Morgunblaðið - 04.12.2019, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019FRÉTTIR
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
KVIKA
-3,35%
10,1
EIM
+7,36%
175
S&P 500 NASDAQ
-2,60%
8.478,69
-2,29%
3.081,33
-3,35%
7.167,81
FTSE 100 NIKKEI 225
4.6.‘19 4.6.‘193.12.‘19
1.600
80
1790,0
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
60,97-0,13%
23.379,81
61,97
40
2.000
3.12.‘19
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
1.785,85
KVIKMYNDIR
Kukl ehf., sem sérhæfir sig í út-
leigu á búnaði fyrir kvikmynda-
iðnaðinn hér á landi, hyggst flytja í
nýtt húsnæði í kvikmyndaþorpinu
svokallaða í Gufunesi í byrjun næsta
árs. Finni Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir í
samtali við ViðskiptaMoggann að
unnið sé hörðum höndum að innrétt-
ingu húsnæðisins nýja, sem staðsett
er við hliðina á kvikmyndaveri RVK
Studios. Fyrirtækið leigir í dag á
Krókhálsi 6, en nýja húsnæðið verð-
ur í eigu Kukls. „Þetta verður betur
sniðið að okkar þörfum en húsnæðið
sem við erum í núna,“ segir Finni.
Hann segir aðspurður að ekki sé um
að ræða mikla stækkun í fermetrum
talið, en nýtingin verði betri og loft-
hæð meiri. Kukl hyggst einnig leigja
út aðstöðu til fólks í kvikmynda-
iðnaðinum, klippara, hljóðmanna og
slíkra aðila. tobj@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Kukl verður til húsa við hliðina á
RVK Studios í Gufunesi.
Kukl úr
Krókhálsi
í Gufunes Samdráttur í bílasölu á heimsvísu á
einu ári gæti orðið meiri árið 2019 en
hann varð í fjármálahruninu árið
2008, að því er fram kemur í nýlegri
skýrslu láns-
hæfismatsfyrir-
tækisins Fitch
Ratings. Fyrir-
tækið býst við því
að salan muni
minnka um 3,1
milljón árið 2019
og fara úr 80,6
milljónum seldra
bíla árið 2018 í
77,5 milljónir sem gerir um 4% sam-
drátt ofan á 1,5% samdrátt frá 2017
til 2018 sem þá var mesti samdráttur
í sölu nýrra bíla á einu frá árinu 2009.
Fram kemur á CNBC að einkum
megi rekja samdráttinn í ár til minni
eftirspurnar í Kína. Sala þar í landi
hefur fallið um 11% á fyrstu 10 mán-
uðum þessa árs í samanburði við árið
á undan. Þar spilar einnig inn í aukin
sala á notuðum bifreiðum og nýir út-
blástursstaðlar fyrir bifreiðar. Að
sögn Brian Coulton, hagfræðings
Fitch Ratings, vega áhyggjur al-
mennings af umhverfismálum,
möguleg herðing á regluverki og
aukin notkun deilibíla þungt í minni
eftirspurn.
Að sögn Maríu Jónu Magnús-
dóttur, framkvæmdastjóra Bíl-
greinasambandsins (BGS), má yfir-
færa þessar vangaveltur um minni
eftirspurn að takmörkuðu leyti á ís-
lenska markaðinn. „Við tókum eftir
því þegar ríkisstjórnin gaf út bann
árið 2030 á jarðefnaeldsneytisbílum
að þá höfðu margir samband og fóru
að huga að þessu. Við sáum að það
hægði á sölu. Það er mikil eftirspurn
eftir umhverfisvænum bílum en
framboðið af þeim bílum er ekki
nægilegt til að anna þeirri eftirspurn.
Þetta hefur leitt til þess að hluta til
að salan hefur verið dræmari en við
gerðum ráð fyrir. Það má búast við
því á næsta ári að framboð þessara
bíla verði meira en í ár,“ segir María í
samtali við ViðskiptaMoggann.
Samdráttur í bílasölu á fyrstu 10
mánuðum ársins nemur 0,7% í
Evrópusambandinu en María bendir
á að salan þar hafi tekið við sér að
undanförnu og hún hafi aukist um
8,7% í októbermánuði.
„Með breyttum reglum og hertari
kröfum um útblástur bíla í Evrópu
fóru bílaframleiðendur í gagngerðar
breytingar á mörgum gerðum sinna
bíla sem hafa því ekki verið fáanlegir
á markaði. Breyting er á því nú og
eru þessir bílar að koma inn á mark-
aðinn aftur,“ segir María.
