Fréttablaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 12
Ástkær kona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Sigrún Þórarinsdóttir
kennari,
Litlakrika 17, Mosfellsbæ,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á
líknardeild LSH Kópavogi þann 16. janúar.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
24. janúar kl. 13.00.
Ólafur Þór Kjartansson
Edda Ólafsdóttir Rúnar Helgason
Þóra Ólafsdóttir Vignir Óðinsson
Óli Valur Ólafsson
og ömmubörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Jón Pálsson
rafvirki frá Siglufirði,
Selvogsbraut 5a,
Þorlákshöfn,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
laugardaginn 18. janúar. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju
laugardaginn 25. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir.
Anna Sæbý Lúthersdóttir
Þórunn Jónsdóttir Gísli Eiríksson
Hermann Sæbý Jónsson Anna Kristín Jensdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Pálína Pálsdóttir
áður til heimilis að Reynihvammi 35
í Kópavogi,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
28. desember.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju 24. janúar kl. 11.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu fyrir
hlýhug og góða umönnun. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Minningarkort Hrafnistuheimilanna.
Sólrún Bragadóttir Sigurður Friðriksson
Árni Bragason Anna Vilborg Einarsdóttir
Guðbjörg Bragadóttir Kristján Guðmundsson
Þorvaldur Bragason Narelle Jennifer Bragason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ásgerður Arnardóttir
Kirkjubraut 30,
Höfn í Hornafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði
á Höfn sunnudaginn 19. janúar.
Útförin fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 25. janúar
kl. 11. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Gjafa- og
minningarsjóð Skjólgarðs.
Gunnar Ásgeirsson
Arnþór Gunnarsson Erla Hulda Halldórsdóttir
Ásgeir Gunnarsson Eygló Illugadóttir
Elín Arna Gunnarsdóttir Kristinn Pétursson
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær móðir okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Sigríður Inga Þorkelsdóttir
Dalbraut 27, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 16. janúar á
Landspítalanum Fossvogi.
Jarðsungið verður frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 27. janúar klukkan 13.00.
Hanna Helgadóttir Hannes Ingvarsson
Birgitta Helgadóttir
Birgir Helgason Guðrún Hind
Gunnlaugur Hilmarsson Reyndís Harðardóttir
Þorkell Svarfdal Hilmarsson Hrafnhildur Hartmannsdóttir
Gunnar Þór Hilmarsson
Hilmar Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
Smári Ragnarsson
lést á Landspítalanum þann 4. janúar.
Útförin fór fram í kyrrþey mánudaginn
20. janúar að ósk hins látna.
María Welding Magnúsdóttir
Rúna Björk Smáradóttir
Arnheiður Björg Smáradóttir Thomas Hansen
Karen Amelía Jónsdóttir
Baldur Ragnarsson
barnabörn.
Útför ástkærs föður okkar,
stjúpföður, tengdaföður og afa,
Péturs Sveinbjarnarsonar
verður gerð frá Dómkirkjunni
í Reykjavík föstudaginn
24. janúar nk. kl. 13.00.
