Morgunblaðið - 17.12.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 17.12.2019, Qupperneq 32
Sönghópurinn Olga Vocal Ensemble hyggst syngja inn jólin á tónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld kl. 20. Olga Vocal Ensemble er alþjóð- legur sönghópur sem hefur sungið árlega á Íslandi síðan 2013. Hópinn skipa Bjarni Guðmundsson, Jona- than Ploeg, Arjan Lienaerts, Pétur Oddbergur Heimisson og Philip Barkhudarov. Á efnisskránni eru jólalög úr ýmsum áttum. Olgujól sönghópsins í Fríkirkjunni í kvöld ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 351. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Þrír leikmenn sem unnu til silfur- verðlauna á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 eru í nítján manna hópi landsliðsins sem býr sig undir EM: Björgvin Páll Gúst- avsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson. Guð- mundur Guðmundsson landsliðs- þjálfari kynnti hópinn á blaða- mannafundi í gær. »24 Björgvin í nítján manna hópnum ÍÞRÓTTIR MENNING ekki gefið íþróttirnar upp á bátinn. „Hver veit nema ég byrji aftur að æfa og reyni að láta gott af mér leiða sem þjálfari á þeim vettvangi á svæðinu.“ Dagur segir að íþróttirnar hafi kennt sér margt og það nýtist vel í starfinu. Hann nefnir sérstaklega setningu markmiða, eljusemi og það að halda áfram auk þátttöku í félags- legu starfi. „Ég minnist þess hvernig þjálfararnir nálguðust okkur sem ungt fólk og hvöttu okkur áfram og það er alls staðar gott veganesti.“ Í Breiðdal búa um 190 manns. Í Austfjarðaprestakalli eru um 5.000 íbúar og fimm prestar. Dagur segir að sameining prestakallana bjóði upp á mikla möguleika. Vissulega sé hann í meiri tengingu við nærumhverfið í Heydölum, Breiðdal og Stöðvarfirði vegna búsetunnar, en svæðið sé stórt og íbúarnir margir. „Sameiningin býður upp á mikil tækifæri og mikla grósku í kirkjulegu starfi. Verkefnin eru þegar gríðarlega fjölbreytt, en vinnan á enn eftir að eflast með meira framboði af félagslegum við- burðum í boði kirkjunnar. Ég hef því ekki áhyggjur af framtíð kirkj- unnar.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Yngsti prestur landsins, Dagur Fannar Magnússon, var vígður til prestsþjónustu í Austfjarðapresta- kalli í Austurlandsprófastsdæmi með aðsetur í Heydölum í haust og tók til starfa 1. nóvember. „Hér hef ég mætt góðu og viðmótsþýðu fólki, sem hefur tekið afskaplega vel á móti okkur, og mér líst vel á framhaldið,“ segir hann. Dagur er 27 ára, fæddist á Selfossi 1992 og ólst þar upp. Hann sinnti ekki kirkjulegu starfi fyrr en hann byrjaði í guðfræði í Háskóla Íslands. „Ég fékk innri köllun,“ útskýrir hann. „Ég hef til dæmis áhuga á sögu og heimspeki og fann farveg fyrir áhugamál mín í guðfræðinni.“ Hann bætir við að hann hafi alltaf haft áhuga á því að vinna með fólki og prestsstarfið henti sér vel. „Þetta er fjölbreytt starf með mikla möguleika og þess vegna fór ég þessa leið.“ Selfoss er mikill íþróttabær og vel er að þeim málaflokki staðið. Dagur byrjaði í frjálsíþróttum á unglings- árunum, þótti mjög efnilegur sleggjukastari, átti sér drauma og stóð sig vel, sigraði á mörgum ung- lingamótum en hætti að æfa vegna álags í háskólanáminu. Stefndi á Ólympíuleika „Sleggjukast var eina íþróttin sem átti við mig,“ rifjar hann upp. Hann segist hafa mátað sig við ýmsar greinar en dottið í sleggjuna þegar hann var 16 ára. „Það var mikil upp- bygging í frjálsum, við vorum með hóp úrvalsþjálfara, sem vöktu áhug- ann enn frekar auk þess sem æfinga- félagarnir voru frábærir.“ Draumurinn var að keppa á Ól- ympíuleikum, en eitthvað varð undan að láta. „Ég hafði einfaldlega ekki tíma til þess að halda áfram að æfa af eins miklum krafti og áður,“ segir hann. „Ég vildi standa mig vel í nám- inu, ná góðum árangri í guðfræðinni, og sinna fjölskyldunni almennilega. Ég hafði bara úr 24 tímum úr að moða á sólarhring.“ Hann hefur samt Yngsti presturinn er í Heydölum  Dagur Fannar Magnússon var efnilegur sleggjukastari Fjölskyldan Dagur Fannar Magnússon, Þóra Gréta Pálmarsdóttir, Skarp- héðinn Krummi Dagsson og Kristbjörg Lilja Dagsdóttir. ÁSKR I FTARLE IKUR MORGUNBLAÐS INS Heppinn áskrifandi hlýtur að gjöf Hästens HERLEWING® handgert rúm úr náttúrulegum efnum að verðmæti 3.225.900 kr. Fátt jafnast á við að opna Morgunblaðið eftir góðan nætursvefn. Fyrir einn af áskrifendum Moggans nær þessi ljúfa morgunstund nýjum hæðum eftir að við drögum í áskriftar- leiknum okkar föstudaginn 20. desember. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ LESA MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið og Hästens eru stolt af því að vinna saman að því að gefa einum heppnum áskrifanda Morgunblaðsins Herlewing-rúm frá Hästens. Verslun Hästens á Íslandi er til húsa í Faxafeni 5, á sama stað og Betra bak. KAUPTU ÁSKRIFT Í SÍMA 569 11 00 „Mér líst bara vel á þetta verkefni. Það verður erfitt en ég hef fulla trú á því að við getum strítt Wolfsburg og vonandi komist áfram í keppn- inni,“ sagði Arnór Ingvi Trausta- son, landsliðsmaður í knattspyrnu og leik- maður Malmö í Svíþjóð, við Morgunblaðið í gær. Malmö dróst þá á móti Wolfs- burg í 32 liða úrslit- um keppn- innar en lið- in mætast í Þýskalandi 20. febrúar og í Svíþjóð 27. febrúar. »24 Hef fulla trú á okkur gegn Wolfsburg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.