Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.12.2019, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 09.12.2019, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 8 7 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Hafnartorg - 511 1900 - michelsen.is Glæsileiki FRÁBÆR JÓLATILBOÐ Í NETTÓ! Nautalund Danish Crown 2.999KR/KG ÁÐUR: 4.999 KR/KG Tilboðið gildir á meðan birgðir endast. ALGJÖR VERÐ- SPRENJA! STJÓRNSÝSLA Dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti telur þrjá af átta umsækjendum hæfasta til að hljóta skipun í lausa stöðu dómara við Hæstarétt. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins. Þau þrjú sem um ræðir eru Ingveldur Einarsdóttir, Davíð Þór Björgvinsson og Sigurður Tómas Magnússon. Þau eru öll dómarar við Landsrétt. Alls sóttu átta um stöðuna og hafa þeir fengið erindi þessa efnis frá dómnefndinni. Frestur þeirra til að gera athugasemdir við matið rann út á föstudaginn. Gera má ráð fyrir að dómnefndin hafi þegar hafist handa við úrvinnslu athugasemda og niðurstaða nefndarinnar gæti því legið fyrir í þessari viku. Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson tilkynntu ráðherra á haustmánuðum að þeir hygðust láta af embætti við Hæstarétt en þeir urðu 65 ára á árinu sem er að líða. Aðeins einn dómari verður skipaður í stað þeirra tveggja vegna sólarlags- ákvæðis í nýjum dómstólalögum um fækkun dómara við Hæstarétt. Af þeim átta sem gegna stöðu dómara við Hæstarétt er aðeins ein kona, Gréta Baldursdóttir. Gréta er komin á leyfilegan eftirlaunaaldur en í svari við fyrirspurn Fréttablaðs- ins í sumar sagðist Gréta ekki vera á útleið úr réttinum að svo stöddu. Með tilliti til mikils kynjahalla við réttinn þykir þeim sem Frétta- blaðið hefur rætt við við líklegast að Ingveldur hljóti skipun í hið lausa embætti. Ingveldur hefur töluverða reynslu af dómarastörfum á öllum dómstigum, en hún var dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur áður en hún var skipuð í Landsrétt. Hún hefur einnig verið sett dómari við Hæstarétt og starfaði þar um nokk- urra ára skeið vegna álags við réttinn á árunum eftir hrun. – aá Þrír hæfastir í embætti við Hæstarétt Davíð Þór Björgvinsson, Ingveldur Einarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon, dómarar við Landsrétt, eru talin hæfust umsækjenda um embætti við Hæstarétt. Frestur til að gera at- hugasemdir við matið rann út á föstudag. Ingveldur Einarsdóttir þykir líkleg til að hljóta skipun í embættið því að af átta dómurum sem nú sitja í réttinum er aðeins ein kona. Fjöldi fólks nýtti sér veðurblíðuna í gær og nokkrir brugðu sér á skauta á ísilagðri Reykjavíkurtjörn. Veður var lygnt og kalt og ísinn tilvalinn til skautaiðkunar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI SUND Sundkappinn Anton Sveinn McKee sem syndir fyrir hönd SH var að vonum sáttur eftir að hafa sett sjö Íslandsmet og tvö Norður- landamet á EM í 25 metra laug sem lauk í Skotlandi um helgina. Anton Sveinn segist vera ánægður með framfarirnar í aðdraganda Ólympíuleikanna  í Tókýo  næsta sumar þar sem hann verður meðal þátttakenda. „Pressan var minni í aðdraganda mótsins eftir að hafa tryggt mér sæti á ÓL fyrr á árinu. Ég hafði því í raun engu að tapa og þetta var góð áskorun í undirbúningnum fyrir Ólympíuleikana. Góð leið til að sjá hvað við erum að gera rétt, hvern- ig tæknin er og þolið, hvernig á að haga sér á milli sunda og auðvitað að læra að hafa gaman.“ – kpt / sjá síðu 12 Góð fyrirheit fyrir Tókýó SJÁVARÚTVEGSMÁL „Við erum ekki bara að tala eins og mér finnst ríkis- stjórnin vera að gera, heldur erum við að koma með tillögur. Það getur vel verið að þær verði óþægilegar og það verði mikið uppnám hjá útgerð- inni,“ segir Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, formaður Viðreisnar um nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða. Frumvarpinu, sem flutt er af þing- f lokki Viðreisnar auk þingmanns Pírata og Samfylkingarinnar, er ætlað að auka fjárhagslegt gegnsæi sjávarútvegsfyrirtækja. Þar er gert ráð fyrir að öll félög sem eigi meira en eitt prósent af heildaraf lahlut- deildum verði skráð á markað. Einnig eru í frumvarpinu gerðar ráðstafanir til að tryggja dreift eignarhald stærstu fyrirtækjanna og skilgreining á tengdum aðilum skýrð. – sar / sjá síðu 4 Ekki bara tal heldur tillögur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.