Morgunblaðið - 17.12.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2019
17. desember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.24 122.82 122.53
Sterlingspund 163.67 164.47 164.07
Kanadadalur 92.85 93.39 93.12
Dönsk króna 18.275 18.381 18.328
Norsk króna 13.568 13.648 13.608
Sænsk króna 13.082 13.158 13.12
Svissn. franki 124.23 124.93 124.58
Japanskt jen 1.1138 1.1204 1.1171
SDR 169.1 170.1 169.6
Evra 136.59 137.35 136.97
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 164.935
Hrávöruverð
Gull 1470.6 ($/únsa)
Ál 1762.5 ($/tonn) LME
Hráolía 64.56 ($/fatið) Brent
● Eimskipafélagi Íslands hefur borist
síðara andmælaskjal frá Samkeppn-
iseftirlitinu (SKE) og hefur félagið nú
fyrst fengið í hendur með tæmandi
hætti þær ásakanir sem á það eru born-
ar að því er fram kom í tilkynningu fé-
lagsins til Kauphallar. Skjalið felur í sér
frummat eftirlitsins en ekki bindandi
stjórnvaldsákvörðun og er liður í máls-
meðferð rannsóknarinnar sem staðið
hefur yfir í tæpan áratug en ætlað
brotatímabil nær frá árinu 2008 til
2013. Í yfirliti SKE segir að það telji að
fyrir hendi hafi verið „ætlað ólögmætt
samráð Eimskips og Samskipa“, sem
hafi haft að markmiði að raska sam-
keppni í skilningi samkeppnisréttar.
Á meðal þeirra aðgerða á rannsókn-
artímabilinu sem um ræðir var samráð
um breytingar á siglingakerfum, sam-
ráð um að takmarka flutningaframboð
og samræmingu siglingakerfa, skipti á
mörkuðum eftir viðskiptavinum, skipt-
ingu á mörkuðum eftir landsvæðum á
Íslandi, verð-
samráð, gáma-
samráð og upplýs-
ingar um mikilvæg
viðskiptamálefni
auk fleiri atriða.
„Hin ætluðu brot
hafi varað í langan
tíma og verið fram-
in af ásetningi. Hin
ætluðu brot voru
mjög umfangsmikil
og til þess fallin að valda neytendum og
atvinnulífinu miklu tjóni,“ segir í skjali
SKE. Þá segir einnig að „þrátt fyrir að
sögn málsins sýni að á árinu 2013 hafi
dregið úr ætlaðri markaðsskiptingu á
milli Eimskips og Samskipa er að frum-
mati Samkeppniseftirlitsins ekki unnt
að slá því föstu að hún hafi liðið undir
lok“. Í yfirlitinu segir að frummat SKE
bendi til alvarlegra brota á 10. grein
samkeppnislaga og 53. gr. EES-
samningsins.
Samkeppniseftirlitið harðort í garð skipafélaga
Samkeppni Eim-
skip rannsakað.
STUTT
á fundinum jákvætt. Í tilkynning-
unni segir einnig að utanríkisráð-
herra hafi áréttað að Hoyvíkursamn-
ingurinn hafi reynst bæði
Færeyingum og Íslendingum vel og
því verði að kanna til þrautar hvort
forsendur séu fyrir Færeyinga að
draga uppsögnina til baka.
„Hoyvíkursamningurinn hefur
verið undirstaða vaxandi efnahags-
samstarfs milli Íslendinga og Fær-
eyinga og ég hef alltaf lagt mikla
áherslu á að við séum tilbúin til að
gera okkar til að viðhalda honum.
Eftir fund okkar Jenis av Rana í dag
er ég bjartsýnni á að það takist, en
við gerum enn ráð fyrir að uppsögn-
in standi,“ segir Guðlaugur Þór í til-
kynningunni.
