Morgunblaðið - 04.12.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 04.12.2019, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Leiðtoga-fundurAtlants- hafsbandalagsins stendur nú yfir í Lundúnum og er yfirlýstur til- gangur hans að fagna 70 ára afmæli bandalagsins. Óhætt er að segja að fundurinn hafi farið allbrösuglega af stað, þar sem aðfarir Tyrkja í Sýrlandi og vægast sagt sér- kennileg ummæli Emman- uels Macrons Frakklands- forseta í síðasta mánuði um að bandalagið glími við „heiladauða“ gáfu tóninn. Meðal þess sem deilt hef- ur verið um á fundinum er ný varnaráætlun fyrir Eystrasaltslöndin og Pól- land, sem Tyrkir segjast munu standa í vegi fyrir nema hinar þjóðirnar viður- kenni YPG-samtök Kúrda í Sýrlandi sem hryðjuverka- öfl. Öðrum ríkjum banda- lagsins þykir það þó frekar súr skipti, sér í lagi í ljósi þess veigamikla hlutverks sem YPG gegndi í barátt- unni við Ríki íslams. Ofan á þetta bætast vangaveltur um stöðu Bandaríkjanna innan banda- lagsins, þrátt fyrir að Donald Trump Bandaríkja- forseti hafi fullvissað fundargesti í gær um að Bandaríkin stæðu enn þétt við bakið á Atlantshafs- bandalaginu, óháð harðri gagnrýni hans á það hvernig fjárhagslegum byrðum af vörnum þess sé deilt niður á ríkin. Trump var skiljanlega stoltur af því, að á hans vakt hefðu bandalagsþjóðirnar aukið framlög sín til mála- flokksins um 180 milljarða bandaríkjadala. Um leið hef- ur þeim fjölgað sem verja að minnsta kosti 2% af þjóðar- framleiðslu sinni til varnar- mála, eins og lofað var á leið- togafundi bandalagsins í Varsjá 2014 að gert yrði fyr- ir árslok 2024. Ekki verður þó horft framhjá því að sum lykilríki bandalagsins virðast sátt við að láta þennan málaflokk sitja á hakanum. Þýskaland er þar sérstakt áhyggjuefni, en Annegret Kramp- Karrenbauer, varnarmála- ráðherra og líklegur arftaki Angelu Merkel Þýskalands- kanslara, sagði í sumar að raunhæfara væri fyrir Þjóð- verja að stefna á að verja 1,5% af þjóðarframleiðslu sinni árið 2024 í varnarmál. Sú yfirlýsing hefur mælst misjafn- lega fyrir bæði í Þýskalandi og er- lendis, og ekki verið til þess fallin að draga úr gagnrýni Bandaríkja- stjórnar. Þessi afstaða Þjóðverja er þeim mun fróðlegri í ljósi þess að ummæli Macrons um „heiladauða“ bandalagsins voru öðrum þræði ætluð til að hvetja ríki Evrópusam- bandsins til þess að huga að eigin vörnum utan þeirra traustu vébanda sem Atl- antshafsbandalagið hefur mótað á síðustu 70 árum. Viðbrögð Þjóðverja þá voru að benda réttilega á að Evr- ópusambandsríkin væru enn um sinn of veikburða í varnarmálum til þess að íhuga slíka kosti. Að vissu leyti endurspegla þau vandamál sem blossað hafa upp á fundinum annað nýlegt afmæli, en á þeim þrjátíu árum sem liðin eru frá því að smánarmúr sósíal- ismans féll í Berlínarborg hefur reglulega blossað upp umræða um hlutverk banda- lagsins og jafnvel látið að því liggja að dagar þess séu taldir, þar sem tilgangurinn hafi brostið þegar Sovét- ríkin hurfu. Það vekur því athygli að eitt umræðuefni fundarins er hvernig bandalagsríkin ætla sér að bregðast við upp- gangi Kínverja, sem eyða nú næstmestu allra þjóða til varnarmála. Ljóst er að Atl- antshafsbandalagið mun seint sækja inn á Suður- Kínahaf. Engu að síður nálg- ast Kínverjar bandalagið óð- fluga, hvort sem horft er til mikillar innviðaaukningar