Morgunblaðið - 17.12.2019, Side 17

Morgunblaðið - 17.12.2019, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2019 ✝ Þórir Lúðvíks-son fæddist í Reykjavík 3. ágúst 1950. Hann lést á Landspítalanum Fossvogi 5. desem- ber 2019. Þórir var sonur hjónanna Lúðvíks Valdimars- sonar hárskera, f. 19.9. 1920, d. 31.8. 1990 og Guðrúnar Þorgeirsdóttur húsmóður, f. 28.6. 1918, d. 15.1. 1997. Þórir ólst upp í Reykjavík ásamt systkinum sínum sem eru: Edda Hólmfríður Lúðvíksdóttir, f. 29.3. 1941, d. 17.5. 2014, Valdi- mar Loftur Lúðvíksson, f. 9.11. 1946, d. 2.9. 2010 og Ólafía Stef- anía Lúðvíksdóttir, f. 13.1. 1954. Þórir kvæntist Önnu Margeirs- dóttur 13. september 1975, f. 10.11. 1950, foreldrar hennar voru Margeir Sigurðsson, f. 2.11. 1906, d. 7.8. 1986, Elenora Þórðardóttir, f. 9.9. 1907, d. 3.6. 1987. Börn Þóris og Önnu eru: Lúðvík V. Þórisson, f. 28.10. 1968, maki Kamila Sandra Þór- isson, f. 7.2. 1975. Börn þeirra eru Veronika Rós Lúðvíksdóttir, f. 26.1. 2002 og Ísa- bella Sól Lúðvíks- dóttir, f. 11.5. 2005. Jón Margeir Þór- isson, f. 23.6. 1975, maki Bára Yngva- dóttir, f. 23.10. 1975. Börn þeirra eru: Yngvi Margeirsson, f. 17.2. 2001, Móeið- ur Anna Margeirs- dóttir, f. 21.5. 2008, Hrafnhildur Ýrr Margeirsdóttir, f. 30.6. 2010. Birna Ósk Þórisdóttir, f. 19.5. 1984, maki Halldór Daði Gylfa- son, f. 30.12. 1978. Börn þeirra eru: Hera Mist Halldórsdóttir, f. 26.4. 2007 og Alexander Freyr Halldórsson, f. 6.10. 2008. Þórir byrjaði skólagöngu sína í Austurbæjarskóla og lauk henni með landsprófi. Hann kláraði svo vélskólann 1987. Þórir stundaði sjómennsku í 18 ár og eftir það var hann bílstjóri hjá Hans Petersen og síðustu 15 árin bílstjóri hjá Johan Rönning. Útför Þóris fer fram í Selja- kirkju í dag, 17. desember 2019, klukkan 13. Elsku ljúfi og yndislegi Þórir, við söknum þín og eigum erfitt með að kveðja þig svona fljótt. Undanfarnar tvær vikur hafa verið fjölskyldunni þinni ákaf- lega þungar. Söknuðurinn er mikill og sorgin sár. Á meðan börnin þín hlúa að mömmu sinni og sér sjálfum hef ég hlúð að börnum okkar Magga sem sakna afa Þóris mikið. Öll þrjú eiga þau góðar og skemmtilegar minning- ar um þig og eru einróma um hversu góðan mann þú hafðir að geyma. Þú hefur gefið þeim ákaf- lega mikið og þau verða alltaf þakklát fyrir þann góða tíma sem þau fengu að njóta með þér. Hrafnhildur Ýrr hefur kallað þig afa súperman frá því að þú komst henni til bjargar í búðinni og borgaðir mismuninn þegar hún hafði gerst heldur stórtæk í nammiinnkaupum. Móu þykir miður að afi muni aldrei aftur bjóða henni í ísbúðina eins og þú áttir til að gera. Bíóferðirnar með þér verða ekki fleiri frekar en myndböndin af ævintýrum Brasa kokks. Yngva finnst eins og hann sé að kveðja eldri gerð- ina af pabba sínum og þarf nú í fyrsta sinn að treysta á sjálfan sig í flugeldainnkaupum. Yngvi fékk lengsta tímann með þér af börnunum okkar þar sem hann er elstur og dýrmætar eru hon- um minningarnar um feðgaferð- ina ykkar til Liverpool sem að hans mati var ein skemmtileg- asta utanlandsferðin hingað til. Elsku besti tengdapabbi. Ég þakka þér samfylgdina síðustu þrjá áratugina, þakka þér þá djúpu umhyggjusemi sem var þér í blóð borin og umvafði okkur. Þakka þér fyrir minn dásamlega eiginmann sem nú á um sárt að binda