Morgunblaðið - 17.12.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.12.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2019 Sími 534 1500 | kiddi@kambstal.is | Íshellu 1, 221 Hafnarfirði Klippt & beygt kambstál fyrir minni og stærri verk Reynsla | gæði | þjónusta Í fréttum gærdagsins var sagtfrá því að gröf Reinhards Heydrichs nasistaforingja hefði verið opnuð.    Nasisminn sog-aði til sín de- líkventa og illmenni eins og vin í eyði- mörk dregur að sér þyrsta um langan veg. Það er ekki auðvelt að velja hver í þeim hópi standi hæst á verð- launapalli viðbjóða, en Reinhard Heyd- rich hefði örugg- lega komist í úrslit.    Heydrich rotnaðií ómerktri gröf, svo einhver með aðgang að leyndarmálum hefur verið að verki og ekki er enn vitað hver það var eða hvað honum gekk til.    Lengi hefur eins konar bann-helgi legið á minningu nas- istaforingja og helst ekki á Adolf Hitler minnst. Það hefur breyst og þeir sem fylgjast með fræðsluþátt- um og ekki síst meintum fræðslu- þáttum hljóta að undrast hinn mikla áhuga sem nú er á Hitler og hyski hans og hve oft er létt skaut- að hjá illsku, villimennsku og eyði- leggingu.    Nú, þegar öld er senn liðin fráupphafi valdaskeiðs Hitlers, er óhjákvæmilegt að um þá tíð sé fjallað, og um tilurð, skipulag, und- irrót, framkvæmd og skipbrot.    En það er lágmarkskrafa að íumfjölluninni sé ekki, stund- um eins og óviljandi, brugðið já- kvæðri slikju yfir ógeðið sem var eðli og einkenni fyrirbærisins. Fórnarlömbin og framtíðin eiga þá kröfu. Adolf Hitler Opin gröf, opin sár STAKSTEINAR Reinhard Heydrich Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Stjórn læknaráðs Landspítalans sendi í gær frá sér ályktun þar sem lýst er yfir áhyggjum af starfsskil- yrðum og vinnuálagi á læknum spít- alans. Minnt er á skýrslu McKinsey frá árinu 2016 sem hafi bent á mikil- vægi þess að taka mönnun klínískra starfstétta til endurskoðunar. „Fram kom í skýrslunni að læknar Landspítala sinntu fleiri heimsókn- um og innlögnum á hvert stöðugildi en erlend samanburðarsjúkrahús og að hlutfall lækna af heildarmannafla Landspítala væri lágt. Setja þarf upp viðmið fyrir hámarksfjölda sjúk- linga á hvern lækni sem gæðavísi fyrir þjónustu. Fari hlutfallið yfir ákveðin mörk skal grípa til viðeig- andi ráðstafana,“ segir m.a. í álykt- uninni. Læknaráð rifjar upp að það hafi á undanförnum árum ályktað um ýmis efni sem hafa valdið auknu álagi og stuðlað að minni starfsánægju meðal lækna. „Aukin umræða hefur verið um óhóflegt álag og í kjölfar þess kulnun í starfi sem hefur því miður gætt í vaxandi mæli meðal lækna. Læknaráð ítrekar því fyrri ályktanir um að mæta þurfi vaxandi eftirspurn eftir þjónustu spítalans með því að ráða fleiri lækna og bæta aðbúnað þeirra,“ segir læknaráð og vísar allri ábyrgð á hendur yfirvalda. Lýsa áhyggjum af álagi á lækna  Læknaráð LSH telur að ráða þurfi fleiri lækna og bæta starfsskilyrðin Morgunblaðið/Eggert Landspítalinn Læknar starfa undir miklu álagi á spítalanum. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Al- þingis, hefur kolefnisjafnað allar flugferðir sínar til og frá útlöndum á þessu ári úr eigin vasa. Vakin er at- hygli á framtak- inu á vef Alþingis þar sem segir að einstaklingar og fyrirtæki séu í auknum mæli far- in að sýna sam- félagslega ábyrgð með því að kol- efnisjafna flug- ferðir. Fjár- málaskrifstofa þingsins býður þingmönnum aðstoð sína við kolefn- isjöfnun og vísar á þá þrjá aðila hér á landi sem taka slíkt að sér, Kolvið, Votlendissjóð og Icelandair. Eru þingmenn hvattir til að nýta sér þetta. „Ég hef farið tíu sinnum til út- landa á þessu ári,“ segir Stein- grímur í samtali við Morgunblaðið. Kostnaður við kolefnisjöfnunina nemi rétt um tíu þúsund krónum fyrir allar ferðirnar. Hann er þeirrar skoðunar að þingið eigi ekki sjálft að borga þennan kostað. Best sé og sómi að því að þingmenn geri það sjálfir úr eigin vasa og sýni þannig í verki viðhorf sitt til mikilvægis um- hverfisverndar. Hann veit til þess að fleiri þingmenn hafi kolefnisjafnað ferðar sínar. Útreikningur á kolefnisjöfnun í flugferðum byggist á fjölda farþega og lengd flugferða. Á vef Icelandair kemur fram að kolefnisjöfnun flug- ferðar til og frá Kaupmannahöfn kosti t.d. um eitt þúsund krónur á farþega. Kostnaðurinn getur því vart talist neinum ofviða og það þótt flugferðir séu margar á hverju ári. Fyrir fjárhæðina eru gróðursett 5 tré sem mynda eiga mótvægi við los- un koltvísýrings út í andrúmsloftið. Sumir hafa talað um kolefnis- jöfnun af þessu tagi sem nútíma af- látsbréf gegn mengunarsyndum. Á vef fyrirtækisins Kolviðar er þessu hafnað með þeim orðum að kolefn- isjöfnun eigi ekkert skylt við synda- aflausn. „Við endurvinnum í auknum mæli það sem fellur til við neyslu, t.d. pappír, dósir og aðrar umbúðir. Í þessum sama anda vill Kolviður bjóða fólki að binda það kolefni sem fellur til við daglega neyslu. Sjóð- urinn hvetur til þess að sem mest sé dregið úr losun gróðurhúsaloftteg- unda en gerir sér grein fyrir að erf- itt er að koma í veg fyrir hana al- veg,“ segir þar. gudmundur@mbl.is Greiðir kolefnisjöfn- unina úr eigin vasa  Þingmenn hvattir til að jafna flugferðir Steingrímur J. Sigfússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.