Fréttablaðið - 07.12.2019, Blaðsíða 45
Laufey Stein-
dórsdóttir,
hjúkrunarfræð-
ingur, jóga- og
hugleiðslukenn-
ari og stofnandi
Kyrrðarjóga, hefur
glímt við melting-
arvandamál um
árabil. Hér deilir
hún með okkur á
sinn skemmtilega
hátt reynslu sinni
og hvernig hún
hefur náð tök á
sínum málum.
Sem hjúkrunarfræðingur er ég mjög meðvituð um mikilvægi heilbrigðrar þarmaflóru
og góðrar meltingar og því fagna
ég allri umræðu um hægðir og
klósettferðir fólks. Í gegnum mitt
starf og einkalíf hef ég áttað mig á
hversu stór partur af heilsu fólks er
tengdur meltingarveginum. Mér
finnst algerlega nauðsynlegt að
hver og einn hugi að sinni „hægða
heilsu“ og sem betur fer er þetta
málefni mér engan veginn óþægi
legt eða viðkvæmt,“ segir Laufey.
Nauðsynlegt heilsutékk
„Fjölskyldunni minni finnst þó
algjör óþarfi að ræða þessa hluti
við eldhúsborðið, yfir kvöld
matnum eða fyrir framan gesti
og gangandi en mér finnst það
hið besta mál og vil leggja mitt af
mörkum til að dætur mínar skilji
mikilvægi heilbrigðrar meltingar.
Það að fara á klósettið og pæla í því
sem lendir þar er bara nauðsynlegt
heilsutékk. Þeir sem þekkja mig
vel vita að ég á það til að vera með
hægðir á heilanum. Ekki í orðsins
fyllstu merkingu en svona allt að
því. Ástæðan er einfaldlega sú að
ég hef sjálf glímt við meltingar
vandamál um árabil sem kallast
hægðatregða og hefur oft á tíðum
gert mér lífið leitt,“ bætir hún við.
„Ótalmargir einstaklingar á
öllum aldri glíma við þennan
hvimleiða kvilla og vita nákvæm
lega hvað ég er að tala um. Eina
líklegustu ástæðuna og upphaf
þess að ég fæ þessa meltingarkvilla
má rekja til sýklalyfjagjafar vegna
sýkingar í móðurlífi í kjölfarið á
barnsfæðingum. Mikið gríðarlega
var ég þakklát fyrir sýklalyfin og
endurheimt heilsunnar en eftir
sátu þarmarnir með bakteríu
flóruna í algeru ójafnvægi og
reglubundin hægðalosun heyrði
sögunni til. Það er frekar þreyt
andi þegar ekkert er að frétta og
þarmarnir bara í fríi, börnin þín
halda að þú sért komin sex mánuði
á leið og þau eigi von á systkini.
Það er líka mjög þreytandi að vera
alveg stíflaður og finna þreytu
og slen byggjast upp í takt við
þensluna á kviðnum. Nú fer þetta
að verða meira og meira spenn
andi, frásagnargleði mín fer á f lug
og ég ætla því að fá að deila með
ykkur jólasögu síðasta árs,“ segir
Laufey.
Jólasaga frá Tenerife
„Við fjölskyldan ákváðum að
halda jólin hátíðleg fjarri heima
högunum í fyrsta sinn og dvöldum
á Tenerife í tæpar tvær vikur yfir
jól og áramót. Ég gerði þau skelfi
legu mistök að taka ekki með mér
neina góðgerla því ég hélt að hægt
væri að kaupa slíkt í næsta heilsu
húsi á eyjunni í Atlantshafi. Ó, nei,
ekki aldeilis. Eyjarskeggjar eru
eflaust f lestir með fína meltingar
heilsu því hvergi fann ég heilsuhús
eða apótek sem
seldi slíkar gersem
ar sem meltingar
ensím og fjölgerlar
eru.
Að kaupa kröftug
laxatív lyf var alveg
síðasta sort því
ég nennti ekki að
ganga í hægðum
mínum í fína sund
bolnum á strönd
inni. Loks á degi
sjö í hægðastoppi
fann ég einhverja
rándýra góðgerla
blöndu en þrátt
fyrir að hafa klárað
alla pakkninguna
næstu daga hafði
það engin áhrif.
Allir gerlarnir
greinilega löngu
dauðir úr hita og ég hélt áfram
að burðast með nokkur kíló af
úrgangsefnum sem sátu sem
fastast. Ég flaug heim til Íslands
töluvert sverari um mig miðja og
tilkynnti fjölskyldunni minni að
einungis eitt grjóthart lambasparð
hefði skilað sér í skálina í jóla
ferðinni okkar. Þeim fannst ég ekki
fyndin.
Nýtt líf með Bio-Kult
Ég hef í mörg ár þurft að taka inn
góðgerla og ég hef ekki tölu á því
hve miklum fjármunum ég hef
eytt í alls konar vörur sem stuðla
að öflugri og betri meltingu og
heilbrigðari þarmaflóru. Sumt
virkar og annað alls ekki.
Það er því með mikilli ánægju
sem ég segi frá reynslu minni af
BioKult sem ég hef notað með
hléum undanfarin ár en sem ég
hef nú gefið meiri gaum og tekið
að staðaldri. Ég ákvað í ljósi
reynslu minnar og tregðu að taka
tvöfaldan skammt í
tvær vikur af bæði
BioKult og BioKult
Candéa. Með því
móti náði ég að koma
öllu vel af stað og ná
jafnvægi. Í dag tek ég
ráðlagðan skammt
bæði kvölds og
morgna og finn að
það hefur mjög góð
áhrif á meltinguna
og garnahljóðin eru
fyrir mér kærkominn
og ómfagur hljómur.
Enn fremur þoli
ég betur flestalla
fæðu og bíð með
eftirvæntingu eftir
jólamatnum með von
um árangursríkar
klósettferðir.
Gleðileg jól.“
Nú er lífið hægðaleikur - Jólasaga
Ótalmargir ein-
staklingar á öllum
aldri glíma við
hægðatregðu,
segir Laufey
Steindórsdóttir,
hjúkrunarfræð-
ingur og jóga-
kennari. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
Það að fara á
klósettið og pæla í
því sem lendir þar er
bara nauðsynlegt heilsu-
tékk.
Hair Volume inniheldur jurtir og bætiefni sem sem eru
mikilvæg fyrir hárið og getur gert það líflegra og fallegra.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða
Hair Volume – fyrir líflegra hár
Aldrei haft jafn þykkt hár.
– Edda Dungal
Falleg gjöf sem gleður
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9