Morgunblaðið - 11.12.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.12.2019, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019 SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR-LAUSU Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Óveðrið sem gekk yfir landið í gær er síður en svo það fyrsta sem lands- menn þurfa að þola og væntanlega ekki það síðasta. Stórir hvellir koma með reglulegu millibili, gjarnan á þriggja til fjögurra ára fresti. Lyk- ilatriði virðist að búa sig vel undir slíkt veður en sú hefur ekki alltaf verið raunin eins og sést á eftirfar- andi samantekt. Mikið tjón hefur orðið í óveðrum síðustu áratugi. Hræddir ferðamenn í ofsaveðri Ofsaveður skall á landinu fyrir réttum fjórum árum, hinn 7. desem- ber 2015. Mikið tjón varð í Vest- mannaeyjum og á Suðurlandi. Raf- magn fór af víða á landinu og farsímasendar duttu út. Alls tóku 846 björgunarsveitamenn þátt í 434 verkefnum meðan veðrið gekk yfir. Ísólfur Gylfi Pálmason, sveit- arstjóri í Rangárþingi eystra, sagði í samtali við mbl.is að hræðsla hefði gripið um sig á meðal fólks vegna veðursins. „Það var til dæmis fólk frá Nýja-Sjálandi sem hafði hreiðrað um sig í bíl við bókasafnið hér á Hvols- velli. Þau voru gríðarlega skelkuð og starfsmenn áhaldahússins hjá okkur komu þeim í skjól. Ég hitti þau í morgun og þau voru full þakklætis. Þau höfðu verið verulega skelkuð í gær og vissu ekki hvaðan á þau stóð veðrið í orðsins fyllstu merkingu.“ Fólk tókst á loft við Höfðatorg Mikið illviðri olli landsmönnum ama í byrjun nóvember árið 2012. Hlaut það nafnið Höfðatorgsveðrið sökum mikilla vindstrengja sem mynduðust við háhýsin þar sem þá höfðu nýlega verið reist. Dæmi voru um að fólk tækist á loft í mestu hvið- unum við Höfðatorg. Í Turninum í Kópavogi fóru nokkrir starfsmenn heim um hádegi þar sem þeir fundu fyrir sjóveiki vegna hvassviðrisins. Í umfjöllun Morgunblaðsins kom fram að samgöngur á lofti, á láði og legi hafi meira að minna farið úr skorðum í norðanstormi. Á sunnan- og vestanverðu landinu lokaði hvass- viðrið vegum en fyrir norðan og aust- an glímdi fólk við mikið fannfergi. Á Vestfjörðum hvort tveggja. Verulegt eignatjón varð bæði á höfuðborg- arsvæðinu og Suðurlandi. Sumarhús fauk af plani Húsasmiðjunnar í Graf- arholti og stöðvaði umferð um tíma. Gróðurhúsalægðin gleymist seint Hinn 3. febrúar 1991 geisaði fár- viðri og tugþúsundir Íslendinga urðu fyrir tjóni af völdum þess. Langbylgj- umastur á Vatnsendahæð hrundi, sumarbústaður í Önundarfirði fauk út á haf í heilu lagi og fjárhús splundraðist. Neyðarástand var í Vestmannaeyjum og Keflavík. Hefur þetta stundum verið nefnt Gróður- húsalægðin með vísan til tjónsins. „Engin alvarleg slys urðu á fólki, en gífurlegt eignatjón varð um sunn- an, vestan- og norðanvert land á sunnudag í einhverju mesta fárviðri sem gengið hefur yfir í manna minn- um. Guðjón Petersen, fram- kvæmdastjóri Almannavarna rík- isins, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi telja að eignatjón á landinu gæti numið á annan milljarð króna, en skýrsla Al- mannavarna verður rædd á rík- isstjórnarfundi í dag,“ sagði á forsíðu Morgunblaðsins þriðjudaginn á eftir. „Nokkur hús til sjávar og sveita eyðilögðust og mjög mörg skemmd- ust meira eða minna. Þakplötur og annað lauslegt fauk eins og skæða- drífa um allt og tré rifnuðu víða upp með rótum. Lögreglu- og slökkviliðs- menn, björgunarsveitir og aðrir sjálfboðaliðar lögðu sig víða í mikla hættu við að bjarga verðmætum. Veðrið skall á á sunnanverðu landinu á tíunda tímanum og fór norðureftir. Tíu mínútna meðalvindhraði á Stór- höfða í Vestmannaeyjum mældist 110 hnútar og hefur Veðurstofan aldrei mælt meiri vindhraða hér á landi. Á flestum þéttbýlisstöðum og nær öllum sveitabæjum á óveðurssvæð- inu urðu einhverjar skemmdir. Víða horfði fólk til sveita á útihús takast á loft og jafnvel springa í tætlur undan veðurofsanum. Sauðfé drapst þegar það lenti undir húsarústum. Gróð- urhús eyðilögðust víða á Suður- og Vesturlandi. Flugvélar og bátar eyði- lögðust, eða urðu fyrir skemmdum, fjórir byggingarkranar og tugir bíla eyðilögðust og hundruð bíla skemmd- ust. Í Reykjavík hafa orðið mestu gróðurskemmdir sem sögur fara af. Lauslegt mat í gærkvöldi benti til þess að allt að þriðjungur þeirra ein- staklinga, sem urðu fyrir tjóni af völdum fárviðrisins, hefði verið ótryggður,“ sagði í umfjölluninni. Hörmuleg nótt í Engihjalla Dagana 16.