Morgunblaðið - 04.12.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019
SJÁLFBÆR
upplýsingagjöf
Hvernig er ófjárhagslegri upplýsingagjöf
íslenskra fyrirtækja háttað?
Á morgunfundi Almenna lífeyrissjóðsins kynnir Margret Flóvenz,
endurskoðandi, niðurstöðu skýrslu um ófjárhagslega upplýsinga-
gjöf í ársreikningum skráðra íslenskra fyrirtækja. Skýrslan er
unnin af nemendum í viðskiptasiðfræði við Háskóla Íslands.
Fundarstjóri verður Ólafur H. Jónsson, stjórnarformaður Almenna.
Staður: Borgartún 25, 8. hæð
Stund: Fimmtudagur 5. desember kl. 8:30
Allir velkomnir
Nánari upplýsingar og skráning á:
www.almenni.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Því var fagnað í Noregi á mánudag
að þá kom út á norsku sjötta og
síðasta bindi Flateyjarbókar. Har-
aldur Noregskonungur veitti verk-
inu móttöku og eftir áramót er ætl-
unin að færa Alþingi og forseta
Íslands bækurnar, samkvæmt upp-
lýsingum Anders Hansen, fram-
kvæmdastjóra Lærdómsseturisns á
Leirubakka, en hann og Valgerður
Kr. Brynjólfsdóttir hafa aðstoðað
við útgáfuna ásamt mörgum öðrum.
Norska bókaforlagið SagaBok
stendur að útgáfunni og Torgrim
Titlestad, prófessor í Stafangri,
hefur haft yfirumsjón með þýðing-
unni á nútímanorsku. Bækurnar
sex eru í leðurbandi og útgáfan
ríkulega myndskreytt með nýjum
myndum eftir norska myndlistar-
manninn Anders Kvåle Rue. Fram
kemur á vef norsku fréttastofunnar
NTB að verkefnið í heild kosti um
15 milljónir norskra króna eða sem
nemur um 200 milljónum íslenskra
króna.
Anders Hansen segir einnig að
nú sé búið að þýða um 40% texta
bókarinnar á ensku. Það sé næsta
stórverkefni að gefa Flateyjarbók
út á ensku og þannig að opna
þennan mikla menningararf fyrir
allri heimsbyggðinni.
Á vef Alþingis fyrir fjórum árum
var greint frá því að Einar K. Guð-
finnsson, forseti Alþingis, hefði þá
tekið við fyrstu tveimur bindum
nýrrar útgáfu Flateyjarbókar á
norsku, fyrstu heildarútgáfu Flat-
eyjarbókar í Noregi. Flateyjarbók
var mest íslenskra handrita, alls
225 arkir eða 450 síður og kom til
Íslands með danska varðskipinu
Vædderen þegar fyrstu handrit-
unum var skilað frá Danmörku, 21.
apríl 1971. Þá afhenti danski
menntamálaráðherrann Helge Lar-
sen íslenskum starfsbróður sínum
Gylfa Þ. Gíslasyni bókina með
frægum orðum á sviði Háskólabíós.
Haraldur konungur tók við
sjötta bindi Flateyjarbókar
Útgáfunni lokið
í Noregi 200
milljóna verkefni
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
„Vær så god, Flatøbogen!“ Helge Larsen, menntamálaráðherra Danmerk-
ur, afhendir Gylfa Þ. Gíslasyni, íslenskum starfsbróður sínum, bókina 1971.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þessar tillögur eru stór áfangi í nátt-
úruvernd á Íslandi,“ segir Tryggvi
Felixson, formaður Landverndar.
„Ég hefði þó gjarnan viljað sjá að viss
svæði í útjaðri hálendisins yrðu innan
þjóðgarðsins og svo er spurning hve
mikil völd fámenn sveitarfélög eigi að
hafa um stjórn og skipulag þjóðgarða,
samanber að þeir eru sameign allra
landsmanna.“
Nefnd um stofnun þjóðgarðs á
miðhálendi Íslands skilaði Guðmundi
Inga Guðbrandssyni umhverfisráð-
herra í gær skýrslu um málið. Í
nefndinni sátu fulltrúar allra þing-
flokka á Alþingi, Sambands íslenskra
sveitarfélaga, umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytis og forsætisráðuneytis.
