Morgunblaðið - 04.12.2019, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 11
Reikna má með að velta sjávar-
útvegstengdrar starfsemi á Íslandi
þrefaldist á næstu tveimur áratug-
um. Spilar þar inn í að fiskeldi mun
stóraukast en
einnig umsvif
tæknifyrirtækja
sem og fyrirtækja
sem nota líftækni
til að skapa verð-
mætar vörur úr
hliðarafurðum
sjávarútvegsins.
Þetta kemur
fram í Bak við ystu sjónarrönd, veg-
legu nýju riti sem Íslenski sjávar-
klasinn hefur gefið út. Þar er þess
freistað að skyggnast inn í framtíð
bláa hagkerfisins og dregin upp
mynd af tækifærum og áskorunum
framundan með innleggjum 26 inn-
lendra og erlendra álitsgjafa úr ýms-
um áttum.
Þór Sigfússon er stofnandi Ís-
lenska sjávarklasans og einn af höf-
undum ritsins. Hann segir vöxt í
veiðum og vinnslu m.a. skýrast af því
að vænta má verulegra hækkana á
fiskverði á komandi áratugum, í takt
við fólksfjölgun í heiminum og vax-
andi kaupmátt neytenda í öllum
heimshlutum. Þá megi reikna með að
íslensk sjávarútvegsfyrirtæki láti að
sér kveða erlendis og taki t.d. þátt í
verkefnum af ýmsum toga í Evrópu
og Bandaríkjunum. Sjávarklasinn
spáir hins vegar hlutfallslega meiri
vexti í fiskeldi og áætlar að þar aukist
veltan nærri sautjánfalt á næstu tutt-
ugu árum:
„Bæði má vænta þess að umsvif
sjókvíaeldis á tegundum eins og laxi
haldi áfram að aukast og einnig get-
um við búist við að fleiri fisktegundir
verði ræktaðar í eldisstöðvum jafnt á
landi og í sjó,“ segir Þór.
Ungir sprotar orðnir
verðmætari en útgerðir
Það kann að koma sumum les-
endum á óvart að í ritinu er spáð öllu
hægari vexti hjá sjávarútvegs-
tengdum tæknifyrirtækjum og í þeim
geira sem snýr að fullnýtingu afurða
og líftækni. Þar væntir Sjávarklasinn
rösklega fjórföldunar í veltu annars
vegar og rúmlega þreföldunar hins
vegar. Þór bendir á að hér kunni vel
að vera að spáin vanáætli vöxtinn
enda megi þegar finna dæmi um til-
tölulega ung líftæknifyrirtæki sem
vinna með sjávarafuðrir og eru orðin
verðmætari en margar stöndugar út-
gerðir, og eiga samt enn mikið inni.
En þessi mikli vöxtur sem spáð er
mun ekki gerast af sjálfu sér, og rétt
eins og sjá má glitta í tækifærin við
sjóndeildarhringinn þá blasa líka
ýmsar áskoranir og hindranir við.
Þór nefnir fyrst af öllu að vöxturinn
verði háður því að bláa hagkerfið búi
að þeim mannauði sem þarf. Hann
segir brýnt að gert verði átak í
menntamálum og rannsóknum til að
vekja áhuga ungs og efnilegs fólks á
að starfa við bláa hagkerfið og
tryggja að á Íslandi séu stundaðar
rannsóknir á heimsmælikvarða: „Er
gott að hafa það hugfast að flest þau
nýsköpunarverkefni sem orðið hafa
að öflugum fyrirtækjum áttu upphaf
sitt í rannsóknum á vegum háskól-
anna eða stofnana eins og Matís.
Bæði er þáttur rannsókna gríðarlega
þýðingarmikill fyrir vöxt greinar-
innar og um leið erum við háð háskól-
unum um að ala upp sjávarútvegs-
frumkvöðla framtíðarinnar.“
Þór bætir við að þó aðsókn í sjávar-
útvegstengt nám hafi farið vaxandi
þá þurfi að gera enn betur. „Er vert
að skoða að sameina skóla sem bjóða
upp á kennslu á þessu sviði og sam-
hliða því byggja upp alþjóðlegt nám
svo að við getum laðað til starfa í haf-
geiranum hæfileikafólk frá öllum
heimshornum.“
Þurfum ekki að
vera áhorfendur
Þá þykir ljóst að greinin þurfi að
sýna sveigjanleika og aðlögunahæfni
enda vísbendingar um að lífríkið í
hafinu muni breytast í takt við sveifl-
ur í hitastigi og sýrustigi. Stærðir
fiskstofna gætu tekið breytingum,
sumir stofnar yfirgefið íslenska lög-
sögu og aðrir komið inn í staðinn. Þór
segir hluta af því að auka sveigjan-
leika greinarinnar að renna sem
flestum stoðum undir bláa hagkerfið,
en þá hafi reynslan sýnt að íslenskur
sjávarútvegur kann að aðlagast hratt
og skemmst að minnast þess hvernig
greinin nýtti sér komu makrílsins í ís-
lenska lögsögu.
Í riti Sjávarklasans er því spáð að
loftslagsbreytingar og plastmengun
muni þrengja að greininni og ljóst að
nú þegar er mikil umræða um plast í
sjávarfangi farin að lita viðhorf neyt-
enda. Þór segir að þrátt fyrir að
smæð landsins þýði að Ísland geti
eitt og sér litlu breytt um áhrif
mannsins á náttúruna þá þurfi Ísland
ekki að sætta sig við að vera bara
áhorfandi: „Við getum áorkað heil-
miklu með því t.d. að vera öðrum
þjóðum góð fyrirmynd, og erum nú
þegar langt komin á þeirri vegferð,
t.d. með fyrstu rafvæddu fiskveiði-
skipunum,“ útskýrir Þór. „Þá eru
mörg frumkvöðlafyrirtæki, bæði ung
og rótgróin, að koma með nýjar og
umhverfisvænar lausnir á markað,
ætlaðar til notkunar í sjávarútvegi
um allan heim. Sú tækniþekking sem
hefur orðið til á Íslandi ætti því að
geta breytt heiminum og gert sjávar-
útveg annarra þjóða grænni.“
Risastór tækifæri í sjónmáli
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Sjávarklasinn spáir því að
bláa hagkerfið haldi áfram
að stækka ört. Gæta þarf
að því að ungt fólk hafi
áhuga á að mennta sig í
sjávarútvegstengdum fög-
um og eins verður að huga
að áhrifum hitastigsbreyt-
inga og plastmengunar.
Áætlaður vöxtur sjávarútvegs og tengdra sviða
Heimild: Bak við ystu sjónarrönd / Sjávarklasinn
Velta bláa hagkerfisins á næstu 20 árum
16
86
48 85
42
86
4 9
300
444
657
270 178
154
5 13
33
VEIÐAR OG VINNSLA
FISKELDI
HAFTENGD
FERÐA-
ÞJÓNUSTA
FULLNÝTING AUKAAFURÐA
OG LÍFTÆKNI
TÆKNIFYRIRTÆKI
ÞARI OG
ÞÖRUNGAMJÖL
19
2019 2029 2039
Milljarðar króna
Þór Sigfússon
Bláa hagkerfið á Íslandi á inni
mikinn vöxt á komandi áratugum.
Afurðaverð á markaði
3. des. 2019, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 372,01
Þorskur, slægður 460,42
Ýsa, óslægð 317,63
Ýsa, slægð 308,93
Ufsi, óslægður 75,17
Ufsi, slægður 157,79
Gullkarfi 167,54
Blálanga, slægð 175,88
Langa, óslægð 5,00
Langa, slægð 180,82
Keila, óslægð 83,15
Keila, slægð 110,12
Steinbítur, óslægður 49,61
Steinbítur, slægður 283,81
Skötuselur, slægður 538,08
Grálúða, slægð 483,35
Skarkoli, slægður 396,54
Þykkvalúra, slægð 922,04
Sandkoli, óslægður 67,00
Bleikja, flök 1.552,50
Gellur 855,50
Hlýri, óslægður 142,00
Hlýri, slægður 304,59
Hrogn/þorskur 105,00
Hvítaskata, slægð 10,00
Lúða, slægð 511,23
Skata, slægð 2,00
Stórkjafta, slægð 11,00
Tindaskata, óslægð 10,41
Undirmálsýsa, óslægð 116,65
Undirmálsýsa, slægð 111,74
Undirmálsþorskur, óslægður 209,93
Undirmálsþorskur, slægður 218,72
Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is
Alhliða
Ræstingar
Öflugt gæðaeftirlit
og góð þjónusta
Hafðu samband og við gerum fyrir þig
þarfagreiningu og tilboð í þjónustu
án allra skuldbindinga.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum