Morgunblaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019VIÐTAL HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í eiginfjárkröfur til bankanna og mun það gera verkefni stjórnenda þeirra enn vandasamara. Mætti endurskoða þessa nálgun, ekki síst nú þegar starfsemi Fjármálaeft- irlitsins færist undir hatt Seðla- bankans innan skamms? „Það eru tvær nefndir sem koma að þessum ákvörðunum. Það er annars vegar peningastefnunefndin og hjá henni er markmiðið skýrt, þ.e. að örva hagkerfið. Hins vegar er það kerfisáhættunefnd, sem reyndar er verið að leggja af, og hún hugar að kerfisáhættu og fjármálastöðugleika. Hún telur að við núverandi aðstæður sé rétt að halda fast við þá ákvörðun sem tek- in var fyrir ári að hækka eiginfjár- aukann.“ Í reiptogi við sjálfan sig Ertu sammála því mati við þess- ar aðstæður þar sem Seðlabankinn stefnir í að verða í reiptogi við sjálf- an sig? „Það fer eftir því við hvað er mið- að. Frá fjármálastöðugleikasjónar- miði skiptir máli að bankarnir hafi nægilegt eigið fé til þess að geta brugðist við útlánatöpum. Það sjón- armið getur vel átt við þó peninga- pólitíkin miði að því að örva hag- kerfið. Ég vil einnig nefna að eiginfjárkvaðir bankanna eru að fara að lækka á næsta ári vegna nýrra reglna frá Evrópu er varða afslátt til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.“ En eiginfjárkröfurnar eru ein ástæðan fyrir því að menn eru að minnka lánabækur hjá sér, þeir ná ekki ávöxtun á þetta mikla eigið fé og vaxtalækkunin gerir það jafnvel enn erfiðara. Útlánamarkaðurinn minnkar. Þarf þá ekki að gera drastískar breytingar á eiginfjár- kröfunum? „Ekki núna. Að einhverju leyti tosast þetta á en verkefnin sem ver- ið er að fást við eru ólík. Peninga- stefnan miðar að því að örva hag- kerfið, hitt snýst um að bankarnir séu vel fjármagnaðir þegar við komum að niðursveiflunni og að ör- yggi þeirra sé tryggt. Þetta kann að vega gegn peningastefnunni en við verðum að finna rétt jafnvægi þarna á milli.“ Aukin áhersla á fjármálastöðugleika Nú vinnur Seðlabankinn eftir verðbólgumarkmiði. Kann að vera að ofuráhersla hafi verið lögð á fjár- málastöðugleikann í kerfinu undan- farin ár? „Það er góð spurning. Í lögunum um Seðlabankann frá 2001 var ekki minnst á fjármálastöðugleika. Svo var ekki einn aðili sem bar ábyrgð á honum. Það var vandinn, bankinn hafði ekki raunverulegt umboð til þess að gera neitt jafnvel þótt hann hafi varað við þróun mála á sínum tíma. Fjármálastöðugleikinn hefur verið tekinn mun alvarlegar eftir hrunið. Og með sameiningu Fjár- málaeftirlitsins og Seðlabankans verður einn aðili í ábyrgð fyrir fjár- málastöðugleika. Þá leiðir það óhjá- kvæmilega til meiri samhæfingar milli þjóðhagsvarúðar og peninga- stefnunnar. Hér áður var peninga- stefnan framkvæmd á kostnað fjár- málastöðugleika, sem hinn mikli vaxtamunur við útlönd vitnar um á árunum á eftir hrun.“ Má skilja aukna áherslu á fjár- málastöðugleikann þannig að Seðla- bankinn muni gera hvað sem er til þess að halda bankastofnunum á lífi, jafnvel þegar í óefni er komið? „Nú er verið að setja í fastar skorður með lagasetningu svokallað skilavald Seðlabankans. Það gefur bankanum skýrar heimildir til að grípa inn í starfsemi bankanna. Það er alveg klárt að við munum beita þeim heimildum ef þörf krefur. Helsta vandamálið fyrir hrun voru eigendur þeirra, hin skuldsettu eignarhaldsfélög sem fengu lánað fé hjá bönkunum. Þau mistök verða aldrei gerð aftur að leyfa slíku ástandi að magnast upp. En ef ríkið selur bankana, sem er æskilegt enda óheppilegt að ríkið sé með alla þessa fjármuni bundna í banka- stofnunum, þá munum við ekki sýna neina linkind. Það er lærdóm- ur sem við höfum dregið, að miklu fyrr yrði gripið inn í en reyndin var áður.