-17. febrúar 1981 skall mikið óveður á landinu og hlaut það síðar nafnið Engihjallaveðrið. Þessi veðurofsi er mörgum enn í fersku minni enda fórust tveir menn af bátn- um Heimaey þegar þá tók út og Stað- arhólskirkja í Saurbæ í Dölum fauk af grunni sínum og lenti á félagsheim- ilinu við hliðina. Lýsingar á því hvern- ig bílar þeyttust til og frá í Hjalla- hverfinu í Kópavogi, sem þá var að byggjast upp, eru hreint ótrúlegar. Blaðamenn Morgunblaðsins kynntu sér aðstæður í Engihjallanum þegar veðrinu slotaði: „Bílar tókust á loft og fuku, svo skipti tugum metra, bílaraðir klesstust saman, þakplötur losnuðu mjög víða og nokkuð var um rúðubrot. Húsmæður í Engihjalla í Kópavogi sögðust hafa átt vægast sagt hörmulega nótt. Stórar íbúða- blokkir standa við Engihjalla, og í austari endum þeirra hélst fólkið ekki við og flýði í vestari hlutann. Það hvein í öllu og rúður svignuðu, húsin nötr- uðu og skulfu, jafnvel á neðstu hæð- um. – Það varð engum svefnsamt í Engihjallanum, meðan versta veðrið gekk yfir, sagði ung kona við blm. Mbl.“ Rætt var við Sigtrygg Jónsson, framkvæmdastjóra hjá Bygging- arsamvinnufélagi Kópavogs, sem á þessum tíma var að reisa stórt fjöl- býlishús í Engihjalla 25. Þaðan höfðu fokið vinnupallar, stórir og þungir, langar leiðir. Fjöldi þeirra eyðilagðist og margir vinnupallar stórskemmdu bifreiðir á bílastæði við götuna. „Þegar við íbúarnir höfðum barist út að bílunum, upp úr kvöldmatarleyt- inu í gærkvöldi – ætluðum að færa þá til – þá urðu allt upp tíu manns að sitja í bílunum og hanga á þeim, svo þá tæki ekki á loft. Við sátum fimm í mín- um bíl, meðan við færðum hann, og tveir héngu utan á. Svo strengdum við kaðal milli húsa til að komast að bíl- unum, og fyrir rest skriðum við – það var ekki um annað að ræða. Í rauninni var stórhættulegt að vera utandyra,“ sagði Sigtryggur. Sumarhús, kirkja og fólk á flugi  Mörg dæmi eru um aftakaveður hér á landi síðustu áratugina  Fólk tókst á loft við Höfðatorg  Hús eyðilögðust til sjávar og sveita í Gróðurhúsalægðinni  Bílar þeyttust til og frá í Engihjalla 1981 Morgunblaðið 18. febrúar. 1991 Morgunblaðið 5. febrúar. 2012 Morgunblaðið 3. nóvember. 2015 Morgunblaðið 8. desember. „Því fyrr sem við sendum út til- kynningar, þeim mun betra. Þær hefðu mátt fara út fyrr, en veðrið kom okkur í opna skjöldu,“ sagði Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðs- stjóri á höfuðborgarsvæðinu, eftir mikinn veðurhvell í mars 2013. Miðvikudaginn 6. mars það ár fóru samgöngur úr skorðum um allt land þegar lægð gekk inn á landið. Var þetta versti veð- urhvellur á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2000. Verst var ástandið á höfuðborgarsvæðinu þar sem um- ferðarþunginn var mestur. Aðal- leiðir tepptust vegna umferðar- óhappa og ökutækja sem ekki komust leiðar sinnar vegna skaf- rennings og féllu strætisvagnaferð- ir niður með öllu. Alls voru 64 snjó- ruðningstæki á götunum. Um 150 til 200 björgunarsveit- armenn voru að störfum á höf- uðborgarsvæðinu, auk annars hjálparliðs, m.a. við að aðstoða fólk í ófærðinni. Aðalleiðum út frá höf- uðborginni var lokað vegna veður- ofsans. Á Vestur- og Norðurlandi var stórhríð en mesta hvassviðrið syðst á landinu þar sem rúður brotnuðu í húsum og bílum. khj@mbl.is Morgunblaðið/Golli Ófærð Starfsmenn Landhelgisgæslunnar og sjúkraflutningamenn voru meðal þeirra sem aðstoðuðu ökumenn á götum borgarinnar í mars 2013. Samgöngur fóru úr skorðum um allt land  Veðurhvellur í marsmánuði 2013 Óveður á aðventu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.