Morgunblaðið - 18.12.2019, Side 11

Morgunblaðið - 18.12.2019, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 11SJÁVARÚTVEGUR Hjá Fiskbúð Fúsa í Skipholti 70 er desember töluvert frábrugðinn öðrum mánuðum ársins. „Í venjulegum mánuði gengur salan best fyrstu tvær vikurnar en hægir svo á seinni helming mánaðarins. Í desember er þessu öf- ugt farið; mánuðurinn byrjar rólega en salan eykst svo jafnt og þétt allt fram á síðustu viku,“ segir Sigfús Sigurðsson fisksali og handboltakempa með meiru. Hefðbundnu fisktegundirnar seljast ágæt- lega í mánuðinum en áberandi aukning er í tegundum eins og laxi og bleikju og margir sem vilja elda risarækju og humar í kringum jól og áramót. „Skatan og saltfiskurinn eru ráðandi í aðdraganda Þorláksmessu, en fólk kaupir gjarnan saltfiskinn með skötunni þegar halda skal matarboð handa þeim sem hafa tak- markaða lyst á kæstum fiski,“ útskýrir Sigfús. „Þá eru margir sem kaupa lax og bleikju til að grafa eða reykja fyrir jólaveislurnar og fer ekki mill mála að mörgum þykir mjög gott að borða hollan og fljótlegan fiskrétt til að bæði spara sér tíma við matseldina í jólaösinni og auka hollustuna í mataræðinu til mótvægis við allt reykta og saltaða kjötið sem fylgir þessum árstíma.“ Ætlaði ekki að hafa langa viðdvöl Sigfús eignaðist fiskbúðina í Skipholti fyrir rétt rúmu ári og hafði þá starfað sem fisksali frá 2013. „Haustið það ár var ég að leita mér að vinnu í kjölfar ýmissa persónulegra erfiðleika og uppákoma og gekk leitin illa. Ég var þó svo heppinn að vera boðið starf hjá Fiskikóng- inum, en ætlaði mér ekki að hafa langa viðdvöl í þessum bransa. Fljótlega fann ég samt hvað starfið átti vel við mig og ánægjulegt að verja deginum bak við afgreiðsluborðið, spjalla við viðskiptavinina og vera innan um fiskinn.“ Fjórum árum síðar skipti Sigfús um vinnu- stað, en hafði stutta viðdvöl á nýja staðnum og fór að leiða hugann að því að hefja eigin rekst- ur. Vildi svo heppilega til að fiskbúðin í Skip- holti var þá boðin til sölu og keypti Sigfús reksturinn í félagi við systur sína og mág. Fiskbúðin Hafrún var á sama stað frá miðjum 7. áratugnum allt fram til ársins 2006 en þá hóf Fiskisaga rekstur í sama rými í nokkur ár og frá 2015 var þar Hafið fiskverslun. „Við þreif- uðum fyrir okkur, og að loknum samninga- viðræðum var gengið frá kaupunum þann 9. nóvember í fyrra.“ Sigfús sér um daglegan rekstur búðarinnar en lætur systur sína halda utan um fjárhags- hliðina. Hér um bil hálfa vikuna nýtur hann að- stoðar fyrrverandi múrara á sjötugsaldri og eru starfsmennirnir þar með upp taldir. Fisk- inn fær Sigfús afhentan flakaðan og fínan og segir hann að þrátt fyrir hærra kílóverð hafi útreikningar leitt í ljós að það væri ekki hag- kvæmara að ætla að flaka og snyrta fiskinn innanhúss. „Með þessu móti fæ ég alltaf þá vöru sem mig vantar, sama hvað, og þarf ekki að halda utan um viðbótarstarfsfólk með öllum þeim ófyrirsjáanlegu uppákomum sem því fylgja,“ segir Sigfús og bætir við að fyrir vikið þurfi hann ekki heldur að byrja vinnudaginn fyrir allar aldir með ferð á fiskmarkaðinn. Hver fiskbúð hefur sínar áherslur og lýsir Sigfús sinni verslun sem fiskbúð af gamla skól- anum með smá úrvali af fiskréttum. „Ég reyni að vera með þetta hefðbundna, s.s. saltfisk, siginn fisk, gellur, nætursaltað, kinnar og reykta ýsu, og vitaskuld þorskinn, lax bæði þverskorinn og í flökum, og bleikjuflök. Til við- bótar við þetta eru á bilinu fjórir til sex fisk- réttir í borðinu.