Morgunblaðið - 17.12.2019, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 17.12.2019, Qupperneq 27
MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2019 Bandaríski leik- arinn Danny Aiello er látinn, 86 ára að aldri. Aiello naut mikillar virð- ingar fyrir leik bæði á sviði og í kvikmyndum en margir minnast hans einkum fyrir hlutverk sitt í kvikmynd Spikes Lee, Do the Right Thing (1989), en fyrir það var hann tilnefndur til Ósk- arsverðlauna. Ferill Aiellos hófst á leikhúsum við Broadway en meðal annarra kvikmynda þar sem Aiello var í burðarhlutverkum má nefna Moonstruck (1987), þar sem hann lékk unnusta konunnar sem Cher lék; Fort Apache: The Bronx (1981), þar sem hann lék ófyrirleitinn lögreglu- foringja; kvikmynd leikstjórans Ser- gio Leone Once Upon a Time in Am- erica (1984), þar sem hann lék einnig lögregluforingja, og þá lék Aiello í tveimur kvikmyndum sem Woody Al- len skrifaði og leikstýrði, The Purple Rose of Cairo (1985) og Radio Days (1987). Leikarinn Danny Aiello látinn Danny Aiello í Do the Right Thing. Borgarbóka- safnið í Kringl- unni og Borg- arleikhúsið bjóða upp á leikhúskaffi í dag í safninu kl. 17.30. Þar segir Brynhildur Guð- jónsdóttir, leik- stjóri sýning- arinnar, gestum frá uppsetningu Borgarleikhúss- ins á Vanja frænda, sígildu leik- riti eftir Anton Tsjékhov. Í kjöl- farið verður rölt yfir í Borgar- leikhúsið þar sem gestir fá stutta kynningu á leikmynd og annarri umgjörð sýningarinnar. Viðburð- urinn er ókeypis. Leikhúskaffi um Vanja frænda Brynhildur Guðjónsdóttir Rúmum þrem árum eftirútkomu stórvirkisinsSögu tónlistarinnarprentbirtist annað myndarlegt framtak eftir Árna Heimi Ingólfsson um íslenzk tón- listarhandrit, allt frá upphafi rit- aldar fram að þjóðernisvakningu þeirrar nítjándu. Þetta óhætt að segja sérstæða verk í íslenzku jólabókaflóði vekur óneitan- lega ýmsar hug- renningar um þá skringilegu stað- reynd að þjóð á hjara veraldar, er varð einna fyrst Evrópu- samfélaga til að skrá bókmenntir sínar á þjóðtungu í stað latínu, skyldi jafnframt hafa hirt jafnlítt um tónlistarmenningu sína og raun ber vitni. Að vísu fráleitt einstætt fyrir- bæri meðan flestöll rituð tónmennt álfunnar hélzt alfarið innan vé- banda kirkjunnar, enda var ver- aldleg tónlist fyrst fest á bókfell meðal Frakka, Niðurlendinga og Breta á 14. öld. Né heldur með öllu einhlítt þar eð mörg kirkjuleg lög urðu í tímans rás að alþýðueign eða „druslum“ með veraldlegum text- um – auk þess sem gregorssöngvar voru oft, og allt frá öndverðu, runn- ir úr staðbundnum þjóðlögum. Samt rennur manni enn til rifja hvað einkum kirkjuyfirvöld norður- slóða gengu iðulega hart fram við að uppræta þjóðlega tónmennt. Hér á landi t.d. með að banna ,Woodstock 18. aldar‘, þ.e.a.s. Jörfagleðina – eða í Norður-Svíþjóð með samvizkusamlegri brennslu á nótum og hljóðfærum, fyrir aðeins 140 árum! Þótt varla hafi vakað trúrækni fyrir handritasöfnun Árna Magnús- sonar, þá er samt ekki annað að sjá en að honum hafi þótt torskilið nótnapár aftan úr pápísku mega mæta afgangi, eða í mesta lagi til nota sem kápur utan um alvöru- texta. Ber þó að þakka fyrir það, enda varðveittist þannig drjúgur partur af því sem eftir stendur af fornsöngmennt Íslendinga. Það er nefnilega ljóst að gríðar- mikið hefur týnzt, ekki sízt í kjölfar siðaskipta, þó ekki hafi komið til konungleg fyrirmæli um að „nýta“ klausturhandrit í veizlukyndla, líkt og gert var landsyðra á stjórnar- árum Kristjáns IV. konungs. Má í því ljósi undrast hvað samt hefur varðveitzt þótt slitrótt sé, eða allt frá 12. öld. Það gefur auga leið að mislæsi- legar miðaldanótur á kálfskinni koma, þrátt fyrir allstórar litljós- myndir bókarinnar, varla öðrum að gagni en tónsögufræðingum. Mað- ur spyr því óhjákvæmilega: Hvers vegna í ósköpum eru lögin ekki jafnframt birt með nútímanótum, til skýringar og samanburðar? Vera má að höfundi hafi þótt lítil ástæða til þess arna í minnkandi nótnalæsi seinni áratuga meðal al- mennings. Auk þess eru flest lögin nútímalesendum næsta ókunn og þar að auki kvað mega nálgast sum þeirra á YouTube eða Spotify í t.a.m. flutningi kammerkórsins Melódíu. Engu að síður er ljóður á annars metnaðarfullu verki að bjóða ekki upp á fyrrnefndan sam- anburð á einum og sama prent- vangi. Að öðru leyti er fátt út á fróðlega umfjöllun Árna Heimis um hand- ritin að setja. Persónulega saknaði ég þess þó svolítið, eftir nærri 40 ára gamla kórútsetningu á Vera mátt góður (enn lífseigt lag í eftir- minnilegri þjóðlagarokksmeðferð Þursaflokksins 1978), að fá ekki einhverja skýringu á því hvernig sópran-, alt- og tenórraddir þessa forðum fjórradda flórentínska endurreisnarkórlags gátu glutrazt niður hér ytra, svo aðeins varð eftir stórstígt skoppandi bassaröddin sem allir þekkja: so do do – so la mi – la so re – mi la ... Eða hverju sætti? Söngrúnir fornaldar Tónlistarsaga Tónlist liðinna alda – Íslensk handrit 1100-1800 bbbnn Eftir Árna Heimi Ingólfsson. Crymogea, 2019. 231 bls. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON BÆKUR Morgunblaðið/Eggert Sérstæða Gagnrýnandi segir þetta „sérstæða verk í íslenzku jólabókaflóði“ óneitanlega vekja hugrenningar um þá skringilegu staðreynd að þjóðin hafi „hirt jafnlítt um tónlistarmenningu sína og raun ber vitni“. Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI, TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI? Fjölmör stuttnáms í handve g keið rki. Skráning og upplýsingar á www.handverkshusid.is ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambíó.is Pepsí bíó á þriðjudögum 50% afsláttur í bíó

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.