Fréttablaðið - 22.01.2020, Page 25
Breskir aðilar munu
ekki eiga almennan
rétt til að kaupa fasteignir á
Íslandi heldur þurfa að fara
að ákvæðum laga um
fasteignakaup útlendinga
utan EES og sækja sér
heimild ráðherra til slíkra
viðskipta.Síðar í dag, miðvikudag, er gert ráð fyrir að breska þingið stað-festi svonefnd útgöngulög sem
innleiða útgöngusamning Bretlands
úr Evrópusambandinu (ESB). Samn-
ingurinn verður síðan borinn undir
þing Evrópusambandsins til stað-
festingar miðvikudaginn 29. janúar.
Ef allt fer sem fram horfir mun Bret-
land því ganga úr ESB föstudaginn
31. janúar.
Útgöngusamningur Bretlands
felur í sér að Bretland hættir að
vera aðildarríki ESB. Bretland
mun því ekki eiga fulltrúa í stofn-
unum ESB, svo sem ráðherraráði
eða framkvæmdastjórn, og breskir
þingmenn á Evrópuþinginu láta af
störfum. Við tekur hins vegar ellefu
mánaða aðlögunartímabil þar sem
Bretland telst vera de facto aðili að
innri markaði ESB. Á þessu tíma-
bili verða því engar breytingar á
viðskiptum breskra aðila á innri
markaðnum og að sama skapi njóta
EES-borgarar réttinda innri mark-
aðarins í Bretlandi. Hvað tekur við
að loknu aðlögunartímabilinu er
hins vegar óljóst.
Boris Johnsson forsætisráðherra
hefur lýst því yfir að aðlögunar-
tímabilið verði ekki framlengt og
útgöngulögin kveða á um að ríkis-
stjórninni sé óheimilt að óska eftir
framlengingu. Johnsson hefur líka
lýst því yfir að Bretar muni ekki
stefna að aðlögun eða samræmingu
breskrar löggjafar við löggjöf ESB.
Það virðist því vera ljóst að viðskipti
við breska aðila sem hingað til hafa
farið fram á grundvelli meginreglna
innri markaðarins munu taka
verulegum breytingum í lok þessa
árs. Útganga Breta úr ESB mun
hafa veruleg áhrif á öll viðskipti
íslenskra og breskra aðila hvort
heldur er í Bretlandi eða hér á landi.
Að því er varðar frjálsa för fólks
eða réttindi til dvalar í Bretlandi
(sem og rétt breskra þegna til dval-
ar í aðildarríkjum ESB eða EFTA)
mælir útgöngusamningurinn fyrir
um rétt til dvalar að uppfylltum til-
teknum skilyrðum þar sem menn
öðlast ýmist ótímabundinn rétt til
dvalar vegna fyrri búsetu (e. settled
status) eða forrétt (e. pre-settled sta-
tus). EFTA-ríkin sem aðild eiga að
EES-samningnum, Ísland, Noregur
og Liechtenstein, hafa gert samn-
ing við Bretland sem speglar þessi
ákvæði útgöngusamningsins. Hins
vegar er talið að ríflega milljón EES-
borgara eigi enn eftir að sækja um
staðfestingu á þessum réttindum.
Það er því brýnt fyrir alla íslenska
aðila sem búsettir eru í Bretlandi að
huga sem fyrst að því að sækja um
staðfestingu á þessum réttindum
og breskir þegnar á Íslandi þurfa að
gæta að staðfestingu á dvalarleyfi
hér á landi.
Vöruviðskipti við Bretland munu
taka verulegum breytingum. Bretar
ganga bæði úr tollabandalagi ESB
og innri markaðnum og þurfa því
að semja við bæði ESB og Ísland um
tolla og markaðsaðgang. Þótt vilji
manna standi til þess að vöruvið-
skipti geti orðið eins hnökralaus og
kostur er, þá er einsýnt að útgangan
mun kalla á nýja ferla, til dæmis að
því er varðar tollafgreiðslu. Þetta
mun hafa veruleg áhrif á íslensk
fyrirtæki sem hafa nýtt sér Bret-
land sem fyrsta stopp inn á innri
markaðinn.
Að því er varðar þjónustuvið-
skipti er staðan enn snúnari. Frí-
verslunarsamningar sem taka
til þjónustuviðskipta hafa til
þessa verið langan tíma í smíðum
sbr. meðal annars fríverslunar-
samningur ESB og Kanada. Það
verður því að teljast ólíklegt að
Bretar og ESB nái að semja um
markaðsaðgang fyrir þjónustu á
þeim stutta tíma sem er til stefnu.
Bresk fyrirtæki sem veita þjónustu
á innri markaðnum samkvæmt
starfsleyfi í einu ríki, eins og fjár-
málafyrirtæki og vátrygginga-
fyrirtæki, standa því frammi fyrir
miklum áskorunum. Að sama skapi
þurfa íslenskir aðilar sem nýta sér
þjónustu slíkra fyrirtækja að ganga
úr skugga um að viðskiptin sam-
ræmist íslenskum lögum sem inn-
leiða viðeigandi EES-reglur. Þá þarf
að huga að ýmsum sérlögum eins og
til dæmis lögum um persónuvernd
enda byggir afhending persónuupp-
lýsinga til breskra aðila í dag á sam-
ræmdri EES-löggjöf.
Einnig má nefna að fjármagns-
f lutningar á milli Íslands og
Bretlands munu taka breyting-
um. Þannig munu breskir aðilar
ekki eiga almennan rétt til að kaupa
fasteignir á Íslandi heldur þurfa að
fara að ákvæðum laga um fasteigna-
kaup útlendinga utan EES og sækja
sér heimild ráðherra til slíkra við-
skipta. Um fjárfestingar íslenskra
aðila í Bretlandi mun fara eftir
breskum lögum.
Það er því að mörgu að huga. Ell-
efu mánuðir eru ekki lengi að líða.
Brexit – Hvað nú?
Dóra Sif Tynes
meðeigandi
hjá Advel
lögmönnum
Fundurinn er á Nauthóli mánudaginn 27. janúar
og hefst með léttum morgunverði klukkan 8:00.
Það eru Orkuveita Reykjavíkur, Viðskiptafræðideild
Háskóla Íslands og IcelandSIF sem gangast fyrir
fundinum.
Enginn aðgangseyrir er að fundinum en þátttakendur
eru beðnir að skrá sig á heimasíðu Orkuveitu
Reykjavíkur, or.is.
Græn skuldabréf
- straumar á Íslandi og erlendis
Opinn morgunverðarfundur Orkuveitu Reykjavíkur,
Viðskiptafræðideildar HÍ og IcelandSIF um útgáfu
grænna skuldabréfa.
Einn fremsti sérfræðingur heims
á sviði fjármögnunar fyrirtækja,
dr. Ahmad A. Rahnema
prófessor við alþjóðlega viðskipta
háskólanna IESE í Barcelona, verður aðalfyrirlesari
á opnum morguverðafundi um græn skuldabréf.
9M I Ð V I K U D A G U R 2 2 . J A N Ú A R 2 0 2 0 MARKAÐURINN