Morgunblaðið - 18.12.2019, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019FRÉTTIR
Enn verður dráttur á því að Ice-
landair Group geti tekið að nýju í
notkun þær sex Boeing 737 MAX-
vélar sem félagið hefur fengið af-
hentar, auk þess eru þrjár vélar
komnar af framleiðslulínunni í
Seattle sem ekki hafa enn verið af-
hentar. Vélarnar voru hluti risa-
samnings sem fyrirtækið gekk frá
við flugvélaframleiðandann árið
2013 um kaup á 16 vélum af þeirri
tegund. Áætlanir félagsins gerðu
reyndar ráð fyrir að árið 2025 yrðu
þær orðnar 26 talsins.
Bréf félagsins tóku dýfu
Félagið gaf út í gær að það gerði
ekki ráð fyrir að kyrrsetningu vél-
anna, sem kom til í kjölfar tveggja
mannskæðra flugslysa þar sem vél-
ar af þessari gerð áttu í hlut, yrði
aflétt fyrr en í maí næstkomandi en
síðustu yfirlýsingar félagsins mið-
uðu við að það myndi gerast í mars-
mánuði. Eftir að tilkynningin barst
markaðnum tóku bréf félagsins all-
nokkra dýfu enda ljóst að lengri
kyrrsetning mun reyna á félagið.
Lækkun í lok dags reyndist 3,4%.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice-
landair Group, segir að félagið finni
sig nú í fordæmalausum aðstæðum
sem hafi reynst mikið verk að leysa
farsællega úr á síðustu mánuðum.
„Þetta reyndi verulega á síðast-
liðið vor enda kom kyrrsetningin til
skömmu áður en sumarvertíðin
hófst. Nú höfum við haft tækifæri
til þess að undirbúa okkur fyrir
mögulega áframhaldandi kyrrsetn-
ingu.“
Spurður út í á hvaða upplýs-
ingum félagið byggi það mat sitt að
vélarnar verði komnar í gagnið í
maí segir Bogi að félagið sé í góðu
sambandi við Boeing en þá sé það
einnig í samskiptum við evrópsk
flugmálayfirvöld.
Nú stefnir í að kyrrsetning vél-
anna muni því standa í að minnsta
kosti 14 mánuði en þær raddir hafa
einnig heyrst að sá möguleiki kunni
að vera í stöðunni að vélarnar fari
aldrei í loftið að nýju.
„Við göngum út frá því að þessar
vélar fari í loftið í vor. Nú er í gangi
mjög yfirgripsmikið ferli við að
koma þeim aftur í notkun. Þá eiga
þetta að verða öruggustu flugvélar í
heimi.“
En þið getið ekki útilokað þann
möguleika að vélarnar fari ekki aft-
ur í loftið?
„Það er ekki hægt að útiloka
neitt í þessu frekar en öðru.“
Búið að borga inn á fleiri vélar
Hann segir að félagið sé búið að
borga inn á þær fimm vélar sem
áætlanir hafa verið uppi um að taka
í notkun á næsta ári, til viðbótar við
þær níu sem nú þegar teljast til
flota Icelandair. Raunar eigi það
einnig við um þær tvær vélar sem
eigi að bætast við árið 2021.
„Það er í samræmi við samning-
inn sem við gerðum við Boeing á
sínum tíma. Við berum vaxtakostn-
að af þessum innborgunum en það
er kostnaður sem við leggjum til
grundvallar kröfum okkar á hendur
Boeing vegna þess tjóns sem kyrr-
setningin hefur valdið okkur.“
Í gær tilkynnti Icelandair að það
hefði brugðist við lengri kyrrsetn-
ingu en fyrri áætlanir gerðu ráð
fyrir með því að taka á leigu tvær
Boeing 737-800 NG-vélar sem eru
af svipaðri stærð og MAX-vélarnar.
Auk þess vinnur félagið að því að fá
aðra vél af sömu tegund á leigu inn-
an skamms. Þá hefur félagið lagt
tímabundið til hliðar áætlanir um
að fækka 757-200-vélum í flota sín-
um en þær hafa undanfarna þrjá
áratugi verið hryggjarstykkið í
flota félagsins.
Bogi Nils segir að þessar ráðstaf-
anir fari langt með að tryggja
næsta sumar, jafnvel þótt svo illa
færi að MAX-vélarnar sætu áfram
sem fastast.
„Við þyrftum ekki að gera miklar
breytingar á flugáætluninni frá því
sem nú er,“ segir hann.
Fyrr á þessu ári greindi Iceland-
air frá því að félagið hefði tekið
framtíðarflotastefnu sína til skoð-
unar. Þar væru þrjár sviðsmyndir
til athugunar. Í fyrsta lagi að halda
sig við vélar frá Boeing einvörð-
ungu, í öðru lagi að vera með bland-
aðan flota Boeing- og Airbus-véla
og í þriðja lagi að færa sig alfarið
yfir til keppinautarins, hins evr-
ópska Airbus.
Viðræður hafa staðið yfir við Bo-
eing og Airbus um þessi mál en þær
hafa verið í hægagangi að undan-
förnu. Skýrist það fyrst og fremst
af þeirri óvissu sem er uppi vegna
kyrrsetningar MAX-vélanna.
„Við viljum ekki taka svo stórar
ákvarðanir meðan þessi óvissa er
uppi. Það er ljóst að miðað við nú-
verandi aðstæður virðast A-321LR-
vélar frá Airbus vera álitlegur arf-
taki Boeing 757-vélanna en við höf-
um hins vegar viljað halda öllum
kostum opnum.“
Um langt árabil hefur Boeing
haldið notendum 757-vélanna, sem
komnar eru til ára sinna, heitum
með loforði um að árið 2025 yrði ný
vélartegund, sem oft er nefnd NMA
(New Midsize Airplane) eða hrein-
lega 797, tilbúin til afhendingar.
Bogi Nils segist ekki hafa trú á því
að þær tímasetningar muni stand-
ast úr þessu.
„Hver sem niðurstaðan verður
með flotamálin þá er ljóst að við
munum vera með MAX-vélarnar í
flota okkar á komandi árum. Ef
ákvörðun er tekin um að skipta al-
farið yfir í vélar frá Airbus þá tekur
það ferli allt að áratug. Það er mikil
eftirspurn eftir vélum þaðan og
þeim hefur ekki tekist að standa við
áætlanir um afhendingu.“
Á sama tíma og Icelandair hefur
tekist á við kyrrsetningu MAX-
vélanna hafa nær stöðugar fréttir
borist út á markaðinn vegna fyrir-
hugaðra umsvifa tveggja nýrra lág-
gjaldaflugfélaga sem virðast í burð-
arliðnum. Bogi Nils segist fagna
allri samkeppni en að umræðan um
flugmarkaðinn sé þó á nokkrum
villigötum.
„Ég óska þessum fyrirtækjum
alls hins besta. Hins vegar set ég
spurningarmerki við þá umræðu að
það sé nauðsynlegt að tvö íslensk
flugfélög séu starfandi hér. Heima-
markaðurinn er mjög mikilvægur
og býr til ákveðinn grunn. Það er
vissulega hægt að auka framboð og
fólksflutninga til og frá landinu til
skamms tíma með einhvers konar
niðurgreiðslu flugfélaga en það er
ekki sjálfbært til lengdar.“
Fá félög á stórum mörkuðum
Bendir Bogi Nils á að á miklu
stærri mörkuðum séu gjarnan fá
flugfélög með meginstarfsemi sína.
„Tökum dæmi af Finnlandi þar
sem heimamarkaðurinn telur 5,5
milljónir manna. Helsinkiflugvöllur
er mjög öflugur tengivöllur. Þar er
aðeins eitt félag, Finnair. Ef við
skoðum svo Danmörku, Noreg og
Svíþjóð þá eru þar tvö millilanda-
flugfélög sem sinna 20 milljóna
heimamarkaði. Það eru félög sem
hafa gengið í gegnum krefjandi
tíma. Það mætti einnig taka dæmi
af Ítalíu. Það er ríflega 60 milljóna
markaður. Þar er aðeins eitt stórt
ítalskt félag. Enginn segir að sam-
keppni í flugi til og frá þessum
löndum sé óviðunandi aðeins vegna
þess að fá félög hafi höfuðstöðvar
sínar þar.“
Bogi segir að hjá öllum flug-
félögum á borð við Icelandair séu
starfandi teymi sem hafi það eina
markmið að skoða tækifæri til vaxt-
ar á þeim mörkuðum sem þau
starfa eða hafa áhuga á að brjóta
sér leið inn á.
„Það eru á þriðja tug flugfélaga
sem fljúga hingað. Þau vita ná-
kvæmlega hvaða tækifæri eru hér
og það á einnig við um fjölda flug-
félaga sem ekki fljúga hingað núna.
Ef það eru stórkostleg tækifæri til
að fjölga mjög farþegum hingað á
sjálfbæru verði munu þau sækja
þau tækifæri. Það eru ekki aðeins
íslensk fyrirtæki sem munu horfa
til þess.“
737 MAX
verða í flotan-
um næstu árin
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Bogi Nils Bogason, for-
stjóri Icelandair Group, tel-
ur að MAX-vélarnar verði
teknar í notkun á nýju ári.
Hann segir hins vegar ekki
hægt að útiloka þann
möguleika að þær
fari ekki aftur í loftið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bogi Nils hefur ásamt samstarfsfólki hjá Icelandair brugðist við fordæmalausri stöðu á alþjóðlegum flugvélamarkaði.
2016 2017 2018 2019
500
(USD)
350
(USD)
340
330
400
300
200
Des. 11 12 13 16
Framleiðslu á kyrrsettu 737 MAX-vélunum verður hætt tímabundið í næsta mánuði
*Maneuvering Characteristics Augmentation System Heimildir: Boeing/Google Finance
Boeing setur 737 á ís
Breytingar á gengi Boeing undanfarin fimm ár Gengi Boeing síðustu fimm daga
2018 2019
138
190
238
90
63
149
Samtals:
173
89
24 5
Boeing 737
Boeing 787
3F 1F 2F 3F4F
Aðrar
e. ársfjórðungum
29. október 2018
Lion Air 737-MAX 8
ferst í Indónesíu
189 manns létust
10. mars 2019
Ethiopian Airlines
737-MAX 8 ferst
157 manns létust
Vélin var kyrrsett
3 dögum eftir
flugslysið í Eþíópíu
meðan beðið var
eftir að rannsókn
lyki
Boeing tilkynnti
16. desember
um tímabundna
frestun á fram-
leiðslu nýrra véla
Bandarísk flug-
málayfirvöld
tilkynntu 11. des.
að vélin myndi
ekki fljúga aftur
fyrr en árið
2020
Ofrisbúnaður
vélarinnar,
MCAS*, reyndist
tengjast báðum
slysum
Afhentar farþegavélar Boeing
Vantar fyrirtækið þitt gæða
prentefni? Við bjóðum fjöl-
breyttar lausnir hvort sem er í
offset eða stafrænt. Komdu við
í kaffisopa og við finnum leið
sem hentar best hverju sinni.
PRENTVERK