“ Í þessu sambandi rifjar Ásgeir upp að hann var aðalhagfræðingur Kaupþings á sínum tíma. Hefur það raunar verið dregið upp í um- ræðunni í kjölfar skipunar hans í stól seðlabankastjóra. „Ég var 33 ára þegar þegar ég var skipaður aðalhagfræðingur Kaupþings. Það var mikill skóli. Sú reynsla herðir mig í þeirri afstöðu að nýr sameinaður Seðlabanki beiti afli sínu, sé þess þörf. Við leyfum ekki ójafnvægi að byggjast upp í kerfinu aftur. Nú erum við komin með öll tækin í Seðlabankann til þess að standa þessa vakt með við- hlítandi hætti. Ég vil þó ítreka að bankarnir hafa staðið sig vel síð- ustu árum. Þeir hafa mikið eigið fé og skuldsetning einstaklinga og fyr- irtækja hefur verið nokkuð stöðug sem hlutfall af landsframleiðslu. Nýgerðir kjarasamningar, beiting ríkisfjármálastefnunnar og almenn- ur verðstöðugleiki munu styðja við aukinn kaupmátt í landinu og það mun aftur styðja við efnahags- umsvifin. Því held ég að það sé ekki mikil hætta á útlánatöpum vegna heimilanna. Væntanlega þurfa bankarnir að afskrifa eitthvað vegna samdráttar í ákveðnum at- vinnugeirum en það er ekkert sem bendir til þess að það verði veru- legt.“ Fagnar auknum slaka í ríkisfjármálum Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hafa boðað talsverða útgjaldaaukn- ingu á komandi misserum og Alþingi hefur lagt blessun sína yfir þau áform. Ásgeir fagnar þeim áformum og telur þau síst til marks um að stjórnvöld séu að missa tökin á stöð- unni í hagkerfinu. „Það sem hefur batnað mikið á Ís- landi er samhæfing ríkisfjármála og peningamála. Seðlabankinn var á ár- um áður sífellt að hækka vexti til að halda aftur af verðbólgu en á sama tíma jók ríkissjóður útgjöld sín, jafn- vel þegar engin þörf var á. Það kynti undir verðbólgunni sem bankinn var að reyna að halda aftur af. Við fögn- um því hins vegar núna þegar meiri slaki kemur á ríkisfjármálin þegar hægir á hagkerfinu. Slaki í stefnunni felur ekki í sér að allt verði keyrt um koll en það þarf vissulega að fara varlega og þess vegna höfum við hægt á vaxtalækkunarferlinu.“ Ásgeir segir að aukin áhersla á innviðauppbyggingu þjóni sem mik- ilvæg innspýting í kólnandi hagkerfi en að áhersla á hana hafi fleiri já- kvæðar afleiðingar í för með sér. „Innviðina þurfum við til að tryggja þjóðhagslega hagkvæmni. Ég held að það hafi verið mistök að ráðast ekki í miklar framkvæmdir af þessu tagi strax eftir hrunið. Ef það hægir mjög á hagkerfinu, og ég ótt- ast persónulega að áhættan sé frek- ar niður á við með versnandi efna- hagshorfum en hitt, þá á ríkið að bregðast við með því að setja kraft í innviðafjárfestingu. Samhliða því getum við í Seðlabankanum létt und- ir með vaxtalækkunum.“ Skatta á að lækka í niðursveiflu En eru skattalækkanir ekki góð leið til þess að örva hagkerfið og gefa fyrirtækjum og einstaklingum frekar tækifæri til að keyra hjól efnahagslífsins í gang að nýju frem- ur en að fela opinberum aðilum það verkefni sí og æ? „Tími til að lækka skatta er í niðursveiflu en Seðlabankinn hefur ekki skoðun á því hvaða farveg rík- isfjármálastefnan velur sér. Íslend- ingar hafa alltaf haft skilning á mik- ilvægi ríkisins og við höfum alltaf skilið að ekki er hægt að reka rík- issjóð með óvarlegum hætti. Við höf- um því alltaf rekið ríkissjóð með skynsamlegum hætti þegar kemur að skuldsetningunni. En sögulega séð hefur skort á skilning á því hvernig ríkisfjármálin geta unnið gegn neikvæðri þróun í hagkerfinu og ýtt undir jákvæða þróun þegar þörf krefur. En núna virðist vera að verða breyting þar á.“ Og Ásgeir bendir á að vaxtastigið, bæði hér heima og erlendis, gefi einnig ástæðu fyrir ríkið til að ráðast í umfangsmiklar framkvæmdir á þessum tímapunkti. „Aðgengi hins opinbera að fjár- magni er mjög hagstætt um þessar mundir og vaxtastigið gerir það að verkum að við stöndum frammi fyrir sögulegu tækifæri til að byggja upp innviði. Það er engu líkara en við séum að fá eins konar „kreppu- niðurgreiðslu“ á innviðum þar sem vextir ytra eru í sögulegu lágmarki. Og það er það sem núna þarf að gera. Vegakerfið er t.d. nokkrum númerum of lítið fyrir okkur, ekki síst þegar litið er til uppbyggingar ferðaþjónustunnar. Ef við berum gæfu til þess að hefja þessa upp- byggingu núna þá munum við njóta þess mjög á komandi árum og ára- tugum.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Á þeim fjórum mánuðum sem Ásgeir hefur gegnt embætti seðlabankastjóra hefur peningastefnunefnd bankans ákveðið að lækka stýrivexti þrisvar sinnum. Þeir eru nú í sögulegu lágmarki og ekki útilokað að þeir muni lækka enn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.