Morgunblaðið - 04.12.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.12.2019, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 11 Reikna má með að velta sjávar- útvegstengdrar starfsemi á Íslandi þrefaldist á næstu tveimur áratug- um. Spilar þar inn í að fiskeldi mun stóraukast en einnig umsvif tæknifyrirtækja sem og fyrirtækja sem nota líftækni til að skapa verð- mætar vörur úr hliðarafurðum sjávarútvegsins. Þetta kemur fram í Bak við ystu sjónarrönd, veg- legu nýju riti sem Íslenski sjávar- klasinn hefur gefið út. Þar er þess freistað að skyggnast inn í framtíð bláa hagkerfisins og dregin upp mynd af tækifærum og áskorunum framundan með innleggjum 26 inn- lendra og erlendra álitsgjafa úr ýms- um áttum. Þór Sigfússon er stofnandi Ís- lenska sjávarklasans og einn af höf- undum ritsins. Hann segir vöxt í veiðum og vinnslu m.a. skýrast af því að vænta má verulegra hækkana á fiskverði á komandi áratugum, í takt við fólksfjölgun í heiminum og vax- andi kaupmátt neytenda í öllum heimshlutum. Þá megi reikna með að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki láti að sér kveða erlendis og taki t.d. þátt í verkefnum af ýmsum toga í Evrópu og Bandaríkjunum. Sjávarklasinn spáir hins vegar hlutfallslega meiri vexti í fiskeldi og áætlar að þar aukist veltan nærri sautjánfalt á næstu tutt- ugu árum: „Bæði má vænta þess að umsvif sjókvíaeldis á tegundum eins og laxi haldi áfram að aukast og einnig get- um við búist við að fleiri fisktegundir verði ræktaðar í eldisstöðvum jafnt á landi og í sjó,“ segir Þór. Ungir sprotar orðnir verðmætari en útgerðir Það kann að koma sumum les- endum á óvart að í ritinu er spáð öllu hægari vexti hjá sjávarútvegs- tengdum tæknifyrirtækjum og í þeim geira sem snýr að fullnýtingu afurða og líftækni. Þar væntir Sjávarklasinn rösklega fjórföldunar í veltu annars vegar og rúmlega þreföldunar hins vegar. Þór bendir á að hér kunni vel að vera að spáin vanáætli vöxtinn enda megi þegar finna dæmi um til- tölulega ung líftæknifyrirtæki sem vinna með sjávarafuðrir og eru orðin verðmætari en margar stöndugar út- gerðir, og eiga samt enn mikið inni. En þessi mikli vöxtur sem spáð er mun ekki gerast af sjálfu sér, og rétt eins og sjá má glitta í tækifærin við sjóndeildarhringinn þá blasa líka ýmsar áskoranir og hindranir við. Þór nefnir fyrst af öllu að vöxturinn verði háður því að bláa hagkerfið búi að þeim mannauði sem þarf. Hann segir brýnt að gert verði átak í menntamálum og rannsóknum til að vekja áhuga ungs og efnilegs fólks á að starfa við bláa hagkerfið og tryggja að á Íslandi séu stundaðar rannsóknir á heimsmælikvarða: „Er gott að hafa það hugfast að flest þau nýsköpunarverkefni sem orðið hafa að öflugum fyrirtækjum áttu upphaf sitt í rannsóknum á vegum háskól- anna eða stofnana eins og Matís. Bæði er þáttur rannsókna gríðarlega þýðingarmikill fyrir vöxt greinar- innar og um leið erum við háð háskól- unum um að ala upp sjávarútvegs- frumkvöðla framtíðarinnar.“ Þór bætir við að þó aðsókn í sjávar- útvegstengt nám hafi farið vaxandi þá þurfi að gera enn betur. „Er vert að skoða að sameina skóla sem bjóða upp á kennslu á þessu sviði og sam- hliða því byggja upp alþjóðlegt nám svo að við getum laðað til starfa í haf- geiranum hæfileikafólk frá öllum heimshornum.