Fréttablaðið - 30.12.2002, Side 4
4 30. desember 2002 MÁNUDAGUR
ERLENT
Handmáluð, munnblásin glös
www.konunglegt.is
s:561 3478 og 891 7657
NAÍRÓBÍ, AP Mwai Kibaki og kosn-
ingabandalag stjórnarandstöð-
unnar vann yfirburðasigur í
kosningunum í Kenýa. Hann
hlaut rúmlega 62 prósent at-
kvæða.
Uhuru Kenyatta, sem bauð sig
fram fyrir stjórnarflokkinn
KANU, hlaut tæplega 30 prósent
atkvæða. Þar með lýkur 39 ára
valdatíma KANU í landinu. Dani-
el arap Moi forseti, sem hafði
valið Uhuru Kenyatta til að taka
við af sér, lætur nú af embætti
eftir að hafa setið í aldarfjórðung
á forsetastóli.
Kibaki er rúmlega sjötugur
hagfræðingur og enginn nýgræð-
ingur í stjórnmálum. Hann var
varaforseti frá 1978 þangað til
Moi rak hann árið 1988. Kibaki
var auk þess fjármálaráðherra
landsins árin 1969-88, bæði undir
forsæti Mois og forvera hans
Jomo Kenyatta.
„Hann nýtur virðingar sem
snjall hagfræðingur og
tæknikrati. Meðan hann var fjár-
málaráðherra var efnahagsleg
uppsveifla í Kenýa og landinu
var vel stjórnað,“ segir stjórn-
málafræðingurinn Francois
Grignon, sem hefur skrifað þrjár
bækur um stjórnmál í Kenýa.
Hann segir að Kibaki muni koma
lagi á efnahagsmálin og „veita
fólki frama af sanngirni, ekki á
grundvelli fjölskyldu- eða þjóð-
flokkatengsla.“
Kibaki hefur tvisvar reynt að
fella Moi í forsetakosningum. Að
þessu sinni stóðu hins vegar að
baki honum allir helstu ættbálkar
landsins, sem höfðu myndað kosn-
ingabandalag gegn stjórninni. ■
Bandalag stjórnarandstöðunnar fagnar sigri í Kenýa:
Fjörutíu ára valdatíma
stjórnarflokksins lýkur
FÖGNUÐUR Í KENÝA
Kirkjugestir í Kenýa fögnuðu ákaft
þegar þeir fréttu að stjórnarandstaðan
hefði sigrað í kosningunum.
LANDBÚNAÐUR Kjötverð hefur
aldrei verið lægra en nú og er
ástæða þess fyrst og fremst gríð-
arleg offramleiðsla. Sigurgeir
Þorgeirsson, framkvæmdastjóri
Bændasamtakanna, segir að verð
á svína- og fuglakjöti hafi verið
óraunhæft nú fyrir jólin og það
hafi komið niður á sölu á kinda-
kjötinu.
„Við vitum að það er tap á allri
kjötframleiðslu í dag og einhver
þarf að borga þann brúsa,“ segir
Sigurgeir. „Hvort það bitnar síð-
an á lánastofnunum, birgjum eða
einhverjum öðrum get ég ekki
sagt um. Ég held að óhætt sé að
segja að kjöt hafi aldrei verið
ódýrara, að minnsta kosti ekki í
seinni tíð. Skýringarnar eru
margháttaðar. Það er enginn vafi
á því að það er gríðarlegt offram-
boð af kjöti, sérstaklega var mik-
ið offramboð af svínakjöti og
fuglakjöti núna í haust. Einnig
hefur samkeppni í verslun valdið
því að kjötverð hefur farið lækk-
andi.“
Sigurgeir segir að verslanir
hafi í mörgum tilfellum selt kjöt
með mjög lítilli eða nánast engri
álagningu fyrir jólin. Það og sú
staðreynd að smásalar hafi sjald-
an fengið kjötið ódýrara frá fram-
leiðandanum hafi leitt til þessa
lága kjötverðs sem nú sé.
