Fréttablaðið - 30.12.2002, Qupperneq 1
ÁRAMÓT
Fatnaður
og fylgihlutir
bls. 14
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 29. desember 2002
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Bíó 20
Íþróttir 10
Sjónvarp 22
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
LEIKHÚS Á Litla sviði Borgarleik-
hússins verður sýning á hinni ný-
stárlegri sirkusuppfærslu á leikriti
Shakespeares, Rómeó og Júlíu, kl.
20 í kvöld. Sýningin hefur vakið at-
hygli bæði vegna þess að hún fer
að stórum hluta fram í lofti og
vegna nýrrar þýðingar Hallgríms
Helgasonar á leikritinu.
Rómeó og Júlía
TÓNLEIKAR Salonhljómsveitin L’amo-
ur fou heldur tónleika í Iðnó kl. 21 í
kvöld.
Tónleikar
við tjörnina
TÓNLEIKAR Hljómsveitin hreinskilna
The Funerals tappar af samvisku
sinni á efri hæð Grand Rokks í
kvöld. Tónleikarnir hefjast kl.
22.30. Sveitin stefnir á útgáfu ann-
arrar breiðskífu sinnar í vor.
The Funerals á
Grand Rokk
ÍÞRÓTTIR Íþróttamaður Hafnarfjarð-
ar 2002 verður krýndur kl. 18 á við-
urkenningarhátíð sem haldin verð-
ur í Íþróttahúsinu við Strandgötu.
Einnig verða veittar viðurkenning-
ar til allra hafnfirskra íþrótta-
manna sem unnið hafa til meist-
aratitla á árinu 2002.
Íþróttamaður
Hafnarfjarðar
AFMÆLI
Vinnan og
fjölskyldan
togast á
MÁNUDAGUR
263. tölublað – 2. árgangur
bls. 6
VIÐTAL
Gullin
augnablik
bls. 30
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri segir að sér hafi
ekki lengur verið stætt á því að
sitja í stóli borgarstjóra þó hún
hafi sjálf haft fullan hug á því.
„Ég er þeirrar skoðunar að ég
hafi staðið andspænis tveimur
kostum,“ sagði Ingibjörg Sólrún.
„Mér var stillt upp við vegg í þessu
máli og ég varð að velja annan
hvorn kostinn. Ég gef ekki eftir
þau sjálfsögðu réttindi sem ég hef
eins og aðrir til að setjast á lista og
fylgja minni pólitísku sannfæringu
og vel því frekar að standa upp úr
stóli borgarstjóra þar sem mér er
svo þröngur stakkur búinn.“
Hún segist finna til vissra sár-
inda vegna viðbragða Vinstri-
grænna og Framsóknarmanna sem
kröfðust þess að hún viki úr stóli
borgarstjóra vegna framboðs síns í
fimmta sæti Samfylkingar. Að-
spurð um hvort forysta flokkanna
kynni að hafa ráðið úrslitum frek-
ar en borgarstjórnarfulltrúar þeir-
ra sagðist Ingibjörg Sólrún ekki
geta svarað því. „Ég veit bara það
að ótti og reiði eru aldrei góðir
fylgifiskar þegar menn taka af-
drifaríkar ákvarðanir og bregðast
við.“
Ingibjörg Sólrún segist hafa
fengið þau svör við umleitunum
sínum að ef hún segði ekki af sér
sem borgarstjóri færu Fram-
sóknarmenn í samstarf við Sjálf-
stæðismenn.
Fráfarandi borgarstjóri segist
fara af fullri hörku í landsmálin
eftir að henni hafi verið gert
ókleift að standa við loforð sitt við
kjósendur í Reykjavík um að sitja
sem borgarstjóri út þetta kjörtíma-
bil. ■
Úr stóli borgarstjóra eftir átta og hálft ár:
Mér var stillt upp við vegg
bls. 10
FÓLK
Hittir Demi
Moore á laun
ÍÞRÓTTIR
Kvæntist
í laumi
bls. 23
TÍVOLÍBOMBUR Í ÖSKJUHLÍÐ Flugeldasýning Slysavarnafélagins Landsbjargar var í Öskjuhlíð í gær. 650 tívolíbombur sprungu í loft
upp eftir hálfs mánaðar undirbúning björgunarsveitarmanna. Að sögn söluaðila gengur sala flugelda vel í ár og er síst minni en í fyrra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
REYKJAVÍK Austan
3-8 m/s og léttskýjað.
Hiti kringum frostmark.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Léttskýjað 3
Akureyri 0-3 Léttskýjað 5
Egilsstaðir 3-8 Léttskýjað 0
Vestmannaeyjar 3-5 Skýjað 3
➜
➜
➜
➜
-
+
+
-
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49 ára
samkvæmt fjölmiðlakönnun
Gallup frá október 2002
29%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð lesa
25 til 49 ára
íbúar á höfuð-
borgarsvæðinu
á mánudögum?
