Enginn hefur unnið
verðlaunin oftar en Messi, sem vann
fyrst til verðlaunanna árið 2009.
Hann hlaut verðlaunin svo fjögur ár í
röð, árin 2010, 2011 og 2012. Árið
2015 hampaði hann verðlaunagripn-
um í fimmta sinn, en Messi varð
spænskur meistari með Barcelona á
síðustu leiktíð, ásamt því að verða
marka- og stoðsendingahæsti leik-
maður deildarinnar.
Virgil van Dijk, varnarmaður
Liverpool í ensku úrvalsdeildinni,
varð annar í kjörinu og Cristiano
Ronaldo, sem hlotið hefur Gullbolt-
ann fimm sinnum, varð þriðji.
Megan Rapinoe hlaut Gullboltann
í kvennaflokki, en hún var fyrirliði
bandaríska landsliðsins sem varði
heimsmeistaratitil sinn á HM í
Frakklandi síðasta sumar.
bjarnih@mbl.is
AFP
Bestur Lionel Messi, leikmaður
Barcelona og Argentínu.
Messi skráði sig
í sögubækurnar
AFP
Best Megan Rapinoe, leikmaður
Reign og Bandaríkjanna.