Ástæðan breytingar á löggjöf
Guðlaugur Þór segir í samtali við
Morgunblaðið að ástæða uppsagnar
samningsins hafi verið breytingar
sem gerðar voru á fiskveiðilöggjöf-
inni í Færeyjum, sem ekki voru tald-
ar samræmast Hoyvíkursamningn-
um. Núverandi stjórnvöld hafi á
stefnuskrá sinni að draga þær
breytingar til baka. En Guðlaugur
segir að umræðan um samninginn sé
mun neikvæðari í Færeyjum en hér
á Íslandi.
Ný stjórn, önnur en sú sem sagði
upp samningnum, hefur nú tekið við
völdum í Færeyjum, og sú stjórn
hefur að sögn Guðlaugs nýja stefnu
og nýjar áherslur, sem íslensk
stjórnvöld taka fagnandi.
Guðlaugur segir að niðurfelling
samningsins hafi neikvæð áhrif á
viðskipti þjóðanna, og þá sérstak-
lega á innflutning frá Færeyjum.
„Við kaupum meiri þjónustu af þeim
en þeir af okkur. Við flytjum út þó-
nokkuð af vörum þangað sem nú
munu fá á sig toll. Hins vegar er
boltinn núna hjá þeim. Ég hef lagt
mig fram eins og ég get um að ná
lendingu þannig að við getum byggt
viðskiptasamband okkar áfram á
samkomulaginu.“
Samkeppnisstaðan versnar
Hvað varðar söluna á fiskifóðrinu
hingað til lands segir Guðlaugur að
Færeyingar selji fóðrið hingað í
samkeppni við norska aðila og 55%
tollur muni gera samkeppnisstöðu
þeirra erfiðari.
55% tollur á færeyskar vörur
Viðskipti Innflutningur fiskeldisfóðurs frá Færeyjum hefur farið mjög vax-
andi síðustu misseri og nam salan um einum milljarði íslenskra króna í ár.
Málið tekið fyrir í gær í utanríkismálanefnd lögþingsins Frekari tíðindi í vikunni
Hoyvíkursamningurinn undirstaða vaxandi efnahagssamstarfs milli Íslendinga og Færeyinga
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Janis
av Rana
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Fimmtíu og fimm prósenta tollur
mun að óbreyttu falla á fiskeldisfóð-
ur og fleiri vörur sem fluttar eru inn
til Íslands frá Færeyjum frá og með
1. janúar nk., en fóðrið hefur verið
tollfrjálst hingað til. Innflutningur
fiskeldisfóðurs frá Færeyjum hefur
farið mjög vaxandi síðustu misseri
og nam salan um einum milljarði ís-
lenskra króna nú í ár. Ástæðan fyrir
tollasetningunni er sú að færeysk
stjórnvöld hafa sagt upp Hoyvíkur-
samningnum, fríverslunarsamningi
Íslands og Færeyja. Samkvæmt
færeyskum fjölmiðlum var málið
tekið fyrir í gær í utanríkismála-
nefnd lögþingsins og tíðinda er að
vænta um frekari framvindu síðar í
vikunni.
Ræddi við Jenis av Rana
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra og Jenis av Rana, ut-
anríkisráðherra Færeyja, ræddu
framtíð samningsins á fundi í Kaup-
mannahöfn fyrir helgi og eins og
fram kemur í tilkynningu á vef utan-
ríkisráðuneytisins var andrúmsloftið
Musse & cloud
18.990 kr.
Garðatorg 4 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN FIAT SENDIBÍL FYRIR ÁRAMÓT
FIAT DUCATO - 1 STK
Tilboðsverð 3.950.000 án vsk.
Listaverð með aukahlutum 4.361.000 án vsk.
FIAT DOBLO - 2 STK
Tilboðsverð 2.330.000 án vsk.
Listaverð með aukahlutum 2.571.000 án vsk.
FIAT DOBLO MAXI - 2 STK
Tilboðsverð 2.390.000 án vsk.
Listaverð með aukahlutum 2.624.000 án vsk.
FIAT FIORINO - 2 STK
Tilboðsverð 1.723.000 án vsk.
Listaverð með aukahlutum 1.894.000 án vsk.
ÁRA5ÁBYRGÐUMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433WWW.FIATPROFESSIONAL.IS • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
fiatprofessional.is