Fréttablaðið - 22.01.2020, Side 25

Fréttablaðið - 22.01.2020, Side 25
Breskir aðilar munu ekki eiga almennan rétt til að kaupa fasteignir á Íslandi heldur þurfa að fara að ákvæðum laga um fasteignakaup útlendinga utan EES og sækja sér heimild ráðherra til slíkra viðskipta.Síðar í dag, miðvikudag, er gert ráð fyrir að breska þingið stað-festi svonefnd útgöngulög sem innleiða útgöngusamning Bretlands úr Evrópusambandinu (ESB). Samn- ingurinn verður síðan borinn undir þing Evrópusambandsins til stað- festingar miðvikudaginn 29. janúar. Ef allt fer sem fram horfir mun Bret- land því ganga úr ESB föstudaginn 31. janúar. Útgöngusamningur Bretlands felur í sér að Bretland hættir að vera aðildarríki ESB. Bretland mun því ekki eiga fulltrúa í stofn- unum ESB, svo sem ráðherraráði eða framkvæmdastjórn, og breskir þingmenn á Evrópuþinginu láta af störfum. Við tekur hins vegar ellefu mánaða aðlögunartímabil þar sem Bretland telst vera de facto aðili að innri markaði ESB. Á þessu tíma- bili verða því engar breytingar á viðskiptum breskra aðila á innri markaðnum og að sama skapi njóta EES-borgarar réttinda innri mark- aðarins í Bretlandi. Hvað tekur við að loknu aðlögunartímabilinu er hins vegar óljóst. Boris Johnsson forsætisráðherra hefur lýst því yfir að aðlögunar- tímabilið verði ekki framlengt og útgöngulögin kveða á um að ríkis- stjórninni sé óheimilt að óska eftir framlengingu. Johnsson hefur líka lýst því yfir að Bretar muni ekki stefna að aðlögun eða samræmingu breskrar löggjafar við löggjöf ESB. Það virðist því vera ljóst að viðskipti við breska aðila sem hingað til hafa farið fram á grundvelli meginreglna innri markaðarins munu taka verulegum breytingum í lok þessa árs. Útganga Breta úr ESB mun hafa veruleg áhrif á öll viðskipti íslenskra og breskra aðila hvort heldur er í Bretlandi eða hér á landi. Að því er varðar frjálsa för fólks eða réttindi til dvalar í Bretlandi (sem og rétt breskra þegna til dval- ar í aðildarríkjum ESB eða EFTA) mælir útgöngusamningurinn fyrir um rétt til dvalar að uppfylltum til- teknum skilyrðum þar sem menn öðlast ýmist ótímabundinn rétt til dvalar vegna fyrri búsetu (e. settled status) eða forrétt (e. pre-settled sta- tus). EFTA-ríkin sem aðild eiga að EES-samningnum, Ísland, Noregur og Liechtenstein, hafa gert samn- ing við Bretland sem speglar þessi ákvæði útgöngusamningsins. Hins vegar er talið að ríflega milljón EES- borgara eigi enn eftir að sækja um staðfestingu á þessum réttindum. Það er því brýnt fyrir alla íslenska aðila sem búsettir eru í Bretlandi að huga sem fyrst að því að sækja um staðfestingu á þessum réttindum og breskir þegnar á Íslandi þurfa að gæta að staðfestingu á dvalarleyfi hér á landi. Vöruviðskipti við Bretland munu taka verulegum breytingum. Bretar ganga bæði úr tollabandalagi ESB og innri markaðnum og þurfa því að semja við bæði ESB og Ísland um tolla og markaðsaðgang. Þótt vilji manna standi til þess að vöruvið- skipti geti orðið eins hnökralaus og kostur er, þá er einsýnt að útgangan mun kalla á nýja ferla, til dæmis að því er varðar tollafgreiðslu. Þetta mun hafa veruleg áhrif á íslensk fyrirtæki sem hafa nýtt sér Bret- land sem fyrsta stopp inn á innri markaðinn. Að því er varðar þjónustuvið- skipti er staðan enn snúnari. Frí- verslunarsamningar sem taka til þjónustuviðskipta hafa til þessa verið langan tíma í smíðum sbr.  meðal annars  fríverslunar- samningur ESB og Kanada. Það verður því að teljast ólíklegt að Bretar og ESB nái að semja um markaðsaðgang fyrir þjónustu á þeim stutta tíma sem er til stefnu. Bresk fyrirtæki sem veita þjónustu á innri markaðnum samkvæmt starfsleyfi í einu ríki, eins og fjár- málafyrirtæki og vátrygginga- fyrirtæki, standa því frammi fyrir miklum áskorunum. Að sama skapi þurfa íslenskir aðilar sem nýta sér þjónustu slíkra fyrirtækja að ganga úr skugga um að viðskiptin sam- ræmist íslenskum lögum sem inn- leiða viðeigandi EES-reglur. Þá þarf að huga að ýmsum sérlögum eins og til dæmis lögum um persónuvernd enda byggir afhending persónuupp- lýsinga til breskra aðila í dag á sam- ræmdri EES-löggjöf. Einnig má nefna að fjármagns- f lutningar á milli Íslands og Bretlands munu taka breyting- um.  Þannig munu breskir aðilar ekki eiga almennan rétt til að kaupa fasteignir á Íslandi heldur þurfa að fara að ákvæðum laga um fasteigna- kaup útlendinga utan EES og sækja sér heimild ráðherra til slíkra við- skipta. Um fjárfestingar íslenskra aðila í Bretlandi mun fara eftir breskum lögum. Það er því að mörgu að huga. Ell- efu mánuðir eru ekki lengi að líða. Brexit – Hvað nú?   Dóra Sif Tynes meðeigandi hjá Advel lögmönnum Fundurinn er á Nauthóli mánudaginn 27. janúar og hefst með léttum morgunverði klukkan 8:00. Það eru Orkuveita Reykjavíkur, Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og IcelandSIF sem gangast fyrir fundinum. Enginn aðgangseyrir er að fundinum en þátttakendur eru beðnir að skrá sig á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur, or.is. Græn skuldabréf - straumar á Íslandi og erlendis Opinn morgunverðarfundur Orkuveitu Reykjavíkur, Viðskiptafræðideildar HÍ og IcelandSIF um útgáfu grænna skuldabréfa. Einn fremsti sérfræðingur heims á sviði fjármögnunar fyrirtækja, dr. Ahmad A. Rahnema prófessor við alþjóðlega viðskipta háskólanna IESE í Barcelona, verður aðalfyrirlesari á opnum morguverðafundi um græn skuldabréf. 9M I Ð V I K U D A G U R 2 2 . J A N Ú A R 2 0 2 0 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.