Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 84
Jólaskógurinn í Hamrahlíð verður
opnaður á morgun.
Jólaskógurinn í Hamrahlíð við Vesturlandsveg verður opnaður á morgun kl. 13. Hamra
hlíð er staðsett í Mosfellsbænum
og því í alfaraleið. Fjölmargt verður
á dagskránni þennan dag og geta
allir fundið eitthvað við sitt hæfi.
Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ, Har
aldur Sverrisson, mun saga fyrsta
tréð. Harmónikkuleikur mun óma
um skóginn auk þess sem Mosfells
kórinn mun syngja vel valin lög.
Boðið verður upp á heitar
lummur og að sjálfsögðu verður
hægt að gæða sér á ekta skógarkaffi
og heitu súkkulaði. Jólasveinninn
mun mæta í skóginn og halda uppi
stuðinu.
Þetta verður notaleg fjölskyldu
stund þar sem hægt verður að
ganga um skóginn og velja hið eina
sanna jólatré.
n Jólatrjáasalan í Hamrahlíð verð-
ur opin frá 8. til 23. desember.
n Opið verður kl. 10 til 16 um
helgar.
n Vikuna 9. til 13. desember
verður opið kl. 12.00 til 14.00.
n Vikuna 16. til 20. desember
verður opið kl. 12.00 til 18.00.
n Opið á Þorláksmessu kl. 10.00
til 16.00.
Jólaskógur á aðventu
Kerti í fallegum bolla er jólalegt.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fyrir jólin er vinsælt að nota kerti til að lýsa upp skammdegið og gera notalegt heima.
Það er einfalt að útbúa eigið kerti
úr kertaafgöngum. Hægt er að nota
þráð úr kertum sem hafa brotnað
eða bognað og bræða svo vaxið úr
brotnu kertunum og afgöngunum
til að nýta í nýtt kerti. Einnig má
kaupa þráð og leggja hann í vaxbað.
Bræðið vaxið yfir vatnsbaði svo
það brenni ekki. Bindið þráðinn
upp á prjón. Leggið svo prjóninn
ofan á fallegan postulínsbolla svo
þráðurinn fari ofan í miðjan boll
ann. Hellið vaxinu ofan í bollann
og látið kólna. Þegar vaxið hefur
harðnað er þráðurinn losaður
af prjóninum og hann klipptur í
hæfilega lengd. Þá er kertið tilbúið.
Þegar kveikt er á kertinu lýsir boll
inn líka og verður þannig sérstak
lega jólalegur og fallegur.
Kerti í tebolla
Þýskar kanilstjörnur eru fallegar og
einstaklega bragðgóðar smákökur.
Þýskar kanilstjörnur, eða Zimtsterne, eru hluti af órjúfanlegri hefð á þýskri aðventu.
Þær eru fallegar og einstaklega
bragðgóðar.
Kanilstjörnur
500 g malaðar möndlur (möndlu
mjöl)
300 g flórsykur
2 tsk. kanill
2 eggjahvítur
2 msk. möndlulíkjör (til dæmis
Amaretto)
Hvítur glassúr:
1 eggjahvíta
125 g flórsykur
Setjið möndlumjöl, flórsykur og
kanil í stóra skál og hrærið saman
með sleif. Bætið við möndlulíkjör
og tveimur eggjahvítum. Hrærið
vel með sleif og hnoðið muln
ingnum saman með höndunum
þannig að úr verði þéttur massi.
Dreifið flórsykri á borðið, takið bút
af deiginu og fletjið út svo það verði
á bilinu 0,5 til 1 cm þykkt. Skerið
út stjörnur og setjið á bökunar
pappír á bökunarplötu. Stífþeytið
eggjahvítu fyrir glassúrinn og
haldið áfram að þeyta þegar flór
sykri er bætt við smátt og smátt.
Penslið stjörnurnar með vænu lagi
af glassúr áður en þær fara í ofninn.
Bakið við 150°C í neðstu rim í 1015
mínútur. Kökurnar eru linar þegar
þær koma úr ofninum, en samt skal
ekki baka þær lengur. Látið kólna
á grind. Þeir sem vilja kökurnar
án áfengis geta skipt út líkjör fyrir
sítrónusafa og möndluolíu. Einnig
er hægt að gera kökurnar með
möluðum heslihnetum.
Þýskar
kanilstjörnur
Hlíðasmára 9 • Kópavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrt.is • www.snyrt.is
Snyrtistofan Hafblik
Jólatilboð
gildir til jóla
20% afsláttur af öllum gjafakortum
(gildistími þeirra er 1 ár)
Fyrir þá sem gera kröfur um gæði og árangur
Bókið frían tíma í skoðun/viðtal
Hollywoodmeðferð
20% afsláttur á meðferðarpakkanum
Háræðaslitsmeðferðir
10% afsláttur af Háræðaslitsmeðferðum
Ef meðferð er byrjuð fyrir jól
fær viðkomandi 15% afslátt
af meðferðinni í heild.
3 skipti þarf til að loka
fullkomlega skemmdum
háræðum. Mánuður er
látinn líða milli meðferða.
Fyrir Eftir
Fyrir Eftir
Langtíma viðgerðarmeðferð
á andliti þar sem húð er
markvisst byggð upp
á náttúrulegan hátt án
inngripa nála eða skurðhnífa.
Starfsemi og frumuendurnýjun
húðarinnar er stóraukin þar
sem stofnfrumuhvatar eru
unnir djúpt ofan í húð með
nýjustu hágæða örtækni.
Tilvalið í
jólapakkann
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R