Morgunblaðið - 11.12.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.12.2019, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019 Opið virka daga kl. 10-18, lokað laugardaga Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi Nýjar vörur Sjálandi. Þriðja eiginkona Jóhann- esar var Anna Kristín Hansdóttir ökukennari, þau skildu. Anna Kristín á ellefu uppkomin börn. Sonur Jóhannesar er 1) Sturla, f. 23.9. 1963, kokkur og fram- kvæmdastjóri, búsettur í Garðabæ. Börn Jóhannesar og Kristrúnar eru: 2) Ari, f. 12.7. 1964, matvæla- fræðingur og framkvæmdastjóri, búsettur í Reykjavík; 3) Ásgerður, f. 30.9. 1967, hárgreiðslumeistari og meðferðarfulltrúi, búsett í Reykjavík; 4) Ingvar Þór, f. 2.7. 1970, verksmiðjustjóri í Argentínu. Systkini Jóhannesar: Arnfríður Aradóttir f. 21.6.1930, húsmóðir í Reykjavík; Einar Þór Arason, f. 15.8. 1935, d. 10.9. 2005, lögreglu- þjónn og verktaki á Keflavíkur- flugvelli, Karl Ketill Arason f. 11.2. 1939, d. 26.4. 2013, verktaki á Keflavíkurflugvelli. Foreldrar Jóhannesar voru hjónin Ari Jóhannesson, f. 2.2. 1910, d. 20.11. 1986, yfirverkstjóri hjá Icelandair og einn af stofn- endum Svifflugfélags Akureyrar, bjó á Blönduósi, Akureyri, Kefla- vík og Kópavogi, og Ásgerður Ein- arsdóttir, f. 15.8. 1911, d. 14.11. 1992, húsmóðir. Jóhannes Arason Þórunn Björg Jakobsdóttir húsfreyja í Fögruhlíð og á Ljótsstöðum Gunnar Þorsteinsson bóndi í Fögruhlíð og á Ljótsstöðum við Djúpavog Þórstína Björg Gunnarsdóttir húsfreyja í Reykjavík Ásgerður Einarsdóttir húsfreyja í Kópavogi Loftur Einarsson framkvæmdastjóri og kaupmaður í Borgarnesi Guðbjörn Jóhannesson fangavörður í Rvík og fl . Einar Ólafsson matsveinn og verkamaður í Reykjavík Ásgerður Sigurðardóttir húsfreyja á Leirárgörðum og Stóru-Fellsöxl, síðar í Rvík Ólafur Jónsson bóndi á Leirárgörðum í Leirársveit og Stóru-Fellsöxl í Skilmannahr., Borg., síðar bús. í Rvík Ásgeir Ó. Einarsson héraðsdýralæknir Sigurlaug Jónsdóttir húsfreyja í Gröf og Hlíð Guðmundur Ketilsson bóndi í Gröf og Hlíð, Fellshr., Strand. Oddný Guðmundsdóttir yfi rsetukona og húsmóðir í Skálmardal og Hnífsdal Jóhannes Guðmundsson bóndi í Skálmardal í Múlasveit, A-Barð. og síðar sjómaður í Hnífsdal Ingibjörg Jóhannesdóttir húfreyja á Illugastöðum Guðmundur Ketilsstöðum bóndi á Illugastöðum í Múlasveit Úr frændgarði Jóhannesar Arasonar Ari Jóhannesson yfi rverkstjóri hjá Flugfélagi Íslands og Icelandair Foreldrarnir Heiðurshjónin í Neðstutröð, Ari og Ása. „ÞEGAR ÉG SEGI „ÞRÍR” VAKNIÐ ÞIÐ ÖLL FERSK OG AFSLÖPPUÐ – OG HAFIÐ ENGAR ÁHYGGJUR AF PERSÓNUMÖRKUM NÉ EINKALÍFI.” „HVENÆR ÆTLA ÞEIR AÐ KOMA OG LAGA SJÓNVARPIÐ?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera þakklát fyrir allt sem þið njótið. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HVERNIG ER ÞAÐ AÐ VERA GAMALL? ÉG ER EKKI GAMALL! AFSAKAÐU … ÉG SKAL UMORÐA ÞETTA TAKK SÍÐAN HANN BAR FRAM BAUNIR Í MORGUNMAT! HVERNIG ER AÐ VERA Í HELBERRI AFNEITUN? VÁ! SÍÐAN HVENÆR HEFUR ÞÚ VILJAÐ FARA FYRSTUR UPP STIGANN? NEI! LEYFÐU MÉR AÐ FARA Á UNDAN! Sá góðkunni leikari HallgrímurÓlafsson sendi vini sínum Pétri Blöndal afmæliskveðjur 6. desem- ber sl.: Þú öndvegis afmælisdrengur berð aldurinn „svona eins og gengur“ Þó eins og sést þykir mér best að þú endist hér örlítið lengur Guðmundur Arnfinnsson birti þetta gullfallega og rómsterka kvæði „Hafið“ á Boðnarmiði: Hafið rótt við hinsta geislann hnígur rautt sem blóð. Stundum er það steyttur hnefi, stundum vögguljóð. Stundum, þegar straumar rísa, stormur yfir hvín, ber það ásýnd barns, sem grætur brotnu gullin sín. Stundum er það stillt og dreymið, stígur mjúkan dans, ofið þáttum óróleikans eins og hjarta manns. Hafið ólgar, hafið freyðir, heillar vaska menn, Byltir sér við bjargsins rætur blítt og tryllt í senn. Davíð Hjálmar í Davíðshaga skrifaði í Leirinn á sunnudag: „Rjúpnaveiðum er lokið þennan vet- urinn. Sá frétt um þetta á vefnum“: Á Moggavefnum koma furðufréttir, flestir blaðamanna virðast þéttir. Útúrfullir! Enginn trúað getur að aldrei týndist rjúpnaskytta í vetur. Friðrik Steingrímsson segist hafa tapað póstinum frá Davíð Hjálmari um lukkuna sem fylgdi rjúpna- skyttum þessa árs: Engir týndust upp um fjöll eða lágu í roti, sagan mun þó ekki öll því einn varð fyrir skoti. Á Boðnarmiði segir Pétur Stef- ánsson að enn lifi í gömlum glæð- um: Þrái stöðugt ást og yl frá yndislegum maka. Hef ég ennþá heilsu til holdsins glímutaka. Bjarni Sigtryggsson segir að loknum lestri bókar um heilsufar að hann treysti sér til að koma inni- haldi hennar til skila í fjórum línum: Þótt leynist í hugskoti lægðir og líkamann skorti þor ef daglega hafa menn hægðir er harla góð lífsganga vor. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Afmæliskveðjur og af rjúpnaveiðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.