“ Þurfum ekki að vera áhorfendur Þá þykir ljóst að greinin þurfi að sýna sveigjanleika og aðlögunahæfni enda vísbendingar um að lífríkið í hafinu muni breytast í takt við sveifl- ur í hitastigi og sýrustigi. Stærðir fiskstofna gætu tekið breytingum, sumir stofnar yfirgefið íslenska lög- sögu og aðrir komið inn í staðinn. Þór segir hluta af því að auka sveigjan- leika greinarinnar að renna sem flestum stoðum undir bláa hagkerfið, en þá hafi reynslan sýnt að íslenskur sjávarútvegur kann að aðlagast hratt og skemmst að minnast þess hvernig greinin nýtti sér komu makrílsins í ís- lenska lögsögu. Í riti Sjávarklasans er því spáð að loftslagsbreytingar og plastmengun muni þrengja að greininni og ljóst að nú þegar er mikil umræða um plast í sjávarfangi farin að lita viðhorf neyt- enda. Þór segir að þrátt fyrir að smæð landsins þýði að Ísland geti eitt og sér litlu breytt um áhrif mannsins á náttúruna þá þurfi Ísland ekki að sætta sig við að vera bara áhorfandi: „Við getum áorkað heil- miklu með því t.d. að vera öðrum þjóðum góð fyrirmynd, og erum nú þegar langt komin á þeirri vegferð, t.d. með fyrstu rafvæddu fiskveiði- skipunum,“ útskýrir Þór. „Þá eru mörg frumkvöðlafyrirtæki, bæði ung og rótgróin, að koma með nýjar og umhverfisvænar lausnir á markað, ætlaðar til notkunar í sjávarútvegi um allan heim. Sú tækniþekking sem hefur orðið til á Íslandi ætti því að geta breytt heiminum og gert sjávar- útveg annarra þjóða grænni.“ Risastór tækifæri í sjónmáli Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sjávarklasinn spáir því að bláa hagkerfið haldi áfram að stækka ört. Gæta þarf að því að ungt fólk hafi áhuga á að mennta sig í sjávarútvegstengdum fög- um og eins verður að huga að áhrifum hitastigsbreyt- inga og plastmengunar. Áætlaður vöxtur sjávarútvegs og tengdra sviða Heimild: Bak við ystu sjónarrönd / Sjávarklasinn Velta bláa hagkerfisins á næstu 20 árum 16 86 48 85 42 86 4 9 300 444 657 270 178 154 5 13 33 VEIÐAR OG VINNSLA FISKELDI HAFTENGD FERÐA- ÞJÓNUSTA FULLNÝTING AUKAAFURÐA OG LÍFTÆKNI TÆKNIFYRIRTÆKI ÞARI OG ÞÖRUNGAMJÖL 19 2019 2029 2039 Milljarðar króna Þór Sigfússon Bláa hagkerfið á Íslandi á inni mikinn vöxt á komandi áratugum. Afurðaverð á markaði 3. des. 2019, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 372,01 Þorskur, slægður 460,42 Ýsa, óslægð 317,63 Ýsa, slægð 308,93 Ufsi, óslægður 75,17 Ufsi, slægður 157,79 Gullkarfi 167,54 Blálanga, slægð 175,88 Langa, óslægð 5,00 Langa, slægð 180,82 Keila, óslægð 83,15 Keila, slægð 110,12 Steinbítur, óslægður 49,61 Steinbítur, slægður 283,81 Skötuselur, slægður 538,08 Grálúða, slægð 483,35 Skarkoli, slægður 396,54 Þykkvalúra, slægð 922,04 Sandkoli, óslægður 67,00 Bleikja, flök 1.552,50 Gellur 855,50 Hlýri, óslægður 142,00 Hlýri, slægður 304,59 Hrogn/þorskur 105,00 Hvítaskata, slægð 10,00 Lúða, slægð 511,23 Skata, slægð 2,00 Stórkjafta, slægð 11,00 Tindaskata, óslægð 10,41 Undirmálsýsa, óslægð 116,65 Undirmálsýsa, slægð 111,74 Undirmálsþorskur, óslægður 209,93 Undirmálsþorskur, slægður 218,72 Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is Alhliða Ræstingar Öflugt gæðaeftirlit og góð þjónusta Hafðu samband og við gerum fyrir þig þarfagreiningu og tilboð í þjónustu án allra skuldbindinga. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.