73%
BORGARSTJÓRN Samkomulag
náðist um brotthvarf Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur úr stóli borgarstjóra og
ráðningu Þórólfs Árnasonar
í hennar stað í gærkvöldi
eftir spennuþrunginn dag
þar sem Reykjavíkurlista-
samstarfið virtist oftar en
einu sinni vera við dauðans
dyr.
Stöðug fundahöld voru í
Ráðhúsinu og úti í bæ í gær
eftir að Ingibjörg Sólrún
kynnti oddvitum flokkanna
tilboð sitt um að hætta sem
borgarstjóri gegn því að nýr
borgarstjóri yrði sóttur út
fyrir borgarstjórnarflokk
Reykjavíkurlistans. Framsókn-
armenn samþykktu tilboðið
strax. Fulltrúar Samfylkingar og
Vinstri-grænna vildu ekki svara
neinu fyrst um sinn og vildu ráð-
færa sig við samherja sína.
Framsóknarmenn töldu málið
þar með úr sögunni og voru að
því komnir að slíta samstarfinu.
Um kvöldmatarleytið gekk Al-
freð Þorsteinsson, oddviti Fram-
sóknarmanna, svo á fund borgar-
stjóra og oddvita hinna flokkanna
og krafðist skýrra svara, annað
hvort yrði gengið að tilboðinu eða
Reykjavíkurlistasamstarfið væri
úr sögunni. Sá fundur stóð
skamma stund, tillaga Ingi-
bjargar Sólrúnar var sam-
þykkt og tryggt að Reykja-
víkurlistasamstarfinu yrði
haldið áfram.
Ingibjörg Sólrún hefur
verið formaður borgarráðs
samhliða því að gegna störf-
um borgarstjóra. Með ráðn-
ingu ópólitísks borgarstjóra
verður það helsta valda-
embættið í borginni. Ingi-
björg stígur þar til hliðar en
blaðið hefur heimildir fyrir
því að hún hafi hugsað sér
að halda þeirri stöðu áfram.
Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hver tekur við
formennsku í borgarráði, núver-
andi varaformaður er Árni Þór
Sigurðsson, Vinstri-grænn.
Eftir er að semja við Þórólf
um ráðningartíma og kjör en
hann hefur samþykkt að taka við
starfinu.
brynjolfur@frettabladid.is
LANDSBANKINN
Samson kaupir ráðandi hlut í
bankanum í dag.
Landsbankinn:
Seldur í dag
EINKAVÆÐING Samson kaupir í dag
tæplega helming hlutafjár í
Landsbanka Íslands. Fulltrúar
fyrirtækisins og einkavæðingar-
nefnd áttu fund í gær þar sem far-
ið var yfir ágreining um verð-
mæti einstakra eigna bankans.
Ekki var gengið frá samkomulagi,
en fullyrt er að það takist fyrir
klukkan fjögur í dag, þegar undir-
rita á samning um viðskiptin.
Verð bankans lækkar ekki,
heldur munu greiðslur frá Sam-
son koma síðar en gert var ráð
fyrir í upphafi.
Stjórn bankans er samkvæmt
heimildum ekki sátt við niður-
stöðu áreiðanleikakönnunar
KPMG, endurskoðunarfyrirtækis
kaupendanna. Ekki er eininig um
greiðslugetu skuldara og verð-
mæti veða fyrir lánum en KPMG
mun einkum hafa metið lán og
fjárfestingar í fjarskipta- og
tæknigeira lægri en bankinn
sjálfur. ■
Halldór Ásgrímsson:
Óþarfa
vandræði
BORGARSTJÓRN Halldór Ásgrímsson
segist sáttur með að lausn sé
fundin á deilunni innan Reykja-
víkurlistans. Hann er undrandi á
að Samfylkingin hafi ekki verið
einhuga í gær þegar tillagan um
Þórólf Árnason kom fram. Hann
segir að ekki hafi verið fært að
bíða lengur með lausn. „Kjósend-
ur ætlast til að stjórnmálamenn
leysi vandamál. Þetta er búið að
taka óþarflega langan tíma.“
Halldór segist þekkja til Þór-
ólfs Árnasonar og hafa á honum
ágætar mætur og geti vel hugsað
sér hann sem borgstjóra. ■
Ingibjörg Sólrún
hrakin frá völdum
Brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur varð til þess að bjarga
Reykjavíkurlistasamstarfinu eftir að framtíð þess hafði hangið á bláþræði.
FRÁFARANDI BORGARSTJÓRI
Framtíð Reykjavíkurlistans hékk á bláþræði en var bjargað
með þvingaðri afsögn Ingibjargar Sólrunar Gísladóttur.