Morgunblaðið - 17.12.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2019
England
Crystal Palace – Brighton ....................... 1:1
Staðan:
Liverpool 17 16 1 0 42:14 49
Leicester 17 12 3 2 40:11 39
Manch.City 17 11 2 4 47:19 35
Chelsea 17 9 2 6 31:25 29
Tottenham 17 7 5 5 32:24 26
Manch.Utd 17 6 7 4 26:20 25
Sheffield Utd 17 6 7 4 21:16 25
Wolves 17 5 9 3 24:21 24
Crystal Palace 17 6 5 6 15:19 23
Arsenal 17 5 7 5 24:27 22
Newcastle 17 6 4 7 17:24 22
Burnley 17 6 3 8 22:29 21
Brighton 17 5 5 7 21:25 20
Bournemouth 17 5 4 8 19:24 19
West Ham 17 5 4 8 19:28 19
Everton 17 5 3 9 20:29 18
Aston Villa 17 4 3 10 23:30 15
Southampton 17 4 3 10 18:36 15
Norwich 17 3 3 11 18:35 12
Watford 17 1 6 10 9:32 9
Þýskaland
B-deild:
Darmstadt – Stuttgart ............................ 1:1
Guðlaugur Victor Pálsson hjá Darm-
stadt tók út fyrri leikinn í tveggja leikja
banni. Lið hans er í 12. sæti af átján liðum í
deildinni.
Ítalía
Cagliari – Lazio ........................................ 1:2
Staðan:
Inter Mílanó 16 12 3 1 32:14 39
Juventus 16 12 3 1 29:16 39
Lazio 16 10 3 3 36:16 33
Cagliari 16 9 5 2 32:19 32
Roma 16 9 5 2 29:16 32
Atalanta 16 8 4 4 38:25 28
Parma 16 7 3 6 23:19 24
Napoli 16 5 6 5 25:21 21
Torino 16 6 3 7 21:24 21
AC Milan 16 6 3 7 16:19 21
Bologna 16 5 4 7 24:27 19
Hellas Verona 16 5 4 7 17:20 19
Fiorentina 16 4 5 7 20:24 17
Sassuolo 15 4 4 7 26:27 16
Lecce 16 3 6 7 20:32 15
Sampdoria 16 4 3 9 13:25 15
Udinese 16 4 3 9 11:27 15
Brescia 15 4 1 10 14:26 13
Genoa 16 2 5 9 17:31 11
SPAL 16 2 3 11 10:25 9
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Hertz-hellirinn: ÍR – Fjölnir ............... 19.15
Hveragerði: Hamar – Keflavík b ........ 19.15
Mustad-höll: Grindavík b – Njarðvík . 20.15
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
Grill 66-deild karla
Valur U – Stjarnan U........................... 30:29
Staðan:
Þór Ak. 10 8 2 0 307:264 18
Valur U 10 7 1 2 303:279 15
Grótta 10 7 0 3 293:283 14
Haukar U 10 6 1 3 294:262 13
Þróttur 10 4 2 4 299:286 10
KA U 10 4 0 6 294:304 8
FH U 10 4 0 6 288:302 8
Víkingur 10 3 1 6 267:271 7
Fjölnir U 10 2 0 8 251:282 4
Stjarnan U 10 1 1 8 249:312 3
Danmörk
Ribe-Esbjerg – Fredericia ................. 28:28
Rúnar Kárason skoraði fjögur mörk fyr-
ir Ribe-Esbjerg og Gunnar Steinn Jónsson
þrjú. Daníel Þór Ingason komst ekki á blað.
Svíþjóð
Kristianstad – Ystad IF ...................... 31:27
Teitur Örn Einarsson skoraði sjö mörk
fyrir Kristianstad og Ólafur Guðmundsson
fjögur.
NBA-deildin
New Orleans – Orlando.................... 119:130
Indiana – Charlotte ............................ 107:85
Atlanta – LA Lakers .......................... 96:101
Brooklyn – Philadelphia .................... 109:89
Denver – New York.......................... 111:105
Golden State – Sacramento ............... 79:100
Staðan í Austurdeild:
Milwaukee 24/3, Miami 19/7, Philadelphia
20/8, Boston 17/7, Toronto 17/8, Indiana
18/9, Brooklyn 14/12, Orlando 12/14, Detro-
it 11/15, Charlotte 12/17, Chicago 10/18,
Washington 7/17, Cleveland 6/20, Atlanta
6/21, New York 6/21.