“ Framboðið mest í byrjun vikunnar Meðal þess sem fisksali þarf að gæta vel að er að ekkert fari til spillis og þarf Sigfús að vanda sig við að spá fyrir um óskir neytenda og finna jafnvægi á milli þess að hafa gott framboð en þó ekki svo mikið að hluti fisksins í kæliborðinu seljist ekki. „Ég hef opið á virkum dögum og fæ sendingar af ferskum fiski mánu- daga, þriðjudaga og miðvikudaga. Svo reyni ég að kúpla innkaupin niður og getur gerst að sumar fisktegundir vanti á fimmtudögum og föstudögum. Ýsuna, þorskinn, laxinn og bleikj- una vantar aldrei og það sem er í boði á föstu- dögum reyni ég vitaskuld að hafa sem fersk- ast. Það litla sem eftir er við lokun á föstudagskvöldum er ísað fram á mánudag, en ef ég sé fram á að fiskurinn verði þá kominn á tíma nota ég hann frekar í bollur eða plokkfisk sem geymist betur. Með þessu móti fer nánast ekkert í ruslið,“ útskýrir Sigfús og bætir við að viðskiptavinirnir hafi fullan skilning á því að ekki sé hægt að hafa allar fisktegundir í boði alla daga. Ekki er annað að heyra á Sigfúsi en að reksturinn gangi vel og liggur honum ekkert á að kveðja hvítu gúmmísvuntuna. Hann segir að því að reka eigin fiskbúð fylgi í senn frelsi og ófrelsi: „Maður er mikið bundinn við vinn- una og þarf að vera á staðnum á meðan verið er að byggja reksturinn upp, en á móti kemur að ég er að byggja upp fyrir mig og mína en ekki fyrir aðra. Þá er aldrei leiðinlegt í búðinni og eftir að hafa verið hér í ár er ég farinn að þekkja marga viðskiptavinina ágætlega og gaman að ræða við þá um daginn og veginn á meðan ég pakka inn fiskinum. Ég er líka viss um að þeim finnst það mun skemmtilegra en að fara í stórmarkað og skanna þar fiskpakkn- ingar á sjálfsafgreiðslukassa.“ Fann fljótt að starfið átti vel við hann Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Eftir að hafa lagt handboltann á hilluna fann Sigfús Sigurðsson sér góðan stað á bak við fiskborðið. Gæta þarf að jafnvæginu á milli þess að hafa gott framboð af ferskum fiski en láta samt lítið sem ekkert fara til spillis. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sigfús segir að smekkur yngstu og elstu viðskiptavinanna á fiski sé ekki eins ólíkur í dag og hann var fyrir aðeins nokkrum árum. Unga fólkið er orðið áhugasamt um að prófa t.d. gellur og reyktan fisk, en þeir sem eldri eru eru líka til í að smakka fiskinn sem unga fólkið er að kaupa. Afurðaverð á markaði 17. des. 2019, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 515,74 Þorskur, slægður 407,13 Ýsa, óslægð 356,29 Ýsa, slægð 348,72 Ufsi, óslægður 140,00 Ufsi, slægður 182,05 Gullkarfi 268,63 Blálanga, slægð 170,99 Langa, óslægð 169,83 Langa, slægð 214,03 Keila, óslægð 116,64 Keila, slægð 130,13 Steinbítur, óslægður 429,00 Steinbítur, slægður 489,70 Skötuselur, slægður 421,07 Grálúða, slægð 479,00 Skarkoli, slægður 393,89 Þykkvalúra, slægð 1.067,80 Bleikja, flök 1.600,00 Gellur 461,08 Hlýri, slægður 548,00 Lúða, slægð 571,08 Lýr, óslægður 43,00 Lýsa, slægð 82,22 Náskata, slægð 10,00 Rauðmagi, óslægður 11,00 Skata, slægð 29,35 Stórkjafta, slægð 84,00 Tindaskata, óslægð 6,00 Undirmálsýsa, óslægð 231,00 Undirmálsýsa, slægð 205,56 Undirmálsþorskur, óslægður 264,00 Undirmálsþorskur, slægður 251,30 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Jólaföndur ÞRÍVÍDDARPÚSL FYRIR ALLA UM JÓLIN augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.isL Opið virka daga frá 9- 18 lau fr á 10-1 6 VERÐ FRÁ 780 KR. Vefverslu n brynja.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.