Fréttablaðið - 30.12.2002, Side 21
Jón Mýrdal, grínari og útvarps-maður hjá Radíó Reykjavík, þor-
ir þessa dagana ekki út úr húsi eft-
ir að grínútgáfa hans af lagi Móra,
„Atvinnukrimmi“, féll í grýttan
jarðveg hjá rapparanum. Útgáfu
Jóns er að finna á vefnum null-
einn.is og færir hann þar texta
Móra yfir á Jólasveininn. Móri á að
hafa orðið afar reiður og hafa hótað
Jóni öllu illu. Rapparinn, sem segir
í lagi sínu: „fokkir þú í mér muntu
aldrei fá frið, því ég gef aldrei
grið“ meinar greinilega það sem
hann segir.
Hljómsveitin Daysleeper hristiaf sér óánægju plötugagnrýn-
enda og stóð sig ágætlega í jóla-
plötuflóðinu.
Frumraun þeirra
var dreift í rúm-
lega þrjú þúsund
eintökum, sem
telst nokkuð gott.
Aðrir nýliðar stóðu
sig einnig vel.
Hera og “Íslensku
dívurnar“ seldu
svipað og Daysleeper á meðan Land
& synir seldu minna. Plata þeirra
fór í tæpum tvö þúsund eintökum,
sem er helmingi minna en síðast.
Athygli vekur að útgáfur útgáfufyr-
irtækisins nýstofnaða „1001 Nótt“,
fyrir utan „Frostrósir“, seldust illa.
Nýdönsk seldi tæp 1.500 eintök á
meðan frumraun Þórunnar Antóníu
fór rétt yfir 1.000 eintaka sölu.
Leikkonan Kim Cattrall, semleikur Samönthu í „Sex and the
City“, var heldur betur óheppin er
hún fór á ísknattleik á dögunum.
Stúlkan var það óheppin að fá
pökkinn í höfuðið er hann skaust út
af leikvellinum á ógnarhraða. Leik-
konan rauk beinustu leið á spítal-
ann en meiðsli hennar voru talin
lítilsháttar.
Söngkonan Mariah Carey varheldur betur óheppin er hún
mætti í sjónvarpsviðtal á dögunum.
Stúlkan var klædd
þröngu stuttpilsi
og þegar hún sett-
ist í sæti sitt varð
áhorfendum ljóst
að hún var ekki
klædd í neinar
nærbuxur. Á með-
an hún svaraði
spurningum þátta-
stjórnandans voru gestir sjón-
varpssalarins og kvikmyndatöku-
mennirnir gapandi yfir því sem
þeir sáu. Sem betur fer, fyrir hana,
var þátturinn ekki í beinni útsend-
ingu og því hægt að laga þetta smá-
ræði eftir á.
Leikkonunni Lindu Hamilton, semfór með aðalhlutverkið í fyrstu
tveimur Terminator-myndunum við
hlið Arnold Schwarzenegger, þykir
ekki mikið til þriðju myndarinnar
koma. Sú er væntanleg í kvik-
myndahús á næsta ári. Hún segist
hafa neitað þátttöku í myndinni eft-
ir að hafa lesið handritið. Hún kall-
aði það sálarlaust og segir söguna
hafa skort allan tilgang. Þess vegna
hafi hún ákveðið að vera ekki með
að þessu sinni. Persóna hennar er
því látin í upphafi myndarinnar.
21MÁNUDAGUR 30. desember 2002
FRÉTTIR AF FÓLKI
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 2.20, 3.30 5.45, 7, 9, 10.30 og 12.30
GULLPLÁNETAN kl. 2,4 og 6 ísl. tal
Sýnd kl. 4. 8 og 11.30 VIT 482 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 7, 9 og 11 VIT 499
Sýnd kl. 2, 3 og 5 m/ísl. tali VIT 498
HARRY POTTER m/ísl. tali 2, 5 og 8 VIT468
GHOSTSHIP 11 og 12.50 VIT487
KNOCKAROUND GUYS kl. 2
EN SANG FOR MARTIN kl. 2
JAMES BOND kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 2.30, 4.30, 6.30, 8.30 og 10.30
JAMES BOND 8 og 11