Miðhálendið, sem svo er kallað,
spannar 40 þúsund ferkílómetra, og
eru um 85% þeirra þjóðlendur. Eru
þær, að friðlýstum lendum meðtöld-
um, svæðið sem hálendisþjóðgarður-
inn á að spanna. Gert er ráð fyrir að
ráðherra leggi á vorþingi fyrir Al-
þingi fram frumvarp sem byggist á
tillögunum sem kynntar voru ráð-
herra í gær. Í undirbúningsstarfinu
var samráð haft við fulltrúa sveitar-
félaga og þeirra sem hagsmuna eiga
að gæta. Hugmyndin er einnig sú að
skipta garðinum upp í rekstrarsvæði
og fari svæðisbundin ráð þar með
stefnumörkun, umsjón og rekstur.
„Hálendisþjóðgarður verður ein-
stakur þjóðgarður á miðhálendi Ís-
lands þar sem er að finna ein stærstu
óbyggðu víðerni Evrópu,“ segir í yfir-
lýsingu Guðmundar Inga Guðbrands-
sonar umhverfisráðherra.
Nefndin sem vann tillögurnar um
hálendisþjógarð hóf störf á vormán-
uðum í fyrra og byggðist starf hennar
á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar.
Ótímabærar fyrirætlanir
„Stofnun miðhálendisþjóðgarðs er
ótímabær,“ segir Bergþór Ólason,
fulltrúi Miðflokks í þjóðgarðsnefnd.
Hann sagði sig frá starfinu áður en
yfir lauk og skrifaði ekki undir loka-
skýrsluna. Hann segir margt í tillög-
um enn óljóst, svo sem hvernig fjár-
magna skuli stofnun og starfsemi
þjóðgarðs. „Framtíð orkunýtingar er
óljós og einnig hvernig koma eigi til
móts við gagnrýni sveitarfélaga sem
eiga land á hálendinu. Fulltrúar
flestra sveitarfélaga eru fullir efa-
semda um þessar fyrirætlanir, sem að
mínu mati er borin von að komist í
gegnum Alþingi á vorþingi.“
Hillir undir hálendisþjóðgarðinn
Spannar ein stærstu óbyggðu víðerni Evrópu Umhverfisráðherra fær tillögur Sagðar vera stór
áfangi í náttúruvernd Ótímabært og margt er enn óljóst, segir fulltrúi Miðflokks í þjóðgarðsnefnd
Tillaga um mörk þjóðgarðs á miðhálendinu
Heimild: Umhverfis-
og auðlindaráðuneytið.
Kort: Náttúrufræðistofnun.
Bakkelsi, taupokar og hálkusalt
voru meðal þess sem kaupa mátti á
góðgerðarmarkaði barna af frí-
stundaheimilum í Grafarvogi í
Reykjavík, sem haldinn var í Hlöð-
unni við Gufunesbæ í gær. Við-
burður þessi er árlegur, þar sem
börnin úr 3. og 4. bekk grunnskól-
ans selja framleiðslu sína, en nú
sem endranær rennur ágóðinn
óskertur til Barnaspítala Hringsins.
„Krakkarnir sem tóku þátt í dag
voru einhvers staðar nærri fimmtíu
talsins og komu af þeim átta frí-
stundaheimilum sem starfrækt eru
í Grafarvoginum. Þessi viðburður í
dag, sem hafði yfir sér hátíðlegan
blæ jólanna, var afar skemmti-
legur,“ segir Kristján Sigurðsson,
aðstoðarformaður á Regnboga-
landi, sem var meðal þeirra sem
skipulögðu markaðinn, sem nú var
haldinn í sjötta sinn. sbs@mbl.is
Góðgerðar-
markaður í
Grafarvogi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Við sjáum
hverju fram
vindur í vik-
unni,“ sagði Hall-
dór Benjamín
Þorbergsson,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
atvinnulífsins
(SA), í samtali við
mbl.is í gær og
vísaði í máli sínu
til þeirrar stöðu sem uppi er í kjara-
viðræðum SA við Blaðamannafélag
Íslands (BÍ). Fundi samninganefnda
BÍ og SA var slitið á fimmta tíman-
um í gær eftir um fjögurra tíma
viðræður. Ríkissáttasemjari sleit
fundinum og ekki hefur verið boð-
að til nýs fundar.
Hjálmar Jónsson, formaður
Blaðamannafélags Íslands, sagði
stöðuna „mjög erfiða“. Útlit er fyrir
fjögurra tíma vinnustöðvun blaða-
manna á prentmiðlum á morgun,
fimmtudag.
Fundi samninga-
nefnda SA og BÍ slit-
ið hjá sáttasemjara
Hjálmar
Jónsson