þeirra í ríkjum Afríku og Asíu, ásælni á norðurskautið eða þróunar fjarskipta- tækni, á borð við 5G, sem kínverski fjölmiðlarisinn Huawei hefur sett í forgang. Víst er að Atlantshafs- bandalagið mun ekki finna sér nýjan tilgang með því að setja Kínverja eða jafnvel Rússa í þann óvinasess sem Sovétríkin sátu áður í. Engu að síður er löngu tímabært að bandalagsríkin kanni hvort þau geti fundið sam- starfsflöt gagnvart þessum ríkjum sem og öðrum, sem mögulega munu ógna öryggi vestrænna lýðræðisríkja á komandi árum. Leiðtogar Atlants- hafsbandalagsins funda í Lundúnum en byrja brösuglega} Vandamálin viðruð R íkisútvarpið (RÚV ohf.) hefur nú stigið nýtt skref í þá átt að líta á sig sem ríki í ríkinu. Það gerði það vitanlega með því að ákveða að leyna því hverjir umsækj- endur um stöðu útvarpsstjóra yrðu og telja sig þannig ekki þurfa að fara að lögum. Rökin voru þau að með því myndu betri umsækj- endur koma fram. Ekki veit ég hvað menn hafa fyrir sér í því nema það sé slíkt feimnis- mál að sækja um starfið. Til að reyna að komast upp með þetta hafði einhver starfsmaður verið látinn breyta per- sónuverndaryfirlýsingu stofnunarinnar til að þessi leyndarhyggja passaði við hana. Árvök- ulir fréttamenn einkamiðlanna höfðu hins vegar rekið augun í þetta svo upp komst um svindlið. En það er ekki bara leyndarhyggjan í Efstaleitinu sem er brot á lögum heldur þurfti ríkisendurskoðandi að benda á hið augljósa, að stofnunin hefur ekki farið að lögum og stofnað dótturfélög. Lög frá 2013 með gildis- töku 2018 svo nægur var tíminn. Á sama tíma og Ríkisútvarpið verður upplýst af leyni- makki um það hver verður næsti útvarpsstjóri er ráð- herra ríkisútvarpsins að reyna að koma í gegnum alþingi frumvarpi sem gerir ráð fyrir því að gera frjálsa fjöl- miðla háða ríkissjóði. Á sama tíma er ekki útlit fyrir að ráðherrann ætli sér að breyta fjármögnun RÚV ohf., hvorki er varðar þátttöku á auglýsingamarkaði né nef- skattinn sem allir neyðast til að greiða. Það er vel skiljanlegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli emja örlítið yfir þessum málatilbúnaði ráð- herrans. Ráðherrann veit þó að kveisa Sjálf- stæðisflokksins er ekki merkilegri en ung- barns rétt eftir að hafa tæmt pelann, nægir að setja hann á öxlina og klappa mjúklega þar til ropinn kemur, þá lagast allt. Ég spái því að þótt málið klárist ekki fyrir jól verði fyrir þingfrestun í vor búið að bæta fjölmiðlum á ríkisspenann. Ríkisútvarp í þeirri mynd sem það er í dag er tímaskekkja og óþarft. Tæknin hefur gert það að verkum að flutningur efnis er orðinn almennur, mikið magn afþreyingar er í boði, menningar- og fræðsluþættir o.s.frv. Öryggishlutverkið á ekki lengur við, til þess hafa menn aðra tækni, s.s. í gegnum farsíma eða ljósleiðara. Sjómenn vafra um á netinu og eru flestir í stöðugu sambandi heim. Þá spyr einhver: Hvað með menninguna? Hún má ekki vera upp á Ríkisútvarpið komin. Hún þarf að geta náð til sem flestra á sem fjölbreyttastan hátt. Leggja ætti Ríkisútvarpið niður í núverandi mynd og nota t.d. tvo milljarða af þessum fimm sem það kostar að reka RÚV í íslenska menningu. Stofna mætti sjóð sem styrkti gerð efnis um menningu, listir, o.