Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.01.2020, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 13.01.2020, Qupperneq 10
1 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT HETJA HELGARINNAR Aron Pálmarsson Sonur Arndísar Heiðu Einarsdóttur sem lék handbolta með FH og Pálmars Sigurðsson- ar sem spilaði með Haukum, Grindavík og íslensku landsliðinu í körfubolta. Fæddur 19. júlí 1990 og byrjaði 15 ára að spila með Meistaraflokki FH. Hann gekk í raðir þýska stórliðsins Kiel árið 2009 og vann þar allt sem hægt er að vinna undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Færði sig til Ungverjalands og spilaði með Vesprém í tvö ár áður en hann færði sig til Barcelona. Hann hefur einu sinni verið valinn íþróttamaður ársins. Það sést í fyrri hálf- leik Aron Pálmarsson að hann er einn topp þrír besti leik- maður í heimi. Guðjón Valur Sigurðsson um Aron í viðtali við Vísi eftir leik. „Við vorum með frábært lið, fullt af frábærum leikmönnum en það var eng- inn eins og Aron. Hann gerir einstaka hluti. Hann er líka mjög almennilegur strákur og mikill fagmaður.“ Xavi Sabaté sem þjálfaði Aron hjá Veszprém. Í svartasta skammdeginu og óveð- urslægðum er alltaf gott að vita að íslenska landsliðið í handbolta getur stytt stundirnar. Stórmót í handbolta er orðinn fastur vani hérlendis en í ár átti mótið í raun að byrja í dag gegn Rússum. Leikurinn við Dani var einfaldlega of stór biti að kyngja. Það var enginn mögu- leiki að vinna heims- og Ólympíu- meistarana enda hafa þeir verið með besta landslið heims í mörg herrans ár. En Davíð hefur alveg sigrað Golíat áður, sérstaklega í íþróttum. Og í íþrótt þar sem sex eru inni á vellinum er gott að vera með einn besta handboltamann í heimi innan sinna raða og þjálfara sem hafði kortlagt nánast hverja hreyf- ingu sinna fyrrverandi lærisveina. Í liði Dana er Mikkel Hansen, sem flestir telja þann besta í heimi í dag en hann stóð í skugga Arons Pálm- arssonar sem varpaði frá sér svo stórum skugga að Hansen var hálf lítill í sér – þó hann hafi alveg reynt að halda smá sýningu. Sýning Arons var einfaldlega betri, fallegri og skil- aði í hús einhverjum eftirminnileg- asta sigri sem íslenskt handboltalið hefur unnið. Að koma að 20 mörkum í 31-30 sigri er einfaldlega stórkostlegt afrek. Aron skoraði 10 mörk, gaf níu stoðsendingar og fiskaði eitt víti. Mörkin komu í öllum regnbog- ans litum og stoðsendingar hans voru sumar hverjar fjarri raun- veruleikanum. Skilningur hans á leiknum, hlaupum samherja sinna og getan til að troða handbolta í lúkurnar fram hjá risastórum lurkum var einfaldlega eins og að horfa á fallegt málverk. Tíminn virtist einfaldlega standa í stað. Hinn alræmdi slæmi kaf li kom aldrei eða strákarnir okkar, sem allir ættu að fá aukahrós, leyfðu honum einfaldlega ekki að koma. Aron sá til þess. Aron er fæddur í Hafnarfirði árið 1990 og það var snemma ljóst að þarna færi af burðaríþróttamaður. Eðlilega var körfubolti honum kær enda gerði karl faðir hans, Pálmar Sigurðsson, garðinn frægan á körfuboltagólfinu með Haukum, Grindavík og íslenska landsliðinu. Móðir hans, Arndís Heiða Einars- dóttir spilaði með FH í handbolta. Þá segir í DV árið 2001 að FH hafi orðið Íslandsmeistarar í innan- hússfótbolta þar sem Aron og Gylfi nokkur Sigurðsson hafi skorað mörkin. Hann segir frá því sjálfur í viðtali við Monitor að hann hafi ætlað sér að verða atvinnumaður í fótbolta en hætt þegar hann var 16 ára. Ári síðar hafi þó vantað mark- vörð í annan f lokk í fótboltanum og áður en Aron vissi af var hann kominn á meistaraf lokksæfingar FH sem markvörður! Pressan var því mikil innan félagsins um hvora íþróttina hann myndi velja. Hann spilaði sinn fyrsta meist- araflokksleik með FH aðeins 15 ára gamall gegn ÍBV í spennandi leik sem endaði 30-28 fyrir FH. Hann skoraði eitt mark. Í frétt Morgun- blaðsins um leikinn segir; „Aron er leikmaður 4. f lokks en spilar einnig með 3. og 2. f lokki og hefur nú verið tekinn inn í meistaraflokkshópinn. Hann verður 16 ára í sumar – 19. júlí.“ Aron var f ljótur að láta til sín taka með harpixið á höndunum. FH var í fyrstu deild en þrátt fyrir ungan aldur var hann burðarás í liðinu sem fór upp um deild. Þar hélt hann áfram að blómstra svo eftir var tekið. Alfreð Gíslason kom bankandi og tók guttann til liðsins árið 2008. Hann var 18 ára. Undir stjórn Alfreðs tók hann stökkið úr því að vera efnilegur í að verða góður og síðan frábær yfir í heimsklassa leikmann þar sem hann hefur haldið sig. Hann var sex ár hjá Kiel og vann nánast allt sem hægt er að vinna. Meðal ann- ars var hann valinn íþróttamaður ársins árið 2012, aðeins 22 ára, eftir stórkostlegt ár. Kiel varð Evrópu- meistari, þýskur meistari með fullu húsi stiga og bikarmeistari. Á Ólympíuleikunum var hann valinn í lið leikanna. Hann færði sig til Veszprém árið 2015 og spilaði þar í tvö ár. Þaðan fór hann til Barcelona árið 2017 þar sem hann er enn. Eftir leikinn hefur hrósi rignt yfir Aron. Ekki aðeins á Íslandi heldur um gjörvalla Evrópu. Sé farið um slóðir f jölmiðla þjóðanna sem taka þátt eru allir sammála. Sýn- ing Arons stóð upp úr um helgina. Í dag tekur við næsti andstæð- ingur, sjálfur rússneski björninn og hefst leikurinn klukkan 17.15. Rússland kom úr f jórða styrk- leikaf lokki en á blaðamanna- fundi í gær var hamrað á því að þeir væru sýnd veiði en ekki gefin. benediktbóas@frettablaðið.is Stórkostlegt íþróttaafrek Aron Pálmarsson, leikmaður Barcelona, lyfti lund þjóðarinnar upp í hæstu hæðir með einhverri mögnuðust frammistöðu sem íslenskur handbolta- maður hefur sýnt þegar Ísland vann heims- og Ólympíumeistara Danmerkur um helgina. 9,6 fékk Aron í einkunn, af tíu mögulegum, fyrir sóknar- leik sinn samkvæmt HB Statz enda ekkert eðlilegt að koma að 20 mörkum í einum handboltaleik. Það er eiginlega fáránleg tölfræði. Hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik með FH aðeins 15 ára gamall gegn ÍBV í spennandi leik sem endaði 30-28 fyrir FH. Hann skoraði eitt mark.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.