36,3% samdráttur
Í tölum BGS kemur aftur á móti
fram að bílasala hér á landi hafi dreg-
ist saman um 36,3% á þessu ári þar
sem seldir bílar eru 11.141 saman-
borið við 17.495 bíla á fyrstu 11 mán-
uðum ársins í fyrra. Heldur hefur
dregið úr samdrættinum á milli ára á
síðustu mánuðum hér á landi og nam
samdráttur í sölu um 11,1% í nóvem-
ber miðað við sama mánuð í fyrra. Í
drögum að frumvarpi til laga um
breytingu á ýmsum lagaákvæðum
um skattaívilnanir vistvænna öku-
tækja er lagt til að fella niður íviln-
anir á tengiltvinnbíla eftir árið 2020.
Að sögn Maríu er ótímabært að fella
þær ívilnanir niður. Ráðlegra væri að
hennar mati að framlengja þær til
ársloka 2023 og minnka í þrepum
frekar en að falla alfarið frá þeim. „Í
tillögunni segir að slíkar bifreiðar
eigi að vera orðnar samkeppnishæfar
í verði á þessum tíma og þurfi því
ekki ívilnanir til lengri tíma en til
loka ársins 2020. Þetta er ekki rétt
því þessar bifreiðar eru enn dýrari í
innkaupum og líklegt að svo verði
áfram því mikil þróun er enn á tækni
tengiltvinnbíla þar sem m.a. drægi á
hreinu rafmagni er að aukast,“ segir
María.
Mesti samdráttur í bílasölu
á heimsvísu frá hruni
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Sala á bílum virðist ætla að
dragast verulega saman á
heimsvísu. Samdráttur í
bílasölu hér á landi nemur
36,3% það sem af er ári.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bílasala hefur dregist saman um 36,3% á milli ára á fyrstu 11 mánuðum
ársins. Heldur hefur dregið úr samdrættinum á undanförnum mánuðum.
AFLAHEIMILDIR
Þó nokkurt tap virðist vera á
tveimur félögum, Fiskvinnslunni
Kambi ehf. og Grábrók ehf., sem
Brim hf. festi kaup á í október fyr-
ir um þrjá milljarða króna, þar af
2,3 milljarða fyrir Kamb og 772
milljónir fyrir Grábrók.
Brim hefur á heimsíðu sinni birt
árshlutareikninga félaganna í að-
draganda hluthafafundar sem hald-
inn verður 12. desember. Í þeim
kemur meðal annars fram að
rekstrarniðurstaða Kambs frá
fyrsta janúar til 30. september á
þessu ári hafi verið neikvæð um 4,5
milljónir króna, en hún var nei-
kvæð um 37,6 milljónir árið 2018.
Þá nema langtímaskuldir félagsins
um einum milljarði króna. Veru-
legar eignir eru þó í Kambi og er
fasteign félagsins metin á 360 millj-
ónir og áhöld, vélar og tæki metin
á 398 milljónir. Jafnframt er
Kambur með 497 milljóna við-
skiptakröfu á dótturfélag sitt,
Grunn ehf.
Grunnur ehf. var einnig rekið
með tapi á árinu og nemur tap fé-
lagsins á fyrstu níu mánuðum 171,5
milljónum, en rekstrarniðurstaðan
var neikvæð um 163,5 milljónir í
fyrra. Grunnur á hins vegar afla-
heimildir sem metnar eru á 2,5
milljarða króna. Auk þess á félagið
Stapavík hf., sem andstætt hinum
félögunum skilaði 13,8 milljóna
króna hagnaði á fyrstu níu mán-
uðum ársins. Veiðiheimildir félags-
ins eru metnar á 167,7 milljónir
króna.
Fyrstu níu mánuði 2019 var
rekstrarniðurstaða Grábrókar ehf.
neikvæð um 19,4 milljónir, en hún
var neikvæð um 89,5 milljónir árið
2018. Félagið býr hins vegar yfir
aflaheimildum sem metnar eru á
um einn milljarð króna.
Brim keypti félög sem
hafa verið í taprekstri
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Kristján HF 100 hefur verið í eigu
Kambs sem skilað hefur tapi.
Sími 564 6711 | thingvangur@thingvangur.is | thingvangur.is
Veitingahús á á tveimur hæðum. Húsnæðið er glæsilega innréttað ásamt
einstöku útiaðstöðu fyrir veitingasölu í Hjartagarðinum. Heildarstærð er
622,9 fm. Tækifæri til að tengja saman fjárfestingu og rekstur.
Frekari upplýsingar hjá katrin@thingvangur.is eða í síma 820 6355.
Til sölu er eitt fallegsta
veitingahús Reykjavíkur
KLAPPARSTÍGUR 28 OG 30
María Jóna
Magnúsdóttir