Guðmundur Ármann Pétursson Birna Ásbjörnsdóttir
Auðbjörg Helga Guðmundsdóttir
Embla Líf Guðmundsdóttir Nói Sær Guðmundsson
Eggert Pétursson Malin Svensson
Freyja Christine Eggertsdóttir Einar Pétur Lars
Eggertsson
Friðrik Örn Hjaltested
Úlfhildur Lokbrá Friðriksdóttir Skorri Ísleifur Friðriksson
Óli Rafn Jónsson Valgerður Magnúsdóttir
Edda Sól Óladóttir Atli Þór Ólason
Árlega efnir lista- og menn-ingarráð Kópavogsbæjar til ljóðasamkeppni undir heitinu Ljóðstafur Jóns úr Vör. Í þetta sinn var það skáldið Björk Þor-
grímsdóttir sem hlaut verðlaunin og
var að vonum glöð. „Ég sendi fyrst inn
ljóð í keppnina í fyrra. Annars er ég oft
svo utan við mig þegar kemur að svona
hlutum, gleymi að sækja um eða hlutir
fara fram hjá mér þannig að þetta er
ótrúlega ánægjulegt.“
Það er nóg að gera hjá Björk, hún
starfar í Gerðarsafni í Kópavogi og
nemur menningarmiðlun við Háskóla
Íslands. Áður hefur hún lært heimspeki,
bókmenntafræði og ritlist við sama
skóla. Hún hefur gefið út tvær bækur,
Bananasól árið 2013 og Neindarkennd
árið 2014, það var hennar fyrsta ljóða-
bók. „Ég gaf út bækurnar með nokkurra
mánaða millibili og nú er ég með ljóða-
handrit nánast tilbúið. Held þó að það
sé sama hversu margar bækur liggi eftir
hvern og einn, við erum alltaf á byrj-
unarreit. Það er alltaf efi um eigin rödd
en efinn er að sama skapi nauðsynlegur,
ákveðið sköpunarafl.“
Björk viðurkennir þó að vera sískrif-
andi. „Ég er alltaf að hripa eitthvað
niður í stílabók, hugsanir eða setningar
sem ég heyri og les. Verandi skáld er
maður stöðugt vakandi og að safna í
sarpinn, þó ómeðvitað sé að einhverju
leyti.“ Hún segist njóta þess að lesa ljóð
eftir aðra. „Það er fullt af góðum ljóða-
bókum sem hafa komið út um þessar
mundir eftir íslensk skáld. Mér þykir
líka vænt um þegar fólk þýðir ljóð, það
er dýrmætt. Annars er mikil gróska
í ljóðaheiminum og auðvitað fylgist
maður með.“
Hún ólst upp innan um bækur, að
eigin sögn. „Afi minn, pabbi mömmu,
var bókbindari og faðir hans átti Bók-
fell á Hverfisgötunni. Það var alltaf lögð
mikil áhersla á bóklestur og síðan ég var
lítil hefur mér alltaf þótt gaman að lesa
upphátt fyrir fólk. Góð vinkona mín átti
heima í sömu blokk og ég en mamma
hennar vann á leikskóla. Við fórum oft
með henni þangað þegar hún var að
skúra og þá fórum við beint inn í bóka-
herbergið þar sem ég las upphátt fyrir
hana. Þetta var það skemmtilegasta sem
ég gerði. Eins elti ég mömmu um húsið
lesandi þegar hún var að sýsla eitthvað.
Ég naut þess að fara með texta.“
Þegar Björk var að byrja að yrkja
segir hún mikið hafa verið um ljóða-
upplestra. „Nýhil, félag ungskálda, var
sterkt, oft var lesið upp í Stúdenta-
kjallaranum og þar myndaðist góð
stemning. Í seinni tíð hefur landslagið
aðeins breyst. Það eru f leiri útgáfufélög,
bæði í grasrótinni og ekki. Svo með til-
komu ritlistarkennslu hafa myndast
skáldahópar. Fjölbreytnin er meiri og
f leiri raddir komið fram sem lengir von-
andi líftíma ljóðsins. Annars er ótrúlega
hollt að fá þessa viðurkenningu og hún
er mikil hvatning fyrir mig til að halda
áfram. gun@frettabladid.is
Alltaf efi um eigin rödd
Ljóðskáldinu Björk Þorgrímsdóttur hlotnaðist sá heiður í gær að taka við verðlaunum
í ljóðasamkeppni sem kennd er við Jón úr Vör og göngustaf hans til varðveislu í ár.
Sigurljóðið
Augasteinn
undan nóttinni vaxa trén
við vorum sammála um það
hvort var það ég eða þú sem komst
aftur?
var ég heilög og húðin sjúklega
geislandi
kjarni sítrusávaxta
við ræddum lófana í hljóði
góm við góm
meðan augasteinarnir sukku
sáttlausir í myrkrinu
það fæst engin medalía fyrir
tilraunastarfsemi
þú með þína klofnu tungu
og ég sem næli orðunni
rétt undir viðbeinið
„Það var alltaf lögð mikil áhersla á bóklestur og síðan ég var lítil hefur mér alltaf
þótt gaman að lesa upphátt fyrir fólk,“ segir Björk. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
2 2 . J A N Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT