Morgunblaðið - 04.12.2019, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019
England
Burnley – Manchester City .................... 1:4
Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
Burnley vegna meiðsla.
Crystal Palace – Bournemouth............... 1:0
Staðan:
Liverpool 14 13 1 0 32:12 40
Manch.City 15 10 2 3 43:17 32
Leicester 14 10 2 2 33:9 32
Chelsea 14 8 2 4 28:20 26
Crystal Palace 15 6 3 6 14:18 21
Tottenham 14 5 5 4 24:21 20
Wolves 14 4 8 2 19:17 20
Sheffield Utd 14 4 7 3 17:13 19
Arsenal 14 4 7 3 20:21 19
Manch.Utd 14 4 6 4 21:17 18
Burnley 15 5 3 7 21:24 18
Bournemouth 15 4 4 7 18:21 16
West Ham 14 4 4 6 17:23 16
Newcastle 14 4 4 6 13:22 16
Aston Villa 14 4 3 7 21:22 15
Brighton 14 4 3 7 16:21 15
Everton 14 4 2 8 14:22 14
Southampton 14 3 3 8 15:32 12
Norwich 14 3 2 9 15:30 11
Watford 14 1 5 8 9:28 8
Frakkland
B-deild:
Grenoble – Clermont............................... 1:1
Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í
leikmannahópi Grenoble.
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
DHL-höllin: KR – Skallagrímur ......... 19.15
Blue-höllin: Keflavík – Valur............... 19.15
Stykkishólmur: Snæfell – Grindavík .. 19.15
Smárinn: Breiðablik – Haukar............ 19.15
1. deild kvenna:
Hertz-hellirinn: ÍR – Hamar ............... 20.15
Enski boltinn á Síminn Sport
Manchester United – Tottenham ....... 19.30
Chelsea – Aston Villa ........................... 19.30
Leicester – Watford ............................. 19.30
Southampton – Norwich ........ (mbl.is) 19.30
Wolves – West Ham ............... (mbl.is) 19.30
Liverpool – Everton ............................. 20.15
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
HM kvenna í Japan
A-RIÐILL:
Holland – Kúba..................................... 51:23
Slóvenía – Angóla ................................. 24:33
Noregur – Serbía.................................. 28:25
Noregur 6, Holland 4, Serbía 4, Angóla 2,
Slóvenía 2, Kúba 0.
B-RIÐILL:
Suður-Kórea – Brasilía ........................ 33:27
Frakkland – Ástralía.............................. 46:7
Danmörk – Þýskaland ......................... 25:26
Þýskaland 6, Suður-Kórea 5, Frakkland
3, Danmörk 3, Brasilía 1, Ástralía 0.
C-RIÐILL:
Ungverjaland – Svartfjallaland .......... 24:25
Spánn – Senegal ................................... 29:20
Rúmenía – Kasakstan .......................... 22:20
Spánn 6, Svartfjallaland 6, Rúmenía 4,
Ungverjaland 2, Senegal 0, Kasakstan 0.
D-RIÐILL:
Rússland – Kongó ................................ 34:13
Kína – Argentína .................................. 28:34
Svíþjóð – Japan..................................... 34:26
Rússland 6, Svíþjóð 6, Japan 4, Argent-
ína 2, Kína 0, Kongó 0.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Ludwigshafen – Lemgo...................... 23:26
Bjarki Már Elísson skoraði 3 mörk fyrir
Lemgo.
Stuttgart – Kiel.................................... 34:35
Elvar Ásgeirsson skoraði ekki fyrir
Stuttgart.
Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá Kiel er frá
keppni vegna meiðsla.
Danmörk
Skjern – Skanderborg ........................ 29:24
Elvar Örn Jónsson skoraði 1 mark fyrir
Skjern og Björgvin Páll Gústavsson varði
ekki skot í markinu. Patrekur Jóhannesson
þjálfar liðið.
Efstu lið: Aalborg 23, Holstebro 19,
Skjern 19, Ribe-Esbjerg 17, Bjerringbro/
Silkeborg 16, SönderjyskE 16.
Svíþjóð
Redbergslid – Sävehof........................ 24:24
Ágúst Elí Björgvinsson varði 17 skot í
marki Sävehof.
