Fréttablaðið - 30.12.2002, Síða 32
Tæmdu fríkorti›!
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Frípunktarnir renna út um áramótin - komdu til
okkar og nota›u flá upp í sólarlandafer›ina í sumar.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
A
B
X
/
S
ÍA
9
0
2
1
8
0
9
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið á sínu dreifingarsvæði.
Á síðasta útgáfudegi Fréttablaðsins árið 2002 viljum við þakka
frábærar viðtökur á árinu.
Við óskum þér gleðilegs árs og velfarnaðar um ókomna tíð.
„...sem fjöður
í vindi...“
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Ítalir skilja konur djúpum skiln-ingi. Einhver frægasta óperuaría
Verdis, í Rigoletto nánar tiltekið,
fjallar um sálfræði konunnar. En þar
segir: „La donna é mobile/Qual
piuma al vento...“ sem útleggst:
„Konan er hvikul sem fjöður í
vindi...“ Og síðar í textanum kemur
þessi skuggalega viðvörun: „Þeir
menn sem eru svo vitlausir að
treysta hjarta konunnar verða van-
sælir alla tíð.“
ÆTLUNIN var að hugsa um áramót
en ég fór að hugsa um konur, enda
var minnisstæðasti atburðurinn á ár-
inu kosningasigur R-listans og sigur
Ingibjargar á Birni Bjarnasyni. Eða
það hélt maður allt þar til þessi bold-
angskvensa – eins og „piuma al
vento“ (fjöður í vindi) – fleygði höf-
uðborginni frá sér og vildi ekki leng-
ur vera dekurprinsessa þriggja
flokka og ákvað að binda sitt trúss
við Samfylkinguna í stað þess að
bíða síns vitjunartíma og gera tilkall
til ríkiserfða eftir að þjóðin hefur
fengið nægju sína af Davíð eða Dav-
íð af þjóðinni.
BURTSÉÐ frá sálfræðinni fjallar
óperan „Rigoletto“ um kynóra, morð
og ofbeldi við guðdómlega tónlist og
verður ábyggilega bönnuð um leið
og lögin um að banna ofbeldi taka
gildi. Hvað sem því líður skil ég
Ingibjörgu vel að vera orðin hund-
leið á að húka í Ráðhúsinu og þrasa
við Bíbí og kó. Hins vegar er erfið-
ara að skilja þá leiðtogamaníu og
foringjadýrkun sem fjölmiðlar og
stjórnmálaskýringaskúmar hamast
við að troða upp á þjóðina. Þeir
tönnlast á því að það vanti „sterka“
leiðtoga eins og þjóðin kunni ekki
fótum sínum forráð og sé alltaf að
leita að forföllnum valdasjúklingum
til að ráðskast með sig.
ÞAÐ er fín tilbreyting að fá nýjan
borgarstjóra eftir 8 ár með Ingi-
björgu og helst ætti enginn að sitja í
háu embætti lengur en í mesta lagi
tvö kjörtímabil. Vald spillir og gerir
besta fólk hrokafullt. Ef mannsævin
væri 200 ár væri í fínu lagi að fólk
hengi á valdastólum lon og don, en
úr því að ævin er svona voðalega
stutt og hvert ár fljótt að renna í ald-
anna skaut ætti hver maður að
þekkja sín takmörk. Það skiptir
kannski ekki meginmáli hver stjórn-
ar, heldur hvernig er stjórnað. Gleði-
legt ár og takk fyrir það liðna! ■