Fréttablaðið - 22.01.2020, Qupperneq 2
Raunávöxtun Lífeyris-
sjóðs verzlunarmanna á
síðasta ári var yfir 15% og
jukust eignir um meira en
150 milljarða króna á árinu.
Veður
Minnkandi suðvestanátt, 5-13 m/s
eftir hádegi og él eða slydduél, en
bjart austan til. Hiti um frostmark.
Gengur í sunnan 13-20 í kvöld og
nótt með rigningu, en úrkomu-
minna norðaustan til. SJÁ SÍÐU 14
Labbað á Langasandi
Vel viðraði til útivistar í gær og var það mörgum kærkomið að komast út undir bert loft og í gönguferð. Tækifæri til þess hafa verið færri en margir
vildu í ótíðinni undanfarið. Á Langasandi á Akranesi eru kjöraðstæður til gönguferða þegar vel viðrar. Ljósmyndari Fréttablaðsins var þar á ferð í
gær og smellti nokkrum myndum af göngufólki. Til vinstri má sjá baðstaðinn Guðlaugu og sennilega enduðu sumir ferðina þar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SÚPER TILBOÐ VEGNA
FLUTNINGA
25% afsláttur á öllum vörum
Afsláttarkóði: SUPER2020
22-26. janúar á www.taramar.is
22-24. janúar frá 9 - 16 í versluninni
að Starmýri 2a
VIÐSKIPTI Raunávöxtun Lífeyris-
sjóðs verzlunarmanna á síðasta ári
var yfir 15 prósent, sem er með bestu
ávöxtun sjóðsins frá upphafi. Þetta
herma heimildir Fréttablaðsins. Þá
hafi eignir hans aukist um 150 millj-
arða króna á síðasta ári. Jafnframt
munu allir eignaliðir sjóðsins hafa
skilað jákvæðri ávöxtun en erlenda
eignasafnið ávaxtast best.
Þetta er ein besta raunávöxtun
sjóðsins frá upphafi, eða að minnsta
kosti á pari við þá bestu undanfarin
20 ár. Í níu mánaða uppgjöri var
meðalraunávöxtun sjóðsins síðustu
20 ár sögð vera um 3,9 prósent og 4,8
prósent undanfarin fimm ár, eins og
fram kom í frétt blaðsins í lok nóv-
ember síðastliðins.
Heildareignir sjóðsins munu hafa
verið nálega 860 milljarðar króna
við síðustu áramót.
Stjórnarfundur verður haldinn í
lífeyrissjóðnum á fimmtudaginn.
Ekki mun enn lokið endanlegu upp-
gjöri fyrir síðasta ár og ekkert verið
ákveðið um birtingu niðurstaðna.
Venjan er þó að afkoma sjóðsins og
starfsemi síðasta árs sé kynnt mán-
uði fyrir ársfund.
Árið 2019 var lífeyrissjóðum
landsmanna hagstætt þegar horft
er til ávöxtunar eigna þeirra. Lands-
samtök lífeyrissjóða áætla að raun-
ávöxtun lífeyrissparnaðar lands-
manna sé að meðaltali vel yfir 11
prósent, miðað við vegið meðaltal
ávöxtunar alls eignasafns sjóðanna
2019. Þetta er mikill viðsnúningur
frá árinu 2018 þegar hrein raun-
ávöxtun var 1,95 prósent að jafnaði.
Yfir 5.000 milljarðar króna eru nú
í lífeyrissjóðum landsmanna. – jþ
Mikil ávöxtun
lífeyrissjóðsins
Tillaga að aðkomutákni Garðabæjar
frá Teiknistofunni Tröð.
SKIPULAGSMÁL Svokallað aðkomu-
tákn sem Garðabær hyggst koma
upp á Arnarneshæð við Hafnar-
fjarðarveg vekur áhyggjur íbúa þar.