1. deild kvenna
Njarðvík – Keflavík b........................... 63:64
Staðan:
Tindastóll 11 8 3 751:717 16
Keflavík b 9 6 3 638:614 12
Fjölnir 9 6 3 677:612 12
Njarðvík 11 6 5 699:625 12
ÍR 8 5 3 494:418 10
Hamar 9 1 8 503:611 2
Grindavík b 9 1 8 469:634 2
KÖRFUBOLTI
Norska kvennalandsliðið í hand-
knattleik, undir stjórn Þóris Her-
geirssonar, hélt áfram sigurgöngu
sinni á heimsmeistaramótinu í Japan
í gær og lagði Serba að velli, 28:25, í
hörkuleik í Kumamoto.
Leikstjórnandinn Stine Bredal
Oftedal og markvörðurinn Silja Sol-
berg voru í aðalhlutverki í norska
liðinu. Bredal Oftedal tók leikinn í
sínar hendur í seinni hálfleiknum og
Solberg hrökk í gang á sama tíma og
nær lokaði markinu á köflum eftir
hlé. Þær Bredal Oftedal og Emilie
Hegh Arntzen voru markahæstar í
norska liðinu með sjö mörk og Sol-
berg varði 13 skot. Kristina Liscevic
skoraði sex mörk fyrir Serba.
Allt bendir til þess að Noregur,
Holland og Serbía fari áfram úr A-
riðlinum. Þá bíður Þóris og hans
stúlkna gríðarsterkur milliriðill.
Þýskaland og Suður-Kórea virðast
vera á leiðinni þangað og heims-
meistarar Frakka eiga fyrir höndum
hálfgildings úrslitaleik gegn Dönum
um að komast áfram. Brasilía,
heimsmeistaraþjóðin frá 2013, er
líka í B-riðlinum og stendur þar
mjög höllum fæti.
Í hinn milliriðilinn fara Spánn og
Svartfjallaland úr C-riðli og Rúss-
land og Svíþjóð úr D-riðli. Heima-
konur í Japan virðast nokkuð örugg-
ar með þriðja sæti D-riðilsins en
Rúmenía og Ungverjaland eru í bar-
áttu um að fara áfram úr C-riðlinum.
Linn Blohm skoraði sjö mörk
fyrir Svía í sannfærandi sigri á Jap-
önum, 34:26.
Pauline Coatanea skoraði sjö
mörk fyrir Frakka í risasigri gegn
Áströlum, 46:7.
Julia Behnke skoraði sjö mörk
fyrir Þjóðverja í spennuþrungnum
sigri á Dönum, 26:25.
Jovanka Radicevic skoraði átta
mörk fyrir Svartfjallaland í mikil-
vægum sigri á Ungverjum, 25:24.
Alexandrina Cabral skoraði átta
mörk fyrir Spánverja í sigri á Sene-
gal, 29:20. vs@mbl.is
Gríðarsterkur
milliriðill bíður
Norska liðið vann Serba í hörkuleik
Ljósmynd/IHF
Ánægðar Norsku landsliðskonurnar fagna í leikslok eftir að hafa lagt Serba
að velli í hörkuleik í Kumamoto í gær. Þær mæta Angóla á morgun.
Tveir nýir aðstoðarþjálfarar eru
komnir til liðs við karlalið KA í
knattspyrnu og verða Óla Stefáni
Flóventssyni, þjálfara liðsins, til
halds og trausts. Hallgrímur
Jónasson, fyrirliði KA og fyrrver-
andi atvinnu- og landsliðsmaður,
kemur inn í teymið sem annar
aðstoðarþjálfaranna. Hinn er Pét-
ur Heiðar Kristjánsson, sem hefur
leikið með báðum Akureyrar-
félögunum og spilaði síðast með
Magna í 1. deild. KA endaði í 5.
sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu
leiktíð.
Hallgrímur og
Pétur aðstoða Óla
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Aðstoðarmaður Hallgrímur Jónas-
son verður aðstoðarþjálfari KA.
„Ég er farinn frá HB og nú er al-
gjör óvissa,“ sagði knattspyrnu-
maðurinn Brynjar Hlöðversson í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Brynjar hefur yfirgefið HB í
Færeyjum eftir tvö ár hjá félaginu.
Hann segir koma til greina að vera
áfram í færeysku deildinni. „Ég er
ekki búinn að loka á neitt. Mér leið
rosalega vel úti,“ sagði Brynjar.
Hann æfir hjá Val sem stendur en á
ekki von á samningstilboði frá fé-
laginu, þrátt fyrir að Heimir Guð-
jónsson, sem var þjálfari hans hjá
HB, sé tekinn við liðinu.
Æfir með Val
í algjörri óvissu
Morgunblaðið/Hanna
Fyrirliði Brynjar Hlöðversson lék
með Leikni R. áður en hann hélt út.
Manchester City stökk upp fyrir
Leicester og upp í annað sæti ensku
úrvalsdeildarinnar í fótbolta með
4:1-útisigri á Burnley í gærkvöldi.
City var mikið sterkari aðilinn allan
leikinn og var með boltann tæplega
80 prósent af leiknum.
Í fjarveru Sergio Agüero skoraði
Gabriel Jesus tvívegis framhjá Nick
Pope í marki Burnley og þeir Rodri
og Riyad Mahrez komust einnig á
blað. Robbie Brady skoraði sára-
bótarmark fyrir Burnley á 89. mín-
útu og þar við sat. City er nú átta
stigum frá toppliði Liverpool, sem
mætir Everton í stórleik á Anfield í
kvöld. Jóhann Berg Guðmundsson
lék ekki með Burnley vegna
meiðsla en hann er væntanlegur
aftur á völlinn innan skamms.
Crystal Palace fór upp í fimmta
sætið með 1:0-heimasigri á Bourne-
mouth. Jeffrey Schlupp skoraði
sigurmarkið á 76. mínútu, þrátt fyr-
ir að Palace hafi leikið manni færri
í rúmar 70 mínútur. Mamadou
Sakho fékk beint rautt spjald á 19.
mínútu en það kom ekki að sök.
AFP
Tvenna Gabriel Jesus skoraði tvö mörk fyrir Man. City gegn Burnley.
Meistararnir miklu
sterkari í Burnley
Átta Íslendingar með ólympíu-
farann Anton Svein McKee fremst-
an í flokki eru mættir til Glasgow í
Skotlandi þar sem keppni á
Evrópumeistaramótinu í 25 metra
laug hefst í dag.
Anton er líklegastur til afreka af
íslensku keppendunum og ætti að
eiga ágæta möguleika á að komast í
úrslit í 100 og 200 m bringusundi.
Þá verður fróðlegt að sjá hvert
Eygló Ósk Gústafsdóttir er komin í
sínu uppbyggingarferli.
Mótið stendur yfir í fimm daga en
undanrásir hefjast klukkan 9.30 og
úrslitahlutar klukkan 17 alla dag-
ana. Íslendingarnir keppa í 21 ein-
staklingsgrein og fimm boðsundum
á mótinu.
Anton Sveinn McKee keppir í
50 m bringusundi í dag, 200 m
bringusundi á morgun og 100 m
bringusundi á föstudaginn.
Dadó Fenrir Jasminuson
keppir í 50 m skriðsundi á föstudag
og 100 m skriðsundi á laugardag.
Eygló Ósk Gústafsdóttir
keppir í 100 m baksundi í dag, 200
m baksundi á föstudag og 50 m bak-
sundi á laugardag.
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir
keppir í 50 m flugsundi á morgun,
50 m baksundi á laugardag og 50 m
skriðsundi á sunnudag.
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir
keppir í 50 m flugsundi og 100 m
skriðsundi á morgun og í 50 m
skriðsundi á sunnudag.
Kolbeinn Hrafnkelsson keppir
í 4x50 m skriðsundi í dag og 4x50 m
fjórsundi á sunnudag. Flestallir ís-
lensku keppendurnir munu taka
þátt í boðsundsgreinunum.
Kristinn Þórarinsson keppir í
200 m fjórsundi á föstudag, 100 m
fjórsundi á laugardag og 50 m bak-
sundi á sunnudag.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir
keppir í 100 m skriðsundi á morg-
un, 200 m skriðsundi á laugardag
og 50 m skriðsundi á sunnudag.
Þjálfarar íslenska liðsins eru
Mladen Tepavcevic og Bjarney
Guðmundsdóttir. Tveir íslenskir
dómarar verða við störf á mótinu,
þeir Björn Valdimarsson og Sig-
urður Óli Guðmundsson. vs@mbl.is
Átta Íslendingar
eru mættir á EM
Ljósmynd/Simone Castrovillari
Glasgow Anton Sveinn McKee
keppir strax í dag á EM í 25 m laug.