og var þér svo líkur og ná- inn. Þakka þér allar skemmtilegu stundirnar með dillandi hlátrin- um þínum og gamanseminni. Þú varst alltaf svo skemmtilegur, ljúfur, góður og vandfundnir eru bónbetri menn en þú. Ég trúi því að þú sért nú á góðum stað með góðum vinum og að Valdi bróðir þinn hafi tekið vel á móti þér. Önnu, Lúlla, Magga og Birnu Ósk sendum við okkar dýpstu samúð- arkveðjur. Minningin um einstak- lega góðan dreng sem fékk of stuttan tíma lifir áfram í hjörtum okkar. Bára, Yngvi, Móeiður Anna og Hrafnhildur Ýrr. Með söknuði kveðjum við kær- an samstarfsmann. Þórir Lúðvíksson hóf störf hjá Johan Rönning í desember 2005. Frá fyrsta degi var Þórir traustur liðsmaður. Hann var einstaklega samviskusamur og vandaður í störfum sínum og þjónustulund var honum í blóð borin. Hvernig sem á stóð var hann alltaf tilbúinn að aðstoða samstarfsmenn og við- skiptavini. Hann bar hag fyrir- tækis síns fyrir brjósti og var áhugasamur um hvernig gengi og fagnaði því þegar vel gekk, enda keppnismaður. Fáir starfsmenn stóðu Þóri á sporði þegar kom að mætingu. Þórir vildi eiga sinn tíma með traustum hópi starfsmanna á kaffistofunni áður en vinna hófst á morgnana. Hann mætti ekki seinna en 7.30 þó að vinnudag- urinn hæfist ekki fyrr en 8. Og það þurfti mikið til svo að Þórir hringdi sig inn veikan; hann mætti nema hann hreinlega kæmist ekki fram úr. Þórir starfaði í þjónustudeild félagsins, lengst af sem bílstjóri. Það er oft mikið álag á bílstjór- um Johan Rönning og Þórir taldi ekki eftir sér að vinna langa og erfiða vinnudaga ef aðstæður kölluðu á það. Hann var með ára- tuga reynslu af sjómennsku og annarri erfiðisvinnu. Hann var vanur að leggja hart að sér og hann brást ekki vinnuveitanda sínum, sama á hverju gekk. Á starfsferli sínum tók Þórir virkan þátt í uppbyggingu útibúa og þá var ekki spurt um hvert verkefnið væri; heldur hvað þyrfti að gera til að tíma- og verkáætlanir stæðust. Þórir var glaðlyndur og mikil félagsvera. Íþróttir voru hans stærsta áhugamál og liðin hans Valur hér heima og Liverpool í enska boltanum. Þórir átti nána vini í hópi samstarfsmanna sem nú syrgja góðan vin, þar er skarð fyrir skildi. Það duldist ekki okkur fé- lögum Þóris að hann var með stórt hjarta og vildi öllum vel. Missir okkar og félagsins er mik- ill en hugur okkar er hjá fjöl- skyldu hans; börnum, tengda- börnum og barnabörnum. En allra mestur er missir Önnu, eig- inkonu Þóris. Í Þóri átti Anna sinn besta vin og bandamann. Hann hefur staðið með sinni góðu eiginkonu í blíðu og stríðu í erfiðum veikindum undanfarin ár og hún kveður nú kæran eigin- mann, bandamann og vin. Við kveðjum góðan samstarfs- mann og vin og vottum Önnu og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd Johan Rönning, Bogi Þór Siguroddsson, Haraldur Líndal Pétursson. Ég er búinn að þekkja Þóri síðan 1968. Það eru 51 ár, en þau eru búin að vera fljót að líða. Við vorum saman til sjós í Grindavík 1972-1974 en þá fór ég í land. Það var góður og skemmtilegur tími og gott að hafa hann sér við hlið. Svo kom annað skeið í lífinu en alltaf var mikill samgangur milli heimila okkar. Undanfarin 34 ár bjuggum við hlið við hlið í Flúða- selinu en í september síðastliðn- um fluttu þau hjón í Boðaþing. Við söknum þeirra úr Flúðasel- inu. Þórir