Morgunblaðið - 04.12.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga www.alno.is
NÝTT – Veggklæðning
Rauvisio Crystal
• Mikið úrval lita og áferða
• Auðvelt í uppsetningu og umgegni
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Viðtökurnar hafa verið mjög
góðar. Það var rosa partí hér á
laugardaginn og krökkunum leist
vel á,“ segir Guðrún Baldvinsdóttir,
verkefnastjóri hjá Borgarbókasafni
Reykjavíkur.
OKið kallast nýtt rými fyrir ungt
fólk í bókasafninu í Gerðubergi, en
þar er hægt að læra, skapa, fikta og
einfaldlega hanga. Það var opnað
með pompi og prakt um helgina og
skemmti söngkonan GDRN gestum.
OKið er ætlað krökkum á aldrin-
um 12-16 ára og hafa þau tekið þátt
í að skapa rýmið. „Við höfum unnið
með unglingum úr hverfinu frá
upphafi, rætt við þau hvað þau vilja
og þau hafa verið okkur stoð og
stytta,“ segir Guðrún.
Opið verður á virkum dögum eft-
ir skóla frá kl. 14-18 og þar fyrir ut-
an verða viðburðir, smiðjur og
námskeið. Krakkarnir geta sjálfir
skipulagt dagskrá. „Við vonum að
þau taki völdin af okkur – hrifsi
þetta til sín.“
OKið hlaut hæsta styrk úr Barna-
menningarsjóði í ár, rúmar 18 millj-
ónir. Um tilraunaverkefni er að
ræða þar sem prófaðar verða ólíkar
miðlunarleiðir til að ná til ungs
fólks. Í rýminu er unnið með tækni
og umhverfismál en einnig gefst
ungmennum tækifæri til að prófa
sig áfram og sjá hugmyndir sínar
verða að veruleika. Hægt er að
kynna sér verkefnið nánar á vef
Borgarbókasafnsins.
Vona að krakk-
arnir taki völdin
Nýtt rými fyrir ungmenni í Gerðubergi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Opnunarhátíð Krakkarnir í Breið-
holti eru spenntir fyrir OKinu.
Félag sjálf-
stæðismanna um
fullveldismál var
stofnað í Valhöll í
Reykjavík 1.
desember síðast-
liðinn, á full-
veldisdeginum.
Stofnfundinn
sóttu um 80
manns.
Tilgangur fé-
lagsins er að „efla samhug sjálf-
stæðismanna um fullveldið með því
að halda til haga og verja, með
fræðslu og upplýsingu, þau grunn-
gildi Sjálfstæðisflokksins um frjálsa
og fullvalda þjóð“, eins og segir í lög-
um félagsins. Styrmir Gunnarsson,
fv. ritstjóri Morgunblaðsins, var ein-
róma kjörinn formaður félagsins, en
hann flutti ávarp á fundinum, eins og
þingmennirnir Jón Gunnarsson og
Ásmundur Friðriksson, auk fleiri.
Styrmir for-
maður félags
um fullveldi
Styrmir
Gunnarsson
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts
(ÍSP), segir að það sé rangt sem
Neytendasamtökin halda fram, að
kostnaður og aðrar forsendur sem
liggja til grundvallar hinu nýja enda-
stöðvagjaldi, sem lagt er á allar póst-
sendingar frá útlöndum, séu ekki til
staðar hjá Íslandspósti.
„Að sjálfsögðu liggja allar þessar
upplýsingar fyrir,“ segir hann. Hins
vegar hafi Breka Karlssyni, formanni
samtakanna, verið svarað nokkrum
sinnum í sumar á þá leið að Íslands-
póstur gefi ekki opinberlega út þær
upplýsingar sem kallað var eftir.
„Þar var um að ræða niðurbrotnar
upplýsingar úr bókhaldi félagsins um
tekjur og gjöld og slíkar upplýsingar
eru ekki gerðar opinberar,“ segir
Birgir. Hins vegar liggi þetta allt gal-
opið fyrir þá aðila sem hafa það hlut-
verk að fara yfir og hafa eftirlit með
rekstri fyrirtækisins. Póst- og fjar-
skiptastofnunin (PFS), Samkeppnis-
eftirlitið, Ríkisendurskoðun og fleiri
séu með rekstur og starfsemi Íslands-
pósts undir smásjá og hafi öll þessi
gögn. Neytendasamtökin hafi ekki
þetta lagalega eftirlitshlutverk og
geti því ekki kallað eftir gögnunum.
Friðrik Pétursson hjá Póst- og fjar-
skiptastofnuninni segir að yfirferð
stofnunarinnar á kostnaðarforsend-
um Íslandspósts fyrir nýja gjaldinu
eigi að vera tilbúin fyrir áramót og
verði þá birt opinberlega.
Ekki vegna fortíðarvanda
„Sendingargjaldið er ekki hugsað
til þess að greiða fyrir fortíðarvanda
ÍSP, sá vandi er flókinn og í raun sér
kapítuli,“ segir Birgir Jónsson
„Gjaldið kemur á móti tapi sem verð-
ur á sendingum sem berast að utan og
verður til vegna þess að alþjóðasamn-
ingar sem hið alþjóðlega póstsam-
starf byggist á hafa ekki þróast nógu
hratt með þróun netverslunar í heim-
inum. Þetta er stórt alþjóðlegt vanda-
mál og Ísland er eitt fárra landa sem
hafa leyst vandann með þessum hætti
á meðan önnur lönd horfa á mikinn
taprekstur.“
Niðurgreiðsla ekki sanngjörn
Birgir segir að almennt séð sé ekki
sanngjarnt að Íslandspóstur eða ríkið
niðurgreiði sendingar fyrir einstak-
linga sem þeir panta sér á netinu.
Aðrar vörur sem komi til landsins og
séu til sölu í verslunum séu ekki nið-
urgreiddar með þessum hætti og því
sé hér um mikilvægt sanngirnismál
að ræða. „Það er samt vel skiljanlegt
að fólk sé ósátt við að þurfa allt í einu
að greiða fyrir það sem það fékk
ókeypis áður,“ segir hann.
Nýja gjaldið ekki vegna fortíðarvanda
Morgunblaðið/Hari
Póstur Nýtt gjald á póstsendingar er umdeilt, ekki síst forsendur þess.
Forstjóri ÍSP segir forsendur enda-
stöðvagjalds liggja fyrir hjá fyrirtækinu