Morgunblaðið - 17.12.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 17.12.2019, Qupperneq 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2019 50 ára Sigríður er Borgnesingur en býr í Reykjavík. Hún er að klára nám til löggild- ingar fasteignasala og starfar sem fasteigna- sali á 101 Reykjavík fasteignasölu. Maki: Finnur Jóhannsson Malmquist, f. 1964, grafískur hönnuður á ENNEMM. Systkini: Egill, f. 1971, Guðveig Lind, f. 1976, Kristín Lilja, f. 1978, Sonja Lind, 1981 og hálfsystkini sammæðra eru Ingi Björn, f. 1989, og Martha Lind, f. 1991, Róbertsbörn. Foreldrar: Eygló Lind Egilsdóttir, f. 1950, fv. kirkjuvörður og meðhjálpari við Borgarneskirkju, og Sigurður F. Sigurðsson, f. 1949, d. 2003, vann hjá Volvo í Svíþjóð, síðast búsettur þar. Sigríður Lind Eyglóardóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er alltaf gaman að koma öðr- um skemmtilega á óvart. Ekki hafa áhyggj- ur af komandi vikum. Varastu leikaraskap gagnvart börnum. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er hollt að ljúka fyrst þeim verk- efnum, sem fyrir liggja, áður en tekist er á við nýja hluti. Ekki taka á peningamál- unum af léttúð. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú átt í mesta basli með að koma réttum skilaboðum á framfæri. Ekki standa uppi í hárinu á yfirmönnum. Þú kemur alltaf standandi niður. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér bjóðast góðir fjárfest- ingamöguleikar næsta mánuðinn og þér á eftir að reynast auðvelt að fá lán. Leggðu spilin á borðið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Vinir og samstarfsmenn leita ráða hjá þér. Þú ert potturinn og pannan í fyrir- tækinu, sættu þig við það. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Sígandi lukka er best svo þú skalt bara halda þínu striki og klára hvert mál eins og það kemur fyrir. Makinn á eftir að koma þér skemmtilega á óvart. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú færð stöðuhækkun. Auðvitað eykst ábyrgðin líka, en þú ert hvergi bang- in/n. Einhver er eins og grár köttur í kring- um þig. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Gefðu metnaði þínum og framtíðarvonum lausan tauminn. Þú lendir í klónum á svikahröppum ef þú ferð ekki varlega. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það verða báðir aðilar að leggja sitt af mörkum ef sambandið á að geta gengið. Ekki leggja öll eggin í sömu körfu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þótt þér finnist gaman að gefa öðrum ráð, þá verður þú að muna að þú átt ekki að stjórna lífi annarra. Sýndu öðr- um tillitssemi og umburðarlyndi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Mundu það að ef þú ert nógu ákveðin/n tekst þér allt. Hlauptu undir bagga með vini sem á bágt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver verður að halda fjölskyld- unni saman, hvers vegna ekki þú? Þú missir andlitið yfir orðrómi sem tengist einhverjum í fjölskyldunni. áhrifaríkt. Við eigum afdrep á Eng- landi, í Eastbourne, ferðumst mikið um Suður-England en okkur finnst gott að njóta útiveru þar og spila golf.“ lands, fórum meðal annars til Norm- andí fyrir tveimur árum og heim- sóttum strandirnar þar sem bandamenn gerðu innrás í seinni heimsstyrjöldinni sem var mjög B jörg Sigurðardóttir er fædd 17. desember 1959 í Reykjavík. Hún ólst upp á Seltjarnar- nesi og var búsett þar í þrjátíu ár. Björg gekk í Mýrarhúsaskóla og lauk síðan landsprófi frá Kvenna- skólanum í Reykjavík. Hún varð stúdent frá Verslunarskóla Íslands 1979 og lauk viðskiptafræðinámi af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands 1984. Á unglingsárum starfaði Björg í sumarvinnu í bókbandi Prentsmiðj- unnar Odda. Hún starfaði síðan sem skrifstofumaður hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna meðfram há- skólanámi. Björg hóf störf sem end- urskoðunarnemi hjá Endurskoðun Sig. Stefánsson, föður Bjargar, haustið 1982 og starfaði þar til árs- ins 1998 fram að sameiningu fjög- urra endurskoðunarfyrirtækja undir nafni Deloitte ehf. Hún varð löggilt- ur endurskoðandi 1989 og starfaði sem endurskoðandi, stjórnarmaður og meðeigandi að Deloitte fram til ársins 2013. Hún hefur starfað síðan við tilfallandi verkefni auk þess að vera stjórnarmaður í Borgun og í Eftirlitsnefnd fasteignasala. „Í störfum mínum sem endurskoðandi þjónustaði ég ýmsar atvinnugreinar, s.s. lífeyrissjóði, verkalýðsfélög, framleiðslufyrirtæki, alþjóðleg verk- takafyrirtæki og sjávarútvegs- fyrirtæki.“ Björg var bæjarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins á Seltjarnarnesi 1986- 1991. Hún sat í nokkrum nefndum bæjarins á þessum árum s.s. veitu- nefnd, skólanefnd, skipulagsnefnd og umhverfismálanefnd. Björg sat einnig í nokkrum nefndum Félags löggiltra endurskoðenda á árunum 1995-2014, menntunarnefnd 1995- 1999, ritnefnd 2004-2008 og siða- nefnd 2011-2014. „Mér finnst að ég hafi haldið upp á afmælið allt árið í ferðalögum, en við fórum óvenjumikið í ár. Dóttir okkar vinnur hjá Icelandair hotels og er dugleg að draga okkur út um allan heim. Við fórum til Dúbaí, Singapúr og Balí, allt í einni ferð. Svo höfum við mjög gaman að fara til Frakk- Fjölskylda Eiginmaður Bjargar er Gunnar Baldvinsson, f. 25. apríl 1961, fram- kvæmdastjóri Almenna lífeyris- Björg Sigurðardóttir, löggiltur endurskoðandi – 60 ára Dugleg að ferðast á árinu Mæðginin Sigurður og Björg stödd í Botanic-grasagarðinum í Singapúr. Hjónin Stödd í París. Fjölskyldan Sigrún, Gunnar, Sigurður og Björg stödd í eyðimörkinni í Dúbaí. 40 ára Ásdís er Kefl- víkingur, er með BSc í grasalækningum frá University of East London og starfar sjálf- stætt sem grasalæknir. Maki: Stefán Ragnar Guðjónsson, f. 1977, framkvæmdastjóri innkaupasviðs hjá Samkaupum. Börn: Kamilla Birta Guðjónsdóttir, f. 1999, Guðjón Pétur Stefánsson, f. 2003, og Egill Örn Stefánsson, f. 2007. Foreldrar: Helga Ragnarsdóttir, f. 1961, fótaaðgerðarfræðingur og flugfreyja, bús. í Keflavík, og Einar Bjarnason, f. 1957, leið- sögumaður, bús. í Reykjavík. Stjúpfaðir er Óskar Herbert Þórmundsson, f. 1950, fv. yfirlögregluþjónn og stjúpmóðir er Linda Sveinbjörnsdóttir, f. 1969, umsjónarmaður Heilsuhússins á Laugavegi. Ásdís Ragna Einarsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.