Staðan í Vesturdeild:
LA Lakes 24/3, LA Clippers 20/8, Dallas
17/8, Denver 17/8, Houston 17/9, Utah 15/
11, Sacramento 12/14, Oklahoma City 11/
14, Phoenix 11/14, Minnesota 10/15, San
Antonio 10/15, Portland 10/16, Memphis 9/
17, New Orleans 6/21, Golden State 5/23.
KÖRFUBOLTI
EVRÓPUDEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Mér líst bara vel á þetta verkefni.
Það verður erfitt en ég hef fulla trú
á því að við getum strítt Wolfsburg
og vonandi komist áfram í keppn-
inni,“ sagði Arnór Ingvi Trausta-
son landsliðsmaður í knattspyrnu
og leikmaður Malmö í Svíþjóð við
Morgunblaðið í gær.
Malmö dróst þá á móti Wolfs-
burg í 32 liða úrslitum keppninnar
en liðin mætast í Þýskalandi 20.
febrúar og í Svíþjóð 27. febrúar.
„Ég hef ekki fylgst sérstaklega
með Wolfsburg en þetta er stórt fé-
lag sem hefur alltaf verið með
marga góða leikmenn. Við sýndum
í þessari keppni í fyrra að við gát-
um gefið Chelsea tvo góða leiki í 32
liða úrslitunum þótt tímabilið okk-
ar væri ekki hafið í Svíþjóð,“ sagði
Arnór en Chelsea vann þá 2:1 í
Malmö og 3:0 á Stamford Bridge.
Gríðarlega sætt að vinna
í Kaupmannahöfn
Arnór átti drjúgan þátt í sigri
Malmö á FC Köbenhavn, 1:0, á
Parken síðasta fimmtudagskvöld
en markið var sjálfsmark eftir að
Arnór skallaði boltann í mótherja
og þaðan í netið.
„Það var gríðarlega sætt að
vinna FCK og um leið að vinna rið-
ilinn sem félagið hefur ekki gert
áður. Stemningin var geysilega
flott og völlurinn magnaður. Það
eina sem jafnast á við þetta í leik
með Malmö er þegar við spiluðum
við Besiktas í Tyrklandi á sama
tíma í fyrra. Þar voru líka gríðarleg
læti,“ sagði Arnór sem er kominn í
síðbúið jólafrí og undirbúnings-
tímabilið verður í styttri kantinum
vegna leikjanna við Wolfsburg.
Malmö lauk keppni í sænsku úr-
valsdeildinni 2. nóvember en átti þá
eftir þrjá leiki í riðlakeppni Evr-
ópudeildarinnar. Nýtt tímabil hefst
í Svíþjóð í lok mars, eða rúmum
mánuði eftir leikina gegn Wolfs-
burg.
„Við fáum gott frí núna og byrj-
um svo aftur um miðjan janúar og
förum þá beint í að búa okkur undir
þessa tvo leiki,“ sagði Arnór Ingvi.
Leikirnir í 32 liða úrslitum Evr-
ópudeildarinnar eru sem hér segir:
Wolves – Espanyol
Sporting – Istanbúl Basaksehir
Getafe Ajax
Leverkusen – Porto
FC Köbenhavn – Celtic
APOEL Nikósía – Basel
CFR Cluj – Sevilla
Olympiacos – Arsenal
AZ Alkmaar – LASK Linz
Club Brugge – Manchester Utd
Ludogorets – Inter Mílanó
Eintracht Frankfurt – Salzburg
Shakhtar Donetsk – Benfica
Wolfsburg – Malmö
Roma – Gent
Rangers – Braga
Hef fulla trú á
að við getum
strítt Wolfsburg
Arnór Ingvi og félagar í Malmö hefja
tímabilið í Þýskalandi 20. febrúar
AFP
Parken Arnór Ingvi Traustason fagnar sigurmarki Malmö gegn FC Köben-
havn á fimmtudag. Næsti andstæðingur er þýska liðið Wolfsburg.
Íslandsmótið í knattspyrnu hefst
fjórum dögum fyrr en nokkru sinni
áður á komandi keppnistímabili.
Fyrstu leikir í úrvalsdeild karla,
Pepsi Max-deildinni, eiga að fara
fram miðvikudaginn 22. apríl en Ís-
landsmótið á þessu ári hófst með
leik Vals og Víkings R. föstudags-
kvöldið 26. apríl.
Þetta kemur fram í skýrslu frá
fundi formanna og framkvæmda-
stjóra aðildarfélaga KSÍ sem hald-
inn var fyrir skömmu.
Þetta verður í þriðja skipti sem
fyrstu leikirnir fara fram í apr-
ílmánuði en það gerðist fyrst árið
2017 þegar mótið hófst 30. apríl.
