Fréttablaðið - 07.12.2019, Síða 82
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Enterosgel er gel til inntöku og er mest notað við meltingarkvillum
ýmiss konar en er líka notað til að hjálpa líkamanum að hreinsa
áfengi hraðar út sem og útvortis á bólur og exem.
Helsta virkni Enterosgel í líkamanum:
Hjálpar líkamanum að stöðva niðurgang
Dregur úr meltingartruflunum
Hraðar hreinsun áfengis úr líkamanum
Hjálpar líkamanum að viðhalda og byggja upp heilbrigða þarmaflóru
Verndar slímhúð meltingarvegar
Enterosgel hentar bæði börnum og fullorðnum
Áratuga reynsla og fjöldi rannsókna hafa sýnt fram á einstaka eiginleika Enterosgel
FÆST Í MAMMA VEIT BEST, MAMMAVEITBEST.IS, HEILSUHÚSUNUM OG HEILSUTORGI BLÓMAVALS
Sigrún Ósk segir verðugt að styðja við Ljónshjartabörn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kærleiksdagurinn var upp-haflega hugsaður til að auka samkennd hjá börnum um
að ekki hafi öll börn það jafn gott
og þau og að mörg börn eigi um
sárt að binda. Viðburðurinn skiptir
þau máli og bæði smáfólkið og
unglingarnir vinna hlutina sína af
alúð, umhyggju og kærleika til að
geta veitt börnum sem standa hall-
ari fæti verðugan stuðning,“ segir
Sigrún Ósk Arnardóttir, aðstoðar-
forstöðumaður frístundaheimilis-
ins Regnbogans í Seljahverfi, um
Kærleiksdag Miðbergs sem fram
fer í dag í Hólabrekkuskóla í Efra-
Breiðholti.
„Á Kærleiksdegi Miðbergs
styrkjum við málefni sem tengjast
börnum því starfsemi frístunda-
miðstöðvarinnar gengur út á
barna- og unglingastarf. Í fyrra
styrktum við uppbyggingu á
leikaðstöðu fyrir börn sem dveljast
í Kvennaathvarfinu og söfnuðum
hátt í 300 þúsund krónum fyrir
málefnið,“ upplýsir Sigrún Ósk.
Að þessu sinni rennur allur ágóði
Kærleiksdagsins í sjóðinn „Að
grípa Ljónshjartabörn“.
„Ljónshjarta er stuðningsfélag
fyrir ungt fólk sem misst hefur
maka sinn, sem og börn þeirra.
Félagið hefur það meginmarkmið
að veita jafningjastuðning, fræðslu,
upplýsingaöflun og samveru og
skapar vettvang fyrir samveru-
stundir og fjölbreytta dagskrá
þar sem félagsmenn og börn
þeirra hittast og njóta þess að vera
saman,“ útskýrir Sigrún Ósk.
Hún segir makamissi í blóma
lífsins vera eitt mesta áfall sem
hægt sé að verða fyrir á lífsleiðinni.
„Það tekur mikið á fyrir syrgj-
endur að vera í sorg og sinna á sama
tíma börnum og heimili. Markmið
sjóðsins „Að grípa Ljónshjarta-
börn“ er a að veita Ljónshjarta-
börnum aðstoð sem allra fyrst eftir
foreldramissi og er aðstoðin fólgin
í samtalsmeðferð og ráðgjöf hjá
fagaðilum því það er mikilvægt að
grípa Ljónshjartabörn eftir andlát
foreldra og veita þeim viðeigandi
stuðning,“ upplýsir Sigrún Ósk.
Vilja leggja sitt af mörkum
Á borðum í hátíðarsal Hólabrekku-
skóla hafa verið lögð gullfalleg
listaverk eftir börn og unglinga í
Breiðholti en þess má geta að Hóla-
brekkuskóli, frístundaheimilin
Álfheimar og Hraunheimar og
félagsmiðstöðin Hundraðogellefu
í Efra-Breiðholti, sem starfa undir
hatti Miðbergs, skrifuðu á dögun-
um undir samning við Unicef um að
hefja þá vegferð að verða Réttinda-
skóli og Réttindafrístund Unicef.
„Allir leggjast á eitt fyrir Kær-
leiksdaginn þar sem börnin búa til
lítil listaverk og starfsfólkið bakar
dýrindis tertur og góðgæti fyrir
kökubasarinn. Á boðstólum verða
einstaklega fallegir og eigulegir
munir sem börnin hafa föndrað
eins og pakkamerkimiðar, hálku-
salt, jólakúlur, kerti og fjölnota
taupokar, svo fátt sé upptalið, og
hver nýtur þess ekki að maula
góðar kökur á aðventunni?“ spyr
Sigrún Ósk, full tilhlökkunar fyrir
deginum í dag.
„Fjölmörg fyrirtæki hafa fært
börnunum afar veglega vinninga
Kærleikur frá börnum til barna
Börn og unglingar í Breiðholti bjóða í dag upp á gullfallegt jólaskraut og nytjavarning til styrktar
Ljónshjartabörnum sem misst hafa foreldri á Kærleiksdegi frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs.
Börnin í Breið-
holti hafa
útbúið ýmis
listaverk eins og
þessa undurfal-
legu jólapakka-
merkimiða.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
fyrir happadrætti Kærleiksdagsins
og svo sannarlega til mikils að
vinna. Verðinu er stillt í hóf og allt
er ódýrt svo allir geti lagt sitt af
mörkum fyrir Ljónshjartabörnin,“
segir Sigrún Ósk.
„Okkur þykir verðugt að styðja
við þetta málefni því árlega missa
mörg börn foreldri og krakkarnir
í Breiðholtinu þekkja þar til og
það snertir þau. Við ræðum þetta
málefni okkar á milli og börnum
og unglingum þykir það mjög
leiðinlegt að annað barn eigi ekki
foreldri og vilja gera þeim lífið
bærilegra.“
Kærleiksdagurinn verður
haldinn á sal Hólabrekkuskóla í
dag, laugardaginn 7. desember,
frá klukkan 14 til 16. Allir eru
hjartanlega velkomnir í jólalega og
skemmtilega stemningu. Kaffi- og
vöfflusala á staðnum og sannur
jólaandi.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R