Aðspurður segist Sigurgeir
ekki geta svarað því hvort versl-
anir hafi einfaldlega borgað með
kjötinu. Hann segist hafa heyrt
slíkar sögur en það hafi ekki ver-
ið rannsakað eða skoðað neitt sér-
staklega.
Sala á kindakjöti hefur dregist
saman um 9,6% hérlendis á síð-
ustu 12 mánuðum þótt framleiðsl-
an milli áranna 2001 og 2002 hafi
verið óbreytt. Sigurgeir segir að
mikil framleiðsluaukning á svína-
og fuglakjöti skýri þetta að hluta
sem og sú staðreynd að ungt fólk
borði minna af kindakjöti en áður.
Hann segir ekki raunhæft að ætla
að kindakjöt muni lækka í verði
því vel rekin stór sauðfjárbú skili
nú þegar tiltölulega litlum tekj-
um.
„Kindakjötið á erfitt í sam-
keppni við hitt kjötið og því miður
er afskaplega mikil hætta á því að
það verði enn frekari samdráttur í
neyslu á kindakjöti á næstunni og
mismunurinn verði að fara úr
landi.“
Sigurgeir segir að því meira
sem verði flutt út, því lægra verði
meðalverðið á kjötinu. Þeir mark-
aðir þar sem verðið sé hæst séu
fullnýttir og því verði að flytja
kjötið út á lakari markað.
trausti@frettabladid.is
Tap á allri
kjötframleiðslu
Kjötverð hefur aldrei verið lægra. Framkvæmdastjóri Bændasamtak-
anna segir skýringuna meðal annars gríðarlegt offramboð. Verð á svína-
og fuglakjöti sé óraunhæft. Neysla kindakjöts hafi þess vegna dregist
saman um tæp 10% á árinu.
LÍTIL EÐA ENGIN ÁLAGNING Á KJÖTI
Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri
Bændasamtakanna, segir að verslanir hafi
í mörgum tilfellum verið að selja kjöt með
mjög lítilli eða nánast engri álagningu fyrir
jólin. Það og sú staðreynd að smásalar
hafi sjaldan fengið kjötið ódýrara frá fram-
leiðandanum hafi leitt til þessa lága kjöt-
verðs sem nú sé.
TAPAR FYLGI
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
ásamt einum ráðherra sinna. Hneykslismál
hafa sett svip sinn á kosningabaráttuna í
Ísrael.
Ísraelskur aðstoðar-
ráðherra:
Sakaður
um kosn-
ingasvindl
JERÚSALEM, AP Ísraelska lögreglan
yfirheyrði í gær Naomi Blumen-
thal, aðstoðarráðherra í stjórn
Ariel Sharon, vegna gruns um að
hún hafi keypt sér atkvæði í próf-
kjöri Likudflokksins fyrir
skömmu. Blumenthal er æðsti
ráðamaðurinn sem tengdur hefur
verið við hneykslismál sem kost-
að hefur Likudflokk Sharons
nokkuð fylgi undanfarið.
Þó er Likud spáð 35 þingsætum
í kosningunum í lok janúar. Verka-
mannaflokknum er spáð 20 til 22
þingsætum. Likud yrði þá í betri
stöðu en Verkamannaflokkurinn
til að mynda starfhæfa stjórn á
þinginu, þar sem 120 manns eiga
sæti. ■
FÉLAGSMÁL Barnabætur byrja að
skerðast þegar mánaðartekjur
foreldra eru komnar að 59.000
krónum, samkvæmt tölum sem er
að finna á vef Ríkisskattstjóra um
greiðslur barnabóta á næsta ári.
Óskertar barnabætur hjóna
eru 120.249 krónur á ári með
fyrsta barni og 143.135 krónur
með hverju barni umfram það.
