Morgunblaðið - 03.12.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.12.2019, Blaðsíða 32
V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til Silja Elsabet Brynjarsdóttir mezzó- sópran og Helga Bryndís Magnús- dóttir píanóleikari koma fram á Kúnstpásu Íslensku óperunnar í Norðurljósum Hörpu í dag, þriðju- dag, kl. 12.15. Á efnisskránni eru aríur og sönglög eftir Bizet, Verdi, Massenet, Donizetti og Schubert. Tónleikarnir standa í um það bil 30 mínútur. Aðgangur er ókeypis. Silja Elsabet syngur á Kúnstpásu í hádeginu ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 337. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Þegar Sverrir Ingi Ingason skoraði fyrir PAOK gegn Olympiakos í topp- slag grísku úrvalsdeildarinnar í fót- bolta á sunnudagskvöldið náði hann áfanga sem mjög fáir íslensk- ir knattspyrnumenn hafa náð. Sverrir hefur nú skorað mörk í deildakeppni sex landa og einungis þrír Íslendingar hafa gert betur en það. »26 Sverrir Ingi kominn í fámennan hóp ÍÞRÓTTIR MENNING „Þetta var magnað. Hjá okkur small allt og þetta gekk dásamlega. Að vinna þetta lið er nátt- úrlega bara veisla,“ sagði Tryggvi Snær Hlinason meðal annars við Morgun- blaðið um sigur Zara- goza gegn stórveldinu Real Madrid í spænsku úrvals- deildinni í körfuknatt- leik. »26 Að vinna stórliðið Real Madrid er veisla Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Styrktarsjóður Listasafns Sigurjóns Ólafssonar hefur gefið út heimilda- ritið Listasafn Sigurjóns Ólafssonar – tilurð og saga, sem Birgitta Spur, ekkja listamannsins, ritstýrði. Af því tilefni býður styrktarsjóðurinn til fagnaðar í safninu á Laugarnesi á morgun kl. 17. Dagskráin endur- speglar breiddina í starfsemi safns- ins, sem frá upphafi hefur fjallað um myndlist, tónlist, bókmenntir og náttúru- og menningarminjar á Laugarnesi. Birgitta tileinkar ritið afkomend- um sínum og velunnurum safnsins sem studdu hana þegar staðið var að uppbyggingu þess. „Mér er mikið í mun að til séu aðgengilegar heimildir um safnið og starfsemi þess,“ segir Birgitta um verkið. Í bókinni rekur Birgitta 35 ára sögu safnsins og styðst við dag- bækur, sendibréf, blaðaúrklippur, ljósmyndir og ársskýrslur safnsins. Margar blaðagreinar, einkum úr Morgunblaðinu, eru birtar sem myndir eins og þær komu fyrir í upp- hafi, og með skýringum Birgittu er um að ræða ítarlega samantekt um mikilvæga menningarstarfsemi. Erfiður rekstur Eftir lát Sigurjóns 20. desember 1982 var Birgittu mikill vandi á hönd- um og 1. desember 1984 stofnaði hún einkasafnið Listasafn Sigurjóns Ólafssonar í þeim tilgangi að halda utan um hátt í tvö hundruð listaverk Sigurjóns og varðveita þau á þeim stað sem þau voru sköpuð. Hún segir að þegar Sigurjón féll frá hafi hús- næðið verið gamalt og úr sér gengið og miklar endurbætur nauðsynlegar. Stofnun einkasafns hafi verið byrj- unin á uppbyggingunni en síðan hafi þurft að afla fjármagns til að gera við vinnustofuna, svo hún gæti þjónað til sýninga. Haustið 1988 var safnið opnað al- menningi og ári síðar gert að sjálfs- eignarstofnun og rekið með sjálfs- aflatekjum og styrkjum frá ríki og borg fram til ársins 2012, þegar Listasafn Íslands tók við rekstrinum. Birgitta segir að rekstrarfjármagn hafi ekki verið sjálfgefið. Framlag borgarinnar hafi alltaf verið minna en framlag frá ríkinu. „Á árunum eftir bankahrunið 2008 var staðan svo alvarleg að við blasti að hætta þyrfti rekstri safnsins,“ segir hún. Birgitta segist vera ánægð með það sem tókst að gera: að breyta fá- tæku listamannaheimili í menningar- stofnun þar sem menningararfurinn, verk Sigurjóns Ólafssonar, er þunga- miðjan. „Við höfum staðið vörð um arfleifð Sigurjóns með þeim árangri að fjallað hefur verið um list hans er- lendis og verkin farið á sýningar þar, og til dæmis hefur hann aftur verið dreginn fram í sviðsljósið í Dan- mörku,“ segir Birgitta. „List hans er alþjóðleg.“ Morgunblaðið/RAX Í Listasafninu Birgitta Spur, ekkja Sigurjóns Ólafssonar, við Úlfalda, verk eftir listamanninn frá 1978-1979. Standa vörð um arfleifðina  Heimildarit um sögu Listasafns Sigurjóns Ólafssonar  Ítarleg samantekt um mikilvæga menningarstarfsemi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.