Morgunblaðið - 17.12.2019, Blaðsíða 1
Ljósmynd/Bjarni Gunnarsson
Samvera Tæplega 400 manns tóku þátt í samverustund í Dalvík í gærkvöldi en þar voru einkum komnir saman
viðbragðsaðilar og aðrir sem staðið hafa í ströngu undanfarna viku í kjölfar óveðursins sem gekk yfir landið.
Höskuldur Daði Magnússon
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Hjörtur J. Guðmundsson
Enn er víða unnið að viðgerðum á
raflínum í kjölfar ofsaveðursins sem
gekk yfir í liðinni viku og eftirkasta
þess. Ljóst er orðið að óveðrið olli
miklu tjóni þótt ekki hafi enn gefist
tími til að meta það til fulls.
„Við vitum að tjón hleypur vænt-
anlega á hundruðum milljóna. Nú er-
um við að bjarga rafmagni. Kostn-
aður er að hlaðast upp en við tökumst
á við hann seinna. Það er sömuleiðis
mikið tjón hjá viðskiptavinum okkar.
Við munum skoða þetta tjón betur
síðar,“ segir Tryggvi Þór Haralds-
son, forstjóri Rarik, í samtali við
Morgunblaðið.
Rafmagn fór af í Skagafirði í gær-
morgun. Í fyrrinótt var unnið að
hreinsun á tengivirki í Hrútatungu.
Undir morgun í gær fór virkið aftur
út vegna seltu. Virðist sem högg hafi
komið á kerfið í kjölfarið og sló meðal
annars út á Sauðárkróki og Hofsósi.
Varaaflið bjargaði hitanum
Þrátt fyrir rafmagnsleysið í síð-
ustu viku var heitt í öllum húsum í
Skagafirði ólíkt því sem gerðist víða
annars staðar þar sem rafmagnslaust
varð. Ástæða þess er að varaaflstöðv-
ar hafa verið í öllum dælustöðvum
Skagafjarðarveitna frá upphafi.
Í gær voru enn keyrðar díselvélar
á Dalvík, fjórar frá Rarik og ein í
varðskipinu Þór. Sama gilti með
Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakkafjörð og
fleiri staði.
Í tilkynningu bað Rarik notendur
sem tengdir eru varaafli að spara raf-
magn eins og unnt er. Mun Rarik
þurfa að keyra varaafl þangað til búið
er að gera við flutningskerfi Lands-
nets. Einhverja daga mun taka að
lagfæra bilanir og áfram má búast við
rafmagnstruflunum. Þá kann að vera
að gripið verði til þess að skammta
rafmagn.
Fjölmenn samverustund var hald-
in á Dalvík í gærkvöldi, sem áætlað
er að tæplega 400 manns hafi sótt,
þar sem saman komu fjölmargir
björgunarsveitarmenn, starfsmenn
Rarik og Landsnets, starfsmenn
veitna og annarra stofnana hjá Dal-
víkurbyggð, áhöfn varðskipsins Þórs,
lögreglumenn, íbúar og starfsmenn
fjölmargra fyrirtækja í Dalvíkur-
byggð og nágrenni auk annarra sem
lagt hafa hönd á plóg við ýmis krefj-
andi verkefni undanfarna viku.
Bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar,
Katrín Sigurjónsdóttir, hélt ræðu
þar sem hún þakkaði öllum við-
bragðsaðilum sem og íbúum og
starfsmönnum sveitarfélagsins fyrir
óeigingjarnt vinnuframlag sem í
sumum tilfellum sér ekki fyrir end-
ann á.
Tjónið hleypur á
hundruðum milljóna
Viðgerðir munu taka einhverja daga og áfram má búast við rafmagnstruflunum
MKerfið enn viðkvæmt »2
Þ R I Ð J U D A G U R 1 7. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 296. tölublað 107. árgangur
Hurðaskellir kemur í kvöld
7dagartil jóla
jolamjolk.is
SKEMMTILEGT
LJÓÐSKÁLD Á
GATNAMÓTUM
SNJÓNUM KYNGIR NIÐUR
ROLLS ROYCE
PRUFU-
KEYRÐUR
MOKAÐ Á AKUREYRI 10 BÍLAR 16 SÍÐUR29
John Snorri Sigurjónsson fjalla-
maður hóf í gærkvöldi 28 klukku-
stunda langa æfingu á Esjunni.
Hann hélt í sína fyrstu ferð upp
fjallið klukkan 18 og ætlar sér að
ganga alls fjórtán ferðir viðstöðu-
laust upp og niður Esjuna þar til
æfingu lýkur klukkan 22 í kvöld.
Þetta er opin æfing og er öllum
frjálst að slást í för með fjalla-
garpinum, sem býr sig nú undir
að fara til Pakistans í janúar
næstkomandi og reyna þar að
verða fyrsti maðurinn til þess að
klífa tind K2 að vetrarlagi.
Strekkingsvindur var við Esju-
rætur en John Snorri lét það lítið
á sig fá.
14 sinnum
upp og niður
Esjuna
Morgunblaðið/Eggert
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra segir dómnefnd
vegna umsækjenda um dóm-
arastöðu við Hæstarétt viðhafa
aðra nálgun en í Landsréttar-
málinu. „Nálgunin er önnur en þeg-
ar nefndin skilaði af sér í Lands-
rétti og umsögnin er líka öðruvísi
uppbyggð,“ segir Áslaug Arna.
Með því tekur hún undir sam-
bærileg sjónarmið Sigríðar Á.
Andersen, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, sem telur dóm-
nefndina hafa horfið frá áherslu á
reiknilíkan sem kom við sögu við
val á dómurum í Landsrétt.
Nefndin raðaði 33 umsækjendum
um 15 dómarastöður við nýjan
Landsrétt eftir hæfni með reikni-
formúlu. Nefndin virðist nú hafa
horfið frá þeirri aðferðafræði.
Þannig vísa nefndarmenn til
gagnrýni umboðsmanns Alþingis á
reikniaðferðina, ásamt því sem þeir
telja sig ekki vera bundna af notk-
un hennar við fyrri störf. »4
Horfið frá reiknileið
í dómaravali
Boeing tilkynnti
í gærkvöldi að
fyrirtækið myndi
stöðva fram-
leiðslu á Boeing
737 MAX-
þotunum tíma-
bundið í upphafi
næsta árs, en
ekki er sagt hve-
nær fyrirtækið
gerir ráð fyrir að
hefja framleiðsluna aftur. Níu mán-
uðir eru frá því að vélarnar voru
kyrrsettar á heimsvísu eftir tvö slys
sem kostuðu mörg hundruð manns-
líf. Fyrirtækið segir að engum
þeirra 12.000 starfsmanna sem
vinna í verksmiðjum þess í grennd
við Seattle verði sagt upp.
Boeing 12.000 vinna
í verksmiðjunum.
Stöðva
framleiðslu
tímabundið
bbbbm