þ.h. Einkarekna fjölmiðla getum við eflt með því að skatt- greiðendur velji á sínu skattframtali hvaða fjölmiðill á að fá þeirra „útvarpsgjald“. Það er einfalt og mögulega sanngjarnt. gunnarbragi@althingi.is Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Hið óþarfa leynifélag RÚV ohf. Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis og varaformaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen tegund sem tölvupóstur er og að mikilvægar upplýsingar um athafn- ir opinberra aðila varðveitist. Frestur til að skila inn umsögn um regludrögin er til og með 3. janúar á næsta ári. Meginreglan er sú að tölvupóst, og fylgiskjöl hans, sem varðar mál með efnislegum hætti skuli skrá og varðveita í skjalasafni viðkomandi stofnana. Forstöðumaður stofnunar skal tryggja við starfslok starfs- manns að allur tölvupóstur og fylgi- skjöl hans í tölvupósthólfi sem starfsmaður hafði til umráða á starfstíma sínum sé skráður, varð- veittur eða honum eytt í samræmi við ákvæði reglnanna. Stofnanirnar eiga sjálfar að setja sér skráðar notkunarreglur um þetta á grund- velli almennu reglnanna. Tölvupósti var eytt Í greinargerð Þjóðskjalasafnsins með reglunum er rifjað upp að í könnun Þjóðskjalasafns Íslands á skjalavörslu og skjalastjórn ríkisins árið 2016 hafi komið í ljós að aðeins 49% stofnana ríkisins varðveita tölvupóst sem varðar mál í mála- safni þeirra. Alls sögðu 43% stofn- ana að tölvupóstur sem varðaði mál væri ekki varðveittur í málasafni og af þeim sögðu langflestir að tölvu- pósturinn væri vistaður í tölvu- pósthólfum stofnunarinnar. Þá komu fram vísbendingar um að þúsundum tölvubréfa opinberra stofnana hefði verið eytt vegna skorts á reglum. Þjóðskjalasafnið bendir á að geymsla tölvupósts í tölvupóst- hólfum sé ekki skipuleg varðveisla og geti orðið til þess að mikilvægar upplýsingar um ákvarðanir og af- greiðslu mála hjá afhendingar- skyldum aðilum séu ekki fyrir hendi þegar á þurfi að halda. Fram kemur að við samningu draganna hafi verið tekið mið af verklagi um meðferð tölvupósts hjá Stjórnarráði Íslands. Í Starfs- mannahandbók Stjórnarráðsins séu vandaðar leiðbeiningar um meðferð og skráningu mála og skjala sem komi til meðferðar ráðuneytanna, þ.m.t. um tölvupóst. Þá hafi jafn- framt verið skoðaðar reglur og til- mæli um tölvupóst hjá opinberum aðilum á Norðurlöndum. Misbrestur er enn á varðveislu tölvupósts Ljósmynd/Þjóðskjalasafn Íslands Þjóðskjalasafn Íslands Varðveita ber rafræn gögn, þ.m.t. tölvupóst, í skjalasöfnum opinberra stofnana. SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Þjóðskjalasafn Íslands hefurauglýst til umsagnar drögað reglum um meðferð,varðveislu og eyðingu á tölvupósti þeirra opinberu stofnana sem skylt er að afhenda safninu skjöl sín til varðveislu. Þjóðskjala- safn er framkvæmdaaðili opinberr- ar skjalavörslu og skjalastjórnar samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn og er m.a. ætlað að setja reglur um skjalavörslu og skjala- stjórn afhendingarskyldra aðila. Í tilkynningu á vef Þjóðskjala- safnsins (skjalasafn.is) segir að mikilvægt sé að meðferð, varðveisla og eyðing á tölvupósti sé eftir ákveðnum ferlum og að tryggt sé að tölvupóstur sem varðar mál sem er til meðferðar hjá afhendingar- skyldum aðilum og varðar starf- semi þeirra sé skráður og varð- veittur á skipulegan hátt. Reglunum sé ætlað að tryggja góða og vandaða meðferð á þeirri skjala-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.