Fréttablaðið - 13.01.2020, Síða 35

Fréttablaðið - 13.01.2020, Síða 35
 ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ SUM ÞESSARA VERKA ERU SJALDAN SÝND ER AÐ UMFANGIÐ ER ÓTRÚLEGA MIKIÐ. Sýningin Nokkur uppá-haldsverk stendur yfir í Nýlistasafninu í Marshall-húsinu. Þar eru sýnd verk úr eigu safnsins. Birkir Karlsson er sýningarstjóri en hann starfar í safninu sem safn- eignarfulltrúi. „Árið 2015 þegar ég byrjaði í list- fræðinámi í Listaháskólanum var eitt af verkefnunum þar að stýra lítilli sýningu í Nýlistasafninu. Þá skoðuðum við nemendurnir alla safneignina og fórum í gegnum hvert einasta verk. Síðan hef ég verið með í kollinum lista yfir uppá- haldsverk sem gaman væri að setja á sýningu,“ segir Birkir. Birkir hafði úr nægu að velja fyrir þessa sýningu en rúmlega 2.000 verk eru í eigu safnsins. Hann valdi fimm verk, sem eru í mörgum einingum, eftir fjóra listamenn. „Ástæðan fyrir því að sum þess- ara verka eru sjaldan sýnd er að umfangið er ótrúlega mikið. Verk Douwe Jan Bakker er til dæmis 144 einingar og tekur á annan tug metra af veggplássi og þá er helmingurinn af sýningarrýminu undirlagt. Það eru 20 ár síðan þetta verk var síðast sýnt,“ segir Birkir. Listaverk og vonbrigði Birkir skrifar texta í sýningarskrá þar sem hann fjallar meðal ann- ars um hugmyndir um listaverk og vonbrigðin þegar listaverkið reyn- ist ekki vera eins og áhorfandinn átti von á. „Sem safneignarfulltrúi er ég stöðugt að taka á móti sýn- ingarstjórum og opna fyrir þeim geymslur safnsins. Þegar ég tek verk úr umbúðunum heyrist fólk stundum segja: Ó, er þetta svona! Það hefur séð ljósmynd af verkinu eða heyrt sögur af því og svo er verkið allt öðruvísi en það átti von á. Það er ekki gott þegar fólk er búið að ákveða hvernig sýning á að vera og svo er verkið sem það vill fá á sýninguna allt öðruvísi en það hélt. Ég skrifa aðeins um þetta í sýningarskrána.“ Textaverk listamanna Um verkin á sýningunni segir hann: „Markmið mitt var ekki að velja þau þannig að þau pössuðu inn í eitthvað ákveðið konsept eða að þau töluðu saman. Þegar verkin eru skoðuð sést þó að það er texti í þeim öllum.“ Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru: G.Erla, Rúrí, Mihael Milunović og Douwe Jan Bakker. Verk G.Erlu er bróderíverk sem vel má túlka sem feðraveldisgagnrýni og það er á voldugum stöpli sem eitt sinn var í Ráðhúsinu. „Verk Rúríar, Desolation, er nokkuð sérstakt að því leyti að það er úrvinnsla eða áframhald á eldra verki sem sem hún bjó til á Kola- torginu í Kaupmannahöfn árið 1984,“ segir Birkir. „Hún vann það upp úr reynslu sinni að hafa gengið um heilt þorp sem hafði verið lagt í eyði, það var rústir einar. Hún steypti svo hluta af þessum rústum í raunstærð og kom fyrir á torginu. Verkið á sýningunni í Nýlista- safninu kortleggur það ferli með myndum, teikningum og texta.“ Mihael Milunović fæddist í Júgóslavíu og ljósmyndir hans á sýningunni sýna nokkra bíla með bílplötum sem bera áletanir: Hate-Lust-Hunger-Plague-Fear. Verkin voru búin til á sama tíma og Kósóvó stríðið geisaði. „Það er húmor í þessum myndum þótt umfjöllunarefnið sé drungalegt og þungt,“ segir Birkir. Hollenski listamaðurinn Douwe Jan Bakker, sem lést árið 1997, var mikill Íslandsvinur. Verk hans á sýningunni eru tvö, ljósmynda- röðin Um sérstakt framlag Íslands og íslensks samfélags til sögu byggingarlistarinnar. „Hann ferð- aðist mikið um landið og tók ljós- myndir af híbýlum Íslendinga úti á landi, þar af margar af torf- bæjum. Þetta var á tímum þegar Íslendingar skömmuðust sín jafn- vel fyrir torfbæi en hann gerði þeim hátt undir höfði. Allar myndirnar, rúmlega 30, eru af vistarverum og svarthvítar,“ segir Birkir. „Hitt verkið heitir A Vocabulary Sculpt- ure in the Icelandic Landscape og samanstendur af 72 ljósmyndum af ákveðnum þáttum úr landslagi og jarðfræði landsins og fyrir neðan hverja mynd er íslenska hugtakið yfir viðkomandi fyrirbæri. Sum orðanna hef ég aldrei heyrt áður.“ Uppáhaldsverk í Nýlistasafninu Birkir Karlsson safneignarfulltrúi valdi fimm verk til sýningar eftir fjóra lista- menn. Texti er í öllum verkunum. Birkir Karlsson er sýningarstjóri sýningarinnar Nokkur uppáhaldsverk. Hann valdi úr gríðarstórri safneign þau verk sem eru á sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ein af ljósmyndum Mihaels Milunović á sýningunni. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M Á N U D A G U R 1 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.