Morgunblaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019FRÉTTIR Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Eftir að hafa komið víða við í fag- inu og starfað við stefnumörkun samtakanna í Brussel undanfarin þrjú ár hefur Reynir Sigurðsson verið ráðinn framkvæmdastjóri Borealis Alliance með aðsetur í Reykjavík. Borealis Alliance eru samtök níu flugleiðsöguveitenda í N-Evrópu og er Isavia þeirra á meðal. Krefjandi verkefni eru fram undan. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Helstu árskoranir flug- leiðsöguveitenda er að gerðar eru miklar kröfur til afkastagetu og hagkvæmni. Mikil pressa er frá flugfélögum, almenningi og fram- kvæmdastjórn Evrópusambands- ins og jafnvel kröfur um samein- ingu. Í stað þess að hvert fyrirtæki vinni að þessum mark- miðum í sínu horni er ákveðin hagkvæmni í því að vinna saman. Það getur hins vegar verið áskor- un í sjálfu sér að fá fyrirtækin til að sjá þá lausn og koma sér sam- an um aðferð eða leiðir til þess. Helsta áskorunin fyrir Borealis Alliance er að reyna að sjá fyrir hvernig umhverfið muni breytast á næstu fimm til fimmtán árum, gera ráðstafanir, hrinda verk- efnum í gang og jafnvel leiða þá breytingu. Hver myndi leika þig í kvikmynd um líf þitt og afrek? Rowan Atkinson, því við erum nafnar; Rowan þýðir Reynir, og hann er rafmagnsverkfræðingur að uppruna eins og ég. Hugsarðu vel um líkamann? Ég reyni það og spila enn körfubolta með félögum í Old- Boys í Ármanni. Undanfarin þrjú ár hef ég verið starfandi í Brussel og komst þar í hóp félaga frá Grikklandi sem spila körfubolta. Það verður hins vegar að segjast eins og er að í umhverfi eins og Brussel getur verið ansi erfitt að hugsa vel um líkamann. Það er mikið um að farið sé út að borða og að skyndibiti sé á boðstólum í hádeginu. Ég segi það stundum að í Brussel þá eru kvöldverðir og kokteilboð atvinnutengd hætta sem getur valdið heilsutjóni. Þetta SVIPMYND Reynir Sigurðsson framkvæmdastjóri Borealis Alliance Varasöm kokteilboðin í Brussel NÁM: Háskóli Íslands, B.Sc í rafmagnsverkfræði, 1988; Danmarks Tekniske Höjskole, M.Sc. í rafmagnsverkfræði, 1990; Endur- menntun Háskóla Íslands, viðskipta- og rekstrarnám, 2000; Vlerick Business School, stjórnendaþjálfun „Transformation to Lead- ership“, 2018. STÖRF: RARIK, verkfræðingur, 1988-1988; Póstur og sími, verk- fræðingur 1990-1991; Flugmálastjórn Íslands, verkefnastjóri, 1991- 1999; Kögun hf., verkefnastjóri og ráðgjafi, 2000-001; Integra Con- sult A/S, ráðgjafi í flugmálum, 2001-2006; Gagnaveita Reykjavíkur, verkefnastjóri, 2006-2008; Flugmálastjórn Íslands, framkvæmda- stjóri flugleiðsögu- og flugvallasviðs, 2008-013; Samgöngustofa, framkvæmdastjóri mannvirkja- og leiðsögusviðs, 2013-2016; Bo- realis Alliance, framkvæmdastjóri stefnumörkunar og regluverks, 2017-2019 og framkvæmdastjóri frá 2019. ÁHUGAMÁL: Leiklist, körfubolti og golf. FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Þórrúnu Sigríði Þorsteinsdóttur kennara og eigum við börnin Þórdísi, Helgu Maríu og Reyni Tómas. HIN HLIÐIN ÁHUGAMÁLIÐ ViðskiptaMogginn hefur fylgst vand- lega með uppátækjum Bentley á 100 ára afmæli lúxusbílaframleiðandans. Þannig fjallaði blaðið um forláta Bentley-golfkylfusett sem kom á markað fyrr á árinu, og var vitaskuld bæði rándýrt og í takmörkuðu upp- lagi. Nú voru að bætast við Bentley- skíði, smíðuð af bandaríska fyrir- tækinu Bomber. Settið kostar 3.750 dali sem er gjafverð miðað við golf- kylfurnar sem mátti eignast fyrir fjórfalt hærri upphæð. Aðeins verða smíðuð 100 eintök, og vitaskuld eru þau skreytt að utan með 24 karata gullhúð. Mynstrið og lögunin sækja innblástur til hugmyndabílsins EXP 100 GT. Skíðin eru ekki bara til þess gerð að hanga uppi á vegg til skrauts, heldur hafa þau verið smíðuð úr bestu fáan- legu efnum og hönnuð þannig að upp- lifun sé að renna sér á þeim. ai@mbl.is Brunað niður brekkurnar á Bentley FARARTÆKIÐ Greinilegt er að miklir áhugamenn um Star Wars vinna hjá hönnunar- deild Porsche. Í tilefni þess að nýj- asta Star Wars-kvikmyndin er á leið í sýningar hönnuðu þeir nýja orr- ustuvél í anda ævintýraheimsins sem George Lucas skapaði. Allt var það gert í góðu samstarfi við hönn- unarteymi Lucasfilm og útkoman er orrustuvélin S-91 Pegasus Star- fighter. Ef að er gáð má sjá eitt og annað í hönnuninni sem minnir á Porsche 911-sportbílinn, s.s. kúpt flugmanns- rýmið og afturljósin. Framljósin eru síðan fengin að láni frá Taycan- rafbílnum. Flugmaðurinn situr fyrir miðju, fremst í vélinni, en fyrir aftan hann eru sæti fyrir tvo farþega. S-91 Pegasus kemur ekki við sögu í nýju Star Wars-myndinni, en það er aldrei að vita nema að í seinni kvikmyndum og þáttum muni ein- hver hetjan eða skúrkurinn úr fjar- lægri stjörnuþoku sjást þjóta yfir skjáinn á þessu farartæki. ai@mbl.is Mátturinn er með Porsche stendur hins vegar allt til bóta. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Ef ég ætti að bæta við mig gráðu myndi ég taka áhættu- stjórnun. Ég hef verið verk- efnastjóri í mörg ár og séð það að of oft er áherslan á að fram- kvæma verkefnin skv. áætlun og hafa stjórn á kostnaði. En öll verkefni eru breytingum háð, umhverfið breytist og oft á tíð- um er hægt að sjá þetta fyrir með einfaldri greiningu. Þannig ætti hugsanlega fókusinn ekki að vera bara á hvað við erum að gera heldur hvað gæti farið úr- skeiðis og hvaða ráðstafanir við ætlum að gera til að koma í veg fyrir að það gerist. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Mér líður best í faðmi fjöl- skyldunnar og vil helst hafa alla í kringum mig, sérstaklega ef ég hef verið mikið fjarverandi. Þá er stundum gott að vera saman og gera ekki neitt. Reynir segir þrýst á flugleiðsöguveit- endur að hagræða í rekstrinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.