Morgunblaðið - 17.12.2019, Page 10

Morgunblaðið - 17.12.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2019 Þú finnur fallegar og vandaðar jólagjafir hjá Eirvík Hvort sem þú leitar að litríkri og fallegri brauðrist í eldhúsið, sterkbyggðri matvinnsluvél sem er afkastamikill hjálparkokkur við eldamennskuna, endingargóðri ryksugu gæddri nýjustu tækninýjungum eða glæsilegri kaffivél sem hellir upp á nýmalað og dásamlegt kaffi, þá erum við með frábæra valkosti fyrir þig. Vöruúrval Eirvíkur er afar fjölbreytt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Kostnaður við snjómokstur á veg- um Akureyrarbæjar á þessu ári stefnir í að verða vel yfir fjárveit- ingum til verkefnisins í fjárhags- áætlun bæjarins. Snjó hefur kyngt niður í bænum undanfarna daga og teppt samgöngur og hafa snjó- moksturstækin nánast verið á fullri ferð allan sólarhringinn. Samkvæmt upplýsingum frá Dan Brynjarssyni, sviðsstjóra fjár- sýslusviðs, nemur gjaldfærður kostnaður við snjómokstur bæjar- félagsins á þessu ári um 140 millj- ónum króna. Inni í þeirri tölu er ekki mokstur- inn eftir hvellinn mikla í síðustu viku, en áætlað er að hann hækki upphæð- ina um nokkra tugi milljóna. Vísar Dan til þess að í febrúar á þessu ári þegar mikið snjóaði í bænum hafi kostnaður við mokstur numið rúmum 66 milljónum króna. Telur hann ekki ólíklegt að álíka kostnaður sé fallinn á bæinn í des- ember þótt mánuðurinn sé ekki nema hálfnaður. Í fjárhagsáætlun Akureyrar fyr- ir þetta ár var gert ráð fyrir 177 milljónum króna til snjómoksturs. 40 tæki við snjómokstur Snjómokstur hefur verið stór út- gjaldaliður hjá Akureyrarbæ und- anfarin ár. Árið 2015 nam raun- kostnaður við verkefnið tæplega 143 milljónum króna, lækkaði síð- an 2016 og 2017 í um 110 og 94 milljónir króna, en hækkaði aftur 2018 í um það bil 165 milljónir króna. Um 50 manns hafa unnið við snjómoksturinn undanfarna daga og eru notuð til þess hátt í 40 snjó- ruðningstæki. Mikilvægar leiðir í forgangi Fram kemur á heimasíðu Akur- eyrarbæjar að megináhersla sé lögð á að halda helstu stofn- og tengibrautum, strætisvagnaleiðum og aðgengi að neyðarþjónustu eins opnu og kostur er. Einnig er lögð áhersla á helstu göngu- og hjóla- stíga milli bæjarhluta og leiðir sem liggja að skólum, leikskólum, strætóbiðstöðvum og helstu stofn- unum bæjarins, til dæmis öldrun- arheimilum og þjónustukjörnum. 50 manns við snjómokstur  Kostnaður við snjómokstur á Akureyri orðinn meiri en fjárveitingar ársins  Áhersla lögð á að halda mikilvægustu samgönguleiðum innan bæjarins opnum Kostnaður við snjómokstur á Akureyri Milljónir króna 2015 til 2019* 200 175 150 125 100 75 50 25 0 2015 2016 2017 2018 2019 Kostnaður fram að byrjun desember 142,6 110,0 93,8 164,6 140,5 *Kostnaður við mokstur síðustu viku ekki meðtalinn. Heimild: Akureyrarbær. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Akureyri 50 manns á 40 tækjum hafa unnið við snjómokstur í bænum. Um tíma voru snjóþyngslin slík að þorri bæjarbúa þurfti að halda sig innandyra. Dan Brynjarsson Umsóknarfrestur um tvö prests- embætti í Garða- og Saurbæjar- prestakalli er runninn út. Biskup Íslands auglýsti á dög- unum embættin tvö laus til umsókn- ar. Annars vegar var auglýst eftir almennum presti og hins vegar presti með áherslu á æskulýðs- og barnastarf. Umsækjendur voru beðnir um að tilgreina um hvort starfið væri sótt, annað eða bæði. Þessi sóttu um hið almenna preststarf: Séra Haraldur Örn Gunnarsson, sr. Jónína Ólafsdóttir og sr. Sigríður Munda Jónsdóttir. Um bæði embættin sóttu: Séra Gunnar Jóhannesson, sr. Ursula Árnadóttir, Ægir Örn Sveinsson guðfræðingur og Þóra Björg Sig- urðardóttir guðfræðingur. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. febrúar 2020. Garða- og Saurbæjarprestakall varð til með sameiningu sókna. Því tilheyra Akranes og nágrannasókn- ir, Innra-Hólms-, Leirár- og Saur- bæjarsókn. Sóknarprestur er sr. Þráinn Haraldsson. sisi@mbl.is Sjö vilja þjóna á Akranesi Ljósmynd/kirkjan.is Akraneskirkja Sjö manns sækjast eftir að þjóna Skagamönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.