Morgunblaðið - 11.12.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Til jóla fyrir dömur og herra
Gjafakassar | Ilmir | Treflar | Silkislæður | Töskur
Hanskar | Skart | Peysur | Buxur | Velúrgallar
1988 - 2018
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Framkvæmdir standa yfir við
CenterHótel Granda á Seljavegi í
Vesturbæ Reykjavíkur. Það verður
steinsnar frá fyrirhuguðu íbúða-
hverfi við Vesturbugt við Slippinn.
Kristófer Oli-
versson, fram-
kvæmdastjóri og
eigandi Center-
Hótelakeðjunnar,
segir áformað að
opna hótelið í
maí. Það eigi eftir
að ákveða hvort
tekin verða í
notkun 147 eða
195 herbergi í
upphafi.
Á hótelinu verði veitingastaður,
bar, kaffihús og önnur þjónusta.
Síðar eru áform um að bjóða upp á
spa og aðra þjónustu á hótelinu.
Átti að opna í desember
Hótelið er í gamla Héðinshúsinu,
sem hefur verið endurbyggt og
hækkað. Upphaflega stóð til að taka
1. áfanga í notkun í þessum mánuði.
Hér á síðunni má sjá nýjar teikn-
ingar hönnuða af hótelinu sem mun
gera mikið fyrir götumyndina.
Kristófer segir aðspurður að upp-
byggingin hafi gengið samkvæmt
áætlun. Það hafi komið í ljós að
skipta þurfti um alla glugga í húsinu
og klæða það að utan. Byrjað sé að
taka á móti bókunum fyrir næsta
sumar. Varðandi framhaldið segir
Kristófer útlit fyrir samdrátt í ís-
lenskri ferðaþjónustu næstu mánuði
frá fyrra ári. Hins vegar líti betur út
með bókanir næsta sumar.
Fullbyggt verður hótelið með 195
herbergjum og því annað stærsta
CenterHótelið, næst á eftir Center-
Hótel Plaza en þar eru 255 herbergi.
Grandi verður áttunda Center-
Hótelið en keðjan tók sjöunda hót-
elið í notkun á Laugavegi í ágúst sl.
Ný götumynd Timburhúsin til vinstri eru nýbyggingar. Hótelið verður til hægri.
Teikningar/Bastian Bajer hjá Fractalmind
Í smíðum CenterHótel Grandi verður annað stærsta hótelið í keðjunni.
Stórhýsi Svona gæti hótelið litið út horft frá gatnamótum Seljavegar og Vesturgötu.
Opna hótel á Granda í maímánuði
CenterHótelin taka 8. hótelið í keðjunni í notkun í maí
Til stóð að taka 1. áfanga í notkun í þessum mánuði
Hótel Horft eftir Seljavegi í norður.
Kristófer
Oliversson
Áformað er að opna nýtt 150 her-
bergja Courtyard By Marriott-hótel
við Aðaltorg við Keflavíkurflugvöll í
febrúar eða mars.
Árni Valur Sólonsson, sérleyfis-
hafi fyrirhugaðs hótels, staðfestir
þetta. Verkefnið hafi eitthvað
tafist en stefnt sé að því að taka
öll herbergin í notkun samtímis. Á
hótelinu verður veitingastaður,
fundarsalir og önnur þjónusta.
Árni Valur segir hótelið munu
laða að ferðamenn sem skipta nær
eingöngu við Marriott-hótelin.
Marriott-Edition-hótelið við Hörpu
muni líka draga að nýja kúnna.
„Töluverður hluti bókana hjá
okkur á Aðaltorgi er í gegnum
samninga Marriott við bandarísku
ríkisstjórnina,“ segir Árni Valur.
Hvað snertir ganginn í ferða-
þjónustunni á Íslandi kveðst Árni
Valur hafa trú á að eftirspurnin
muni aukast. Þá bendir hann á að
þrengst hafi að aðgengi að lánsfé
hjá bönkunum til uppbyggingar í
ferðaþjónustu. Erfitt sé að fjár-
magna ný verkefni í greininni.
Hótelið er sett saman úr full-
innréttuðum stáleiningum frá
Kína. Upplýsingar um það eru
komnar á vef Marriott-hótelanna
en það heitir Courtyard By Mar-
riott Reykjavík Keflavik Airport á
ensku. Hótelið er þegar opið fyrir
sölu á vefsíðu Marriott í maí 2020.
Byrjað að taka við bókunum
FLUGVALLARHÓTEL Í MARRIOTT-KEÐJUNNI
Við Aðaltorg Skjáskot af vefmyndavél á adaltorg.is sýnir ganginn í verkinu.
Brokkkórinn, hópur fólks sem
samanstendur af áhugafólki um
hestamennsku og útivist alls staðar
af höfuðborgarsvæðinu og hefur að
auki gaman af söng, blæs nú til ár-
legra jólatónleika í kvöld mið-
vikudagskvöld kl. 20 í Seljakirkju í
Breiðholti. Þau ætla að eiga notalega
kvöldstund með gestum sínum þar
sem kórinn flytur jólalög í bland við
dægurlög undir stjórn hins eina
sanna Magnúsar Kjartanssonar.
Færeyski meistarinn Jógvan Han-
sen ætlar að heiðra samkomuna með
nærveru sinni og syngja nokkur lög.
Að loknum tónleikum bera kór-
meðlimir fram heitt súkkulaði með
rjóma og sitthvað að narta í sem er
innifalið í miðaverði.
Húsið er opnað kl. 19:30 en tón-
leikar hefjast kl. 20. Miðasala verður
við innganginn og miðaverði verður
sem áður stillt í hóf og vert að taka
fram að ókeypis er fyrir börn 12 ára
og yngri. Allir hjartanlega velkomn-
ir.
Morgunblaðið/Eggert
Innlifun Jógvan að syngja í Söngvakeppni Sjónvarpsins fyrir nokkru.
Jógvan verður gestur
Brokkkórsins í kvöld
Boðið upp á heitt súkkulaði og góðgæti