Skipulagsnefnd bæjarins fjallaði
um fyrirspurn þar sem spurt er hvort
táknið sé ekki of stórt og myndi
hugsanlega hvin undir ákveðnum
veðurskilyrðum. Nefndin segir verk-
ið ekki of stórt. „Ekki er unnt að meta
til fullnustu hvort hvinur myndist
við ákveðin skilyrði. Ef til þess kemur
þarf að ráðast í aðgerðir til þess að
koma í veg fyrir hvin ef sýnt verður
fram á að hann valdi íbúðum aðliggj-
andi húsa óþægindum.“ – gar
Óttast hvin frá
nýju bæjartákni
FERÐAÞJÓNUSTA „Neikvæð upplif-
un kínverskra ferðamanna á Íslandi
held ég að byggist að mestu leyti á
menningarmun, Íslendingar þekkja
ekki mikið til Kína,“ segir Grace
Jin-Liu leiðsögumaður. Hún er ein
þeirra sem flytja erindi á fundi um
móttöku kínverskra ferðamanna
sem haldinn verður í kínverska
sendiráðinu á milli klukkan 9-11 í
dag.
Í erindi sínu fjallar Grace um
upplifun kínverskra ferðamanna
á Íslandi sem hún byggir á sam-
skiptum sínum við þá ferðamenn
sem hún hefur leitt um landið en
um 100 þúsund ferðamenn frá Kína
heimsóttu Ísland í fyrra og búast má
við að þeim fjölgi á komandi árum.
„Flestar rannsóknir benda til þess
að kínverskir ferðamenn séu ekki
ánægðir með þá þjónustu sem þeim
er veitt hér á landi og ég held að það
sé mikilvægt fyrir greinar tengdar
ferðaþjónustu að kynna sér upp-
lifun ferðamannanna,“ segir Grace.
„Sem dæmi má taka vatn á veit-
ingahúsum. Hér er vatn borið
fram kalt en Kínverjar eru vanir að
drekka það heitt eða volgt,“ segir
Grace og bætir við að margir veit-
ingastaðir hafi tekið upp á því að
hita vatn ef von er á kínverskum
ferðamönnum. „Þetta hefur batnað
á síðastliðnum fimm árum eða svo.
Núna held ég að margir sjóði vatn
um leið og þeir sjá hóp Kínverja
nálgast.“
Grace segir mörg önnur dæmi
nærtæk þegar kemur að kín-
verskum ferðamönnum á Íslandi.
Til að mynda hafi mýtan um lélega
aksturshæfni þeirra lengi verið í
hámælum hér. „Það er mikið talað
um það að Kínverjar kunni ekki að
keyra og hafi jafnvel keypt ökuskír-
teini sín á netinu,“ segir hún.
„Það er að sjálfsögðu ekki satt.
Ökupróf í Kína eru erfið og það er
langt ferli að læra á bíl. Aðstæð-
urnar hér eru hins vegar mjög ólíkar
aðstæðum í Kína. Því er afar mikil-
vægt að koma upplýsingum um
veður og færð á vegum til Kínverja,“
segir hún.
„Það er einungis ein síða sem
ég veit um sem hefur gefið slíkar
upplýsingar út á kínversku en upp-
lýsingar um síðuna hafa þó ekki
skilað sér til þeirra,“ segir Grace
og bætir við að afleiðingar þátta af
þessu tagi getir verið alvarlegar líkt
og mátt hafi sjá í síðustu viku þegar
tveir ungir kínverskir ferðamenn
fundust látnir á Sólheimasandi.
Aðspurð að því hvernig kín-
verskir ferðamenn upplifi gestrisni
Íslendinga segir Grace að nauðsyn-
legt sé að bæta úr ýmsum þáttum.
„Þegar þú ferðast til annarra landa
og getur ekki einu sinni lesið skiltin
á f lugvellinum þar sem þú lendir
líður þér að öllum líkindum ekki
eins og þú sért mjög velkominn.
Upplýsingar á skiltum þar þyrftu
ekki að vera f lóknar, bara hvar þú
gætir tekið rútu eða hvar útgangur-
inn væri og um leið liði fólki frekar
eins og það væri velkomið.“
birnadrofn@frettabladid.is
Ólík menning skýri
neikvæða upplifun
Á fundi um móttöku kínverskra ferðamanna sem haldinn verður í dag fjallar
leiðsögumaðurinn Grace Jin Liu um upplifun kínverskra ferðamanna hér.
Hún segir mikinn menningarmun á milli þjóðanna skapa neikvæða upplifun.
Alls komu um 100 þúsund kínverskir ferðamenn til Íslands í fyrra og áætl-
anir gera fyrir að þeim fjölgi enn á komandi árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hér er vatn borið
fram kalt en Kín-
verjar eru vanir að drekka
það heitt eða volgt.
Grace Jin-Liu,
leiðsögumaður
2 2 . J A N Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð