Morgunblaðið - 04.12.2019, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 04.12.2019, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 13SJÓNARHÓLL You Are: How To Create Your Bus- iness Culture. Að skapa góða vinnustaðamenn- ingu er heljarinnar áskorun – meira að segja hjá sprotafyrirtæki þar sem byrjað er frá grunni með alveg hrein- an skjöld. Höfundi þykir það glap- ræði að ætla að láta tilviljun ráða hvernig menning verður til hjá fyrirtæki og lítur svo á að stór hluti af skyldum stjórnenda sé að beina menning- unni á rétta braut. Horowitz leitar fanga í aðferðum manna á borð við To- ussaint Louverture, Genghis Khan og fangelsismála- frömuðinn Shaka Senghor, auk þess að gefa dæmi úr banda- rísku sprotalífi. Eðlilega eru dæmin mörg hver víti til varnaðar, eins og hvernig Travis Kalanic tókst að skapa mjög kröftugan samkeppnisanda hjá Uber, en gleymdi að tryggja að starfsfólk héldi sig innan ákveðinna siðferðismarka í allri kappseminni. ai@mbl.is BÓKIN Ben Horowitz hefur betri innsýn en flestir í rekstur margra merkilegustu sprotafyrirtækja Kísildals. Hann er annar stofnenda fjárfestingarsjóðsins Andreesen Horowitz en sjóðurinn hefur stórgrætt á fjárfestingum í fyrirtækjum á borð við Skype, Face- book, Groupon, Twitter, GitHub, Airbnb og Lyft. Listinn er langur og þykir það ekki lítill gæðastimpill fyrir sprota að hafa And- reesen Horowitz í hópi fjárfesta. Í nýrri bók skoðar Horowitz hvað það er sem stuðlar að slæmri og góðri vinnustaðamenningu og byggir þar á því sem hann hefur séð gerast með eigin augum í sprotaheiminum, en vísar líka til dæma úr mannkynssög- unni um leiðtoga sem tókst á hugvit- samlegan hátt að fylkja fólki á bak við sig. Bókin heitir What You Do Is Who Lykillinn að góðri menningu á vinnustað Í settum lögum frá Alþingi er mælt fyrir um reglursem gilda í samskiptum manna í milli sem oggagnvart ríkisvaldinu. Þótt við samningu laga sé leitast við að hafa lagatexta skýran þá koma iðulega upp álitamál um það hvaða skilning ber að leggja í tilgreind lagaákvæði. Ein grunnstoða aðferðafræði lögfræðinnar eru lögskýringarfræðin, en þau hafa það markmið að ákvarða hvað felst í raun og veru í texta settra laga og marka inntak þeirra. Þegar leitast er við að afmarka inntak lagaákvæðis er upphafspunkturinn ávallt orðalag þess. Önnur atriði geta þó komið til skoðunar þegar leitast er við að túlka lagaákvæði, svo sem umfjöllun sem finna má í athugasemdum með frumvarpi til laga. Að lokinni athugun á gögnum og upplýsingum sem geta komið að notum við túlkun laga þarf svo að taka afstöðu til þess hvort tilgreint tilvik falli undir lagaákvæði eða ekki. Dæmi má nefna um það að í lögum um tekju- stofna sveitarfélaga var áður mælt fyrir um það að svonefnd „sæluhús“ væru undanþegin fasteigna- skatti. Í dómi Hæstaréttar í máli nr. 154/1997 var deilt um það hvort gistiskáli Ferðafélags Íslands á hálendinu teldist sæluhús þannig að hann væri und- anþeginn álagningu fasteignaskatts. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í dómi sínum að sæluhús væru hús eða skýli sem gegndu því meginhlutverki að þeir sem lentu í hrakningum á ferð um landið gætu þar leitað skjóls. Þar sem umræddur gistiskáli hafði fyrst og fremst það hlutverk að hýsa ein- staklinga í skipulögðum ferðum um landið var hann ekki talinn falla undir hugtakið sæluhús og því and- lag fasteignaskatts. Almennt er sá túlkunarkostur lagður til grundvall- ar að lagaákvæði er skýrt samkvæmt orðanna hljóð- an, þ.e. í samræmi við almenna málvenju. Á vissum réttarsviðum er ríkari tilhneiging til þess að skýra lagaákvæði þrengjandi, sem felur það í sér að efni lagaákvæðis fær eftir atvikum þrengra inntak en ætla mætti samkvæmt almennri málvenju. Í fræði- skrifum hefur meðal annars verið vísað til þess að slík lögskýringarleið komi til skoðunar þegar íþyngj- andi kvaðir eru lagðar á herðar borgaranna, svo sem á sviði refsiréttar og skattaréttar. Hvað skattalöggjöf áhrærir þá verður þó ekki í öllum til- vikum fundin fyrir því stoð að skýra beri skattalöggjöf þröngt. Í því samhengi má nefna að lög um tekjuskatt leggja skatt á „tekjur“, en það hugtak er samkvæmt löggjöf- inni útlistað með rúmum hætti, sbr. 7. gr. laganna. Sömu sögu er að segja um lög um virðisaukaskatt, en virð- isaukaskattur er lagður á allar vörur, vinnu og þjónustu, sbr. 2. gr. laganna. Í tilvikum af þessum toga verða skattalög sjaldnast túlkuð þröngt, jafnvel þótt slík niðurstaða væri borg- urunum í hag. Fremur má ætla, þegar reynir á túlk- un slíkra laga, að undantekningar frá skattskyldu- sviði þeirra sæti þrengjandi túlkun. Eitt sjónarmið sem styður það að skattalög af um- ræddum toga sæti ekki þröngri skýringu er jafnræði borgaranna. Rauður þráður í beitingu skattalaga er sá að einstaklingar og lögaðilar geti ekki með ráð- stöfunum sín í milli breytt eðli gernings þannig að þeir komist undan skattskyldu meðan aðrir aðilar í efnislega sambærilegri stöðu greiða skattinn. Þegar skattskyldusvið laga er mjög afmarkað getur á hinn bóginn frekar verið tilefni til þröngrar lögskýringar ríki vafi um það hvort tiltekið tilvik falli undir gild- issvið laganna. Nokkur orð um túlkun skattalaga LÖGFRÆÐI Sindri M. Stephensen lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík ” Á vissum réttarsviðum er ríkari tilhneiging til þess að skýra lagaákvæði þrengj- andi, sem felur það í sér að efni lagaákvæðis fær eftir atvikum þrengra inntak en ætla mætti samkvæmt al- mennri málvenju. Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.