Einstætt foreldri fær 200.282
krónur með fyrsta barni og
205.447 krónur með hverju barni
þar umfram. Þegar tekjur hjóna
eru komnar yfir 1,4 milljónir eða
einstæðs foreldris yfir 700.000
krónur skerðast barnabætur um
3% ef barnið er eitt, 7% ef um
tvö börn er að ræða og 9% ef
börnin eru fleiri.
Að auki eru greiddar 35.422
krónur með hverju barni undir sjö
ára aldri og eru þær bætur ekki
tekjutengdar. ■
Barnabætur:
Skerðast við 59.000 krónurnar
BÖRN Á SKÓLAALDRI
Barnabætur eru greiddar með börnum fram að 16 ára aldri.
EKKI KOSIÐ AFTUR Göran Pers-
son, forsætisráðherra Svíþjóðar,
segir að ekki verði kosið aftur
um það, hvort Svíþjóð taki sér
evruna sem gjaldmiðil, fyrr en í
fyrsta lagi árið 2006. Kosningar
um evruaðild fara fram í Svíþjóð
næsta haust. Kjörtímabil Pers-
sons rennur út árið 2006.
ERLENT
SCHRÖDER Í KÍNA Gerhard
Schröder, kanslari Þýskalands,
kom til Kína í gær. Þar ætlar
hann að hitta helstu leiðtoga að
máli og vígja nýja segulteinalest
í Shanghaí. Þetta er fyrsta lest
sinnar tegundar í heiminum sem
notuð er til almennra ferða. Seg-
ulafl heldur lestinni á svifi rétt
fyrir ofan teinana.
BANDARÍSKA HERNUM MÓTMÆLT
Meðan Bandaríkin hafa í hótunum við
Norður-Kóreu mótmæla íbúar í Suður-
Kóreu veru bandaríska hersins þar.
Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna:
Vill ræða
við Norður-
Kóreumenn
WASHINGTON, AP Colin Powell, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær að bandarísk stjórn-
völd vildu gjarnan ræða við
stjórnvöld í Norður-Kóreu til þess
að reyna að finna lausn á deilum
þeirra um kjarnorkuvopnaáform
hinna síðarnefndu. Til þessa hafa
bandarísk stjórnvöld ekki verið til
viðræðu um málið.
Hins vegar tók Powell fram að
Bandaríkin myndu ekki veita
Norður-Kóreu neina aðstoð fyrr
en stjórnin þar hefði breytt um
stefnu í kjarnorkumálum. Þvert á
móti ætli Bandaríkin að beita
Norður-Kóreu miklum efnahags-
þrýstingi á næstunni. ■
AP/AH
N
YO
U
N
G
-JO
O
N
Ísafjörður:
Fannst kald-
ur og skorinn
LÖGREGLUMÁL Eldri maður fannst
kaldur og skorinn á höfði í bíl sínum
sem lá á hliðinni í fjöruborðinu við
Skarðshlíð í Ísafjarðardjúpi í fyrra-
dag. Vegfarandi sem fann manninn
flutti hann til móts við sjúkrabíl
sem síðan færði manninn til að-
hlynningar á sjúkrahúsi. Þar er
maðurinn enn undir eftirliti en mun
ekki vera alvarlega slasaður. Talið
er að hálka kunni að eiga sinn þátt í
að maðurinn missti bíl sinn út af
veginum. Í Öndundarfirði ók maður
á saltkassa og skilti. Hvorki hann né
þeir sem voru í bílum sem lentu í
árekstri í Ísafjarðarbæ í fyrrakvöld
slösuðust. ■
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Kaupir þú flugelda fyrir ára-
mótin?
Spurning dagsins í dag:
Býstu við að árið 2003 verði gott ár?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
34%nei
66%
FLESTIR KAUPA
FLUGELDA
Ríflega þriðjun-
gur lesenda á
frett.is segjast
ekki kaupa rak-
ettur. Hinir
kaupa.
já