Morgunblaðið - 04.12.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.12.2019, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019FRÉTTIR Ný tegund skemmtistaða hefur ver- ið að ryðja sér til rúms víða erlend- is á síðustu árum. Um er að ræða sambland hefðbundinnar ölstofu eða veitingastaðar og íþróttaiðkunar. Úrval svona staða hefur einnig verið að aukast hér á landi. Auk keiluhalla og snóker-/púlstaða, er t.d. væntanleg MiniGolf veröldin sem Sigmar Vilhjálmsson hyggst opna í Skútuvogi. Þá opnaði Golf- klúbburinn í Holtagörðum dyr sínar í fyrsta sinn fyrir tveimur árum. Viggó Viggósson, framkvæmda- stjóri og einn eigenda Golfklúbbs- ins, segir í samtali við Viðskipta- Moggann að þessari tískubylgju hafi vaxið mikið ásmegin á síðustu árum. Golfhermastaðir hafi vissu- lega verið til í áratugi en þá fyrst og fremst hugsaðir fyrir kylfinga. Viggó bætir við að hann hafi mögu- lega verið með þeim fyrstu í heimi til að fá hugmyndina um veitinga- /skemmtistað með golfhermum. Hugmyndin hafi þó ekki orðið að veruleika hjá honum fyrr en árið 2017 með opnun Golfklúbbsins. Þar er hægt að spila golf á 66 mismun- andi golfvöllum í fimm golfhermum, borða og drekka og skemmta sér um leið. „Þetta er mjög vaxandi tegund af skemmtistöðum, og eru Bretar leið- andi á þessu sviði. Þar í landi má finna allskonar staði; borðtennis-, púl-, þythokkí- og pílustaði svo eitt- hvað sé nefnt. Svo auðvitað keilu- hallirnar sem flestir þekkja,“ segir Viggó. Topgolf sótt af milljónum Þá segir hann að fyrirtækið Topgolf sé sem dæmi orðið gríðar- lega vinsælt í Bandaríkjunum og Bretlandi, en tugir milljóna manna sækja æfingasvæði þess utanhúss á hverju ári, spila golfleiki og skemmta sér um leið. „Það má segja að Topgolf hafi brotið ísinn og sýnt fram á að fólk sem ekkert kann í golfi hefur mjög gaman af því að fara í golfleiki. Topgolf er að opna innanhússstaði núna, sam- bærilega mínum stað. Þeir eiga örugglega eftir að ganga vel. Það eru miklar hræringar í bransanum og undanfarin ár hefur allur bún- aður sem nýtist í golfherma verið að batna mikið. Sem dæmi um áreiðanleika golfherma þá er varla nokkur atvinnukylfingur í dag sem ekki æfir með slíkum búnaði. Þar fæst enda mun betri tölfræði út úr æfingunum, og hægt er að taka myndbönd af sveiflunni og skoða hana frá öllum sjónarhornum. Höggnemar og tölvusjón hafa þróast mjög hratt og hefur gjör- breytt gæðum búnaðarins.“ Fáir höfðu trú á verkefninu Viggó segir að hugmyndin að Golfklúbbnum hafi upphaflega fæðst á árunum fyrir hrun, en erfiðlega hafi gengið að fá fjár- festa í lið með sér. Fáir hafi haft trú á verkefninu. Að lokum ákvað hann að láta slag standa og opna í Holtagörðum. „Ég var með þeim fyrstu í heiminum til að opna svona stað – þ.e. veitinga-/ skemmtistað með golfhermum. Fyrst þegar ég fékk hugmyndina féllust mér hendur því hermarnir höfðu ekki náð þeim þroska sem ég taldi og vildi, en svo fleygði tækninni fram. Ég vildi opna stað þar sem fólk, bæði vanir kylfingar og almenningur sem aldrei hefur farið í golf, myndi upplifa golf sem hreina skemmtun, og fá tækifæri til að koma og hafa gam- an af. Fólki fannst hugmyndin skrýtin í upphafi því mörgum finnst golf óaðgengilegt, en að mínu mati er þetta bara leikur sem allir geta spilað og skemmt sér í.“ Fleiri staðir á leiðinni Viggó útilokar ekki að opna fleiri staði hér á landi. „Ég hef viðrað ákveðnar hugmyndir um það, en rekstur veitingahúsa er ekki góður á Íslandi núna. Menn þora ekki að snerta á svona hug- myndum eins og staðan er í dag. Það hamlar för.“ Mögulega fyrstur með hugmyndina Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Ný tegund skemmtistaða hefur verið að ryðja sér til rúms bæði hér á landi og annars staðar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Viggó segir að fólki hafi fundist hugmyndin skrýtin í upphafi því mörgum finnist golf óaðgengilegt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.