Um leið verður væntanlega spil-
að í fyrsta skipti á Íslandsmóti á
sumardeginum fyrsta en á komandi
vori er hann 23. apríl.
Áætlað er að keppni í úrvalsdeild
kvenna, Pepsi Max-deildinni, hefjist
níu dögum síðar, eða föstudaginn 1.
maí.
Um leið er bikarkeppnin færð
framar en áætlað er að Mjólkur-
bikar karla hefjist 8. apríl. Í ár fór
fyrsti leikur keppninnar fram 10.
apríl.
Íslandsmótinu á hinsvegar að
ljúka tveimur dögum fyrr næsta
haust en á þessu ári, en lokaumferð
Pepsi Max-deildar karla hefur ver-
ið sett á 26. september.
Í skýrslunni er jafnframt lagt til
að úrslitaleikur Mjólkurbikars
karla verði færður til á ný og spil-
aður að Íslandsmótinu loknu. Und-
anfarin ár hefur hann verið spil-
aður um miðjan september eða um
miðjan ágúst. vs@mbl.is
Aldrei byrjað jafn snemma
Morgunblaðið/Eggert
Met Reykjavíkurliðin Valur og Vík-
ingur mættust 26. apríl á þessu ári.
MEISTARADEILD
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Óhætt er að segja að mögnuð ein-
vígi milli enskra og spænskra
knattspyrnuliða verði á dagskránni
í lok febrúar og mars á næsta ári.
Þá verða leikin sextán liða úrslitin í
Meistaradeild karla og í tveimur
þeirra eigast við fjögur lið frá
Spáni og Englandi sem öll ættu að
eiga góða möguleika á að fara langt
í keppninni.
Real Madrid dróst á móti Man-
chester City og þar eru tvímæla-
laust á ferð tvö lið sem hafa burði
til að verða Evrópumeistarar. Real
Madrid vann þrjú ár í röð, frá 2016
til 2018, og hefur oftast allra orðið
Evrópumeistari. Manchester City
bíður hinsvegar enn eftir sínum
fyrsta titli á þessum vettvangi en
liðið hefur á undanförnum árum
haft burðina til þess að hampa hon-
um og ljóst er að Pep Guardiola og
hans menn leggja mikið kapp á
Meistaradeildina í vetur. Sjálfur
vann Guardiola keppnina með
Barcelona árin 2009 og 2011.
Þarna mætast líka tveir sigur-
sælir stjórar í fyrsta skipti, þeir
Zinedine Zidane og Guardiola.
Atlético Madrid dróst gegn
ríkjandi Evrópumeisturum Liver-
pool en enska liðið mætir þar með
aftur á völlinn þar sem það vann
keppnina síðasta vor með því að
sigra Tottenham 2:0 í úrslita-
leiknum. Atlético lék til úrslita í
Meistaradeildinni bæði 2014 og
2016 og vann Evrópudeildina 2010,
2012 og 2018, ásamt því að rjúfa
veldi Real Madrid og Barcelona
með því að verða spænskur meist-
ari 2014. Liverpool er af mörgum
talið besta félagslið heims um þess-
ar mundir en gæti fengið sitt erf-
iðasta verkefni í langan tíma í þess-
um tveimur leikjum gegn Atlético
Madrid.
Ensku liðin eru bæði með þá for-
gjöf í leikjunum tveimur að eiga
síðari viðureignina á heimavelli.
Leikjadagskráin verður sem hér
segir:
18.2. Atlético Madrid – Liverpool
18.2. Dortmund – París SG
19.2. Atalanta – Valencia
19.2. Tottenham – RB Leipzig
25.2. Chelsea – Bayern München
25.2. Napoli – Barcelona
26.2. Lyon – Juventus
26.2. Real Madrid – Manch. City
10.3. Valencia – Atalanta
10.3. RB Leipzig – Tottenham
11.3. París SG – Dortmund
11.3. Liverpool – Atlético Madrid
17.3. Manch. City – Real Madrid
17.3. Juventus – Lyon
18.3. Bayern München – Chelsea
18.3. Barcelona – Napoli
AFP
Meistaradeild Andrew Robertson og Sergio Agüero eiga fyrir höndum af-
ar áhugaverða leiki gegn Atlético Madrid og Real Madrid.
Mögnuð einvígi fram undan
Spánverjar kljást við Englendinga þegar Real Madrid og Atlético Madrid taka á móti
Manchester City og Liverpool Fjögur lið sem gætu öll náð langt í keppninni í vetur