var árrisull og þegar ég leit út um eldhúsgluggann á morgnana um sexleytið var yf- irleitt búið að kveikja ljós í eld- húsinu hjá honum. Hittumst við oft á bílaplaninu þegar báðir voru á leið til vinnu og áttum smá spjall. Við ferðuðumst mikið saman, bæði innan- og utanlands. Lang- ar mig að minnast á eina af þeim útilegum þótt af mörgu sé að taka, það var sumarið 1988. Fór- um við í Húsafell ásamt konum og börnum og höfðum þá keypt okkur fellihýsi, sem var algjör nýjung og öndvegis græjur. Þarna reistum við okkar fellihýsi og áttum góða kvöldstund í ynd- islegu veðri. Um nóttina hvessti allverulega og ekki vildi betur til en svo að fellihýsið hjá Þóri og Önnu fauk á hliðina; koddar, pottar og pönnur og annar bún- aður fauk út í veður og vind. Þeg- ar veðrið lægði snemma morguns var farið í að rétta fellihýsið við og ganga á skurði og tína af girð- ingum þann búnað sem fannst og okkur Þóri kom saman um að þau ættu, en þar var ég ekki viss um sumt dót sem Þórir þóttist eiga. Svo fór minn maður að staga fellihýsið þeirra og um venjulegan fótaferðartíma var ill- mögulegt að komast að þessu nýja og nýfokna fellihýsi fyrir stögum; það varð að fara á fjóra fætur og skríða að hurðinni til að komast inn. Þórir ætlaði ekki að láta þetta koma fyrir aftur. Þetta kom aldrei fyrir Þóri aftur, hann passaði upp á sig og sína. Svo komu Þjórsárdalsárin. Þar áttum við hjólhýsi hlið við hlið og áttum margar dýrðar- stundir saman. Þar þekkti Þórir alla og var hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom og hnyttinn var hann í tilsvörum. Þegar verið var að setja upp fortjöldin á vor- in eða taka niður að hausti, eða annað sem til féll, var hann mættur fyrstur manna til að hjálpa til. Þórir átti mjög stóran járnkarl sem hann lánaði gjarn- an vinum sínum þegar þurfti að setja niður staur og var afar montinn af járnkallinum sínum. Þórir gekk gjarnan perluhring- inn í Þjórsárdalnum, stundum nennti ég að fara með honum, þetta voru góðar ferðir. Ófá voru þá spilakvöldin og var kallinn ansi snjall og vann yfirleitt alltaf og kallaði sig þá gjarnan „snilla“ og ef hann lenti á móti þeim er átti sögn og spilið vannst þá sagði hann með glettnisglapa í augum: „Ég er svo góður makk- er.“ Sagði hann líka barnabörn- um okkar að hann væri kóngur- inn í Þjórsárdalnum og kölluðu þau hann gjarnan Þóri kóng. En nú er best að staldra við, þótt af nógu sé að taka. Kæri vinur, far þú í friði. Elsku Anna, Lúlli, Maggi, Birna og fjölskyldur, okkar inni- legustu samúðarkveðjur til ykk- ar allra. Guð blessi ykkur og um- vefji ykkur ljósi og hlýju. Magnús (Maggi), Helga Ingibjörg og fjölskyldur. Þórir Lúðvíksson Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýju við andlát og útför ÚLFARS HARÐARSONAR, Straumi, Flúðum, sem lést 28. nóvember og var jarðsunginn í Hruna. Gleðileg jól. Guðríður Sólveig Þórarinsdóttir Hörður Úlfarsson Anna María Gunnarsdóttir Þórarinn Ingi Úlfarsson Þóra Sædís Bragadóttir og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁLFHEIÐUR JÓNSDÓTTIR, Lilla, andaðist á Grund 1. desember. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu föstudaginn 13. desember. Anna Friðrika Vilhjálmsdóttir Reynir Þór Friðþjófsson Álfheiður Vilhjálmsdóttir Gísli Ágúst Friðgeirsson Ásgeir Vilhjálmsson Soffía Pálsdóttir Guðrún Jóna Þorbjarnardóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Maðurinn minn, GUÐLAUGUR VALDIMAR EIRÍKSSON trésmiður, Núpalind 2, Kópavogi, andaðist á Hrafnistu, Boðaþingi, 15. desember. Útförin fer fram í kyrrþey. Þórey Björnsdóttir Eiginmaður minn, faðir okkar, afi, sonur, tengdafaðir og tengdasonur, JÓN BJÖRNSSON málarameistari, Álfhólsvegi 67, Kópavogi, lést miðvikudaginn 11. desember. Útförin fer fram í Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 20. desember klukkan 13. Jóhanna A. Logadóttir Arnór Gauti Jónsson Björk Jónsdóttir Atli Fannar Jónsson María Rós Gústavsdóttir Björn M. Egilsson Kristín Jónsdóttir Logi Magnússon Árný Þóra Hallvarðsdóttir Styrmir Nói Gautason Okkar ástkæri pabbi, tengdapabbi, afi, langafi og maðurinn minn, INGÓLFUR HELGI ÞORLÁKSSON bakari, lést 4. desember. Útförin fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn 19. desember klukkan 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Viðar Ingólfsson Guðbjörg Emma Ingólfsdóttir Hjördís Björk Ásgeirsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RUNÓLFUR GUÐJÓNSSON, Kirkjubraut 36, Njarðvík, lést á heimili sínu, fimmtudaginn 12. desember. Útförin fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju, föstudaginn 20. desember klukkan 13. Inger Gréta Stefánsdóttir Jón Hlíðar Runólfsson Eygló Jónsdóttir Guðný Hildur Runólfsdóttir Þórður Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku amma Þóra kvaddi okkur fimmtudagskvöldið 28. nóvember. Mikið er erfitt á svona tímum að búa í Reykjavík og ná ekki að koma norður að kveðja hana á sjúkra- húsinu. Amma var alveg einstök, alltaf svo jákvæð og tók öllu með jafn- aðargeði. Í heimsóknum færði hún manni fréttirnar úr fjöl- skyldunni og sagði manni ótal Þóra Þ. Björnsdóttir ✝ Þóra Þ. Björns-dóttir fæddist 10. mars 1936. Hún lést 28. nóvember 2019. Útför Þóru fór fram 13. desember 2019. sögur, nýjar sem gamlar, og kunni að segja svo skemmti- lega frá en hún var með algjört stál- minni sem ég vildi að ég hefði erft frá henni. Ég hefði reyndar einnig vilj- að erfa hina góðu samskiptahæfni hennar, hversu auð- velt hún átti með að spjalla við hvern sem er, um hvað sem er. Amma var ansi lunkin við að spá í bolla og var oft margt sem hún sá í þeim sem reyndist rétt. Hún sá til dæmis Emil minn í bollanum þegar við vorum nýfar- in að hittast og furðaði amma sig á því hversu skýrt hún sæi andlit- ið í bollanum og lýsti honum vel og sagði að þarna væri líklegast mannsefnið mitt. Þegar ég var lítil fórum við fjölskyldan í sumarbústaðaferðir með ömmu og afa á hverju sumri. Mikið er ég þakklát fyrir þær stundir og þá var mikið spilað og haft gaman. Vertu allra ljósa ljós lýstu í glöðu og stríðu vertu allra rósa rós reifaðu allt með blíðu. (Guðmundur Guðmundsson) Elsku amma, það sem ég á eft- ir að sakna þín. En það er alltaf gott að rifja upp minningarnar í sorginni og deila með sínum nán- ustu og það eigum við fjölskyldan eftir að gera á næstunni. Nú er ég viss um að þú situr með Alla afa og ömmu Línu lang og fleirum yfir kaffibolla og spjallar við þau tímunum saman á notalegum endurfundum. Takk fyrir allt elsku amma mín. Þín Þóra Guðrún. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.