Fréttablaðið - 09.12.2019, Side 10

Fréttablaðið - 09.12.2019, Side 10
Tryggðu þér áskrift Í KVÖLD KL. 19:15 KAUPTU STAKAN LEIK: Vardy eldist eins og gott vín Enski framherjinn Jamie Vardy leikur við hvurn sinn fingur þessa dagana og fer fyrir titilbaráttu Leicester. Markahrókurinn skoraði í áttunda leiknum í röð og virðist njóta þess að spila á ný eftir að Brendan Rodgers tók við liðinu í ársbyrjun. ENSKI BOLTINN Líkt og fyrri daginn hefur neikvæð umræða engin áhrif á Jamie Vardy. Enski framherjinn fer inn á völlinn til að hafa gaman, skora mörk og vinna leiki og er að blómstra undir stjórn Brendans Rodgers þrátt fyrir að vera að nálg- ast seinni ár ferilsins. Vardy skoraði í áttunda leiknum í röð um helgina þegar hann skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Leicester á Aston Villa og fer fyrir titilbaráttu félagsins sem er eina liðið sem virðist geta haldið í við Liverpool þessa dagana. Kallaði Vardy barnalegan Degi fyrir leik Leicester og Aston Villa var Claude Puel í viðtali við enska blaðið Daily Mail þar sem hann sagði að það væri erfitt að vinna með enska framherjanum. Vardy átti besta tímabil lífs síns undir stjórn Claudio Ranieri þegar Leicester vann meistaratitilinn en náði aldrei sömu hæðum undir stjórn Craigs Shakespeare né Puel. Eftir slök úrslit var sá franski látinn róa fyrr á þessu ári eftir 51 leik þar sem Vardy skoraði 23 mörk og virtist Puel kunna vel við Vardy þó að hann ætti erfitt með að ná til hans. „Jamie er góður maður en hann getur verið barnalegur. Hann þarf á stuðningi að halda og athygli. Sam- band okkar var erfitt þar sem ég var ekki enskur og átti fyrir vikið erfitt með að ræða við hann og tjá mig.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn á þessu tímabili sem fjölmiðlar vekja athygli á vandræðunum sem fylgja Vardy. Fyrr á þessu ári var barnshafandi eiginkona Vardys gagnrýnd fyrir að leka upplýsingum um Rooney-fjöl- skylduna til slúðurmiðla. Líkt og þegar gagnrýnin beind- ist að eiginkonu Vardys, Rebekah Vardy, náði Jamie að svara fyrir sig inni á vellinum. Hefur hann skorað í hverjum leik af þeim átta leikjum sem eru liðnir síðan Coleen Rooney, eiginkona Waynes Rooney, gagn- rýndi eiginkonu hans. Þá hefur Vardy skorað sextán mörkin sín í ellefu leikjum af sextán á tímabilinu. Er Vardy því kominn með gott for- skot á næstu menn í baráttunni um gullskóinn. Púrtvínið á hilluna Vardy hefur iðulega verið tengdur við partístand og viðurkenndi á sínum tíma að hann fengi sér iðulega púrtvín í Lucozade daginn fyrir leik. Þá átti hann það til að fá sér skittles- vodka og taka í vörina en hann hefur breytt lífsstíl sínum til hins betra og virðist vera í betra standi en nokkru sinni. Síðan Brendan Rodgers tók við liði Leicester hefur enginn fram- herji í Evrópu leikið betur en Vardy. Í 26 leikjum síðan Rodgers tók við Leicester fyrir rétt rúmum níu mán- uðum hefur Vardy skorað 25 mörk. Til samanburðar hefur Lionel Messi skorað 23 mörk á sama tíma. Fram undan eru tveir mikilvægir leikir fyrir Vardy og félaga í titilbar- áttu Leicester. Eftir heimaleik gegn Norwich um næstu helgi mæta Ref- irnir ríkjandi meisturunum í Man- chester City og Liverpool með fimm daga millibili þar sem Leicester getur hleypt spennu í titilbaráttuna á ný. Vardy hefur reynst Liverpool erf- iður í gegnum tíðina og skorað fimm mörk í fjórum heimaleikjum gegn Liverpool. Hann verður því lykillinn að því að Leicester nái að saxa á for- skot Liverpool. kristinnpall@frettabladid.is Fjögur ár eru liðin síðan Jamie Vardy bætti met Ruud van Nistelrooy og skoraði í ellefu leikjum í röð í deild- inni. 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT HETJA HELGARINNAR Jamie Vardy Enski framherjinn lék fyrstu tvö ár ferilsins í utandeildinni með Halifax og Fleetwood. Fleetwood fékk metfé fyrir leikmann úr utandeildinni þegar Leicester keypti hinn 25 ára gamla Vardy á eina milljón punda árið 2012. Síðan þá hefur Vardy spilað 191 leik fyrir Leicester í efstu deild og er kominn með 96 mörk á sex tímabilum. Þegar ég kom hingað til Leicester vissi ég að Jamie væri einn af bestu framherjum Evr- ópu og það þyrfti bara að fylla hann af sjálfstrausti til að sýna það á nýjan leik. Brendan Rodgers, knattspyrnu- stjóri Leicester Átta leikir í röð hjá hinum óstöðvandi Jamie Vardy. Gary Lineker, sparkspek- ingur í Match of the Day.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.