Fréttablaðið - 09.12.2019, Síða 12
Við höfum ekki lagt
jafn mikla áherslu á
50 metrana en þarna sá
maður að styrktaræfingarn-
ar og sprettæfingarnar
skiluðu sér.
DAGSKRÁ:
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarpar ráðstefnugesti
Lina al-Hathloul, baráttukona fyrir mannréttindum kvenna í Sádi Arabíu, flytur hátíðar ávarp.
Systir Linu, Loujain al-Hathloul, hefur setið í fangelsi síðan í maí 2018 fyrir að hafa haldið á
lofti kröfu um að konur í Sádí Arabíu fengju ökuréttindi
Pallborðsumræður:
Rita French, sendiherra mannréttinda, varafastafulltrúi Bretlands í mannréttindaráði SÞ, Genf
Kevin Whelan, Amnesty International, Genf
Petter Wille, fyrrverandi framkvæmdastjóri norsku Mannréttindastofnunarinnar
Harald Aspelund, fastafulltrúi Íslands og varaforseti mannréttindaráðs SÞ 2019
Auk þess bregðast eftirtaldir við umræðum í pallborði:
Bryndís Haraldsdóttir, Kári Hólmar Ragnarsson, Smári McCarthy,
Umræðustjórn: Sveinn H. Guðmarsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins
10. DESEMBER
MANNRÉTTINDI OG HLUTVERK SMÆRRI RÍKJA
Á ALÞJÓÐAVETTVANGI
ALÞJÓÐLEGI
MANNRÉTTINDADAGURINN
Á MORGUN, ÞRIÐJUDAGINN 10. DESEMBER
KL. 9.00-11.00 Í HÁTÍÐARSAL HÁSKÓLA ÍSLANDS
ÍSHOKKÍ Karlalandslið Íslands í
íshokkíi ferðast til Rúmeníu í þess
ari viku þar sem það tekur þátt í
öðru stigi undankeppninnar fyrir
ÓL 2022 sem fara fram í Peking.
Landsliðshópurinn var tilkynntur í
gær en með Íslandi í riðli eru heima
þjóðin Rúmenía, Ísrael og Kirgistan
og fer ein þjóð áfram á næsta stig
undankeppninnar.
Fyrirliði liðsins, Ingvar Jónsson,
var bjartsýnn fyrir komandi verk
efni þegar Fréttablaðið spurði út í
möguleika Íslands.
„Auðvitað fara menn bjartsýnir
til Rúmeníu en það eru margar
breytur sem hafa áhrif. Það getur
verið erfitt að finna upplýsingar um
sumar af þessum þjóðum þannig að
maður er ekki alveg með jafn mikið
af upplýsingum og við myndum
kjósa.“
Stutt er síðan Ísland mætti Ísrael
og þá mætti liðið Rúmeníu nýlega
en Kirgistan er stærra spurningar
merki fyrir landsliðið og leikmenn
þess. Fyrir vikið rennir íslenska
liðið nokkuð blint í sjóinn með
fyrsta leik gegn Kirgistan á fimmtu
daginn.
„Við vitum í raun mjög lítið um
liðið þeirra, við höfum aldrei mætt
þeim. Þeir eru nýliðar en lönd á
þessum slóðum eru mjög sterk í
íshokkíi,“ segir Ingvar um fyrsta
leikinn.
„Gestgjafarnir í Rúmeníu eiga að
vera sterkastir á blaði en eru búnir
að dala svolítið síðustu ár. Við
höfum áður náð óvæntum úrslitum
gegn þeim. Gegn Ísrael höfum við
skipst á sigrum undanfarin ár. Ísrael
er með sterkt lið en það er spurning
hvaða leikmenn þeir mæta með til
Rúmeníu.“
Aðspurður segir Ingvar að Ísland
gæti farið áfram á næsta stig en
þurfi þó að hafa lukkuna með sér
í liði.
„Möguleikinn er alveg til staðar
að við förum áfram en þessi mót
eru þannig að það þarf allt að ganga
upp. Meiðsli, dómgæsla og pökkur
inn þurfa að detta með okkur.“ – kpt
Möguleikinn er til staðar
Frá æfingu landsliðsins í Laugardal í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
SUND Sundkappinn Anton Sveinn
McKee er að vonum hæstánægður
eftir að hafa sett sjö Íslandsmet
á EM í 25 metra laug sem lauk í
Glasgow um helgina. Um leið setti
Anton Sveinn tvö Norðurlandamet
þrátt fyrir að hafa ekki komist á
verðlaunapall.
Anton Sveinn byrjaði mótið á
fimmtudaginn og þríbætti eigið
Íslandsmet í 50 metra bringusundi
sem dugði honum í 7. sætið á Evr
ópumótinu. Degi síðar tvíbætti
Anton eigið Íslandsmet í 200 metra
bringusundi þegar hann kom í
mark á 2:02,94 og var átta hund
raðshlutum úr sekúndu frá því að
næla sér í bronsverðlaun.
Anton var með næstbesta tíma
undanrásanna í 100 metra bringu
sundinu og gerði enn betur í úrslita
sundinu sem skilaði honum í sjötta
sætið þegar hann kom í mark á
56,79. Um leið setti Anton annað
Norðurlandamet sitt á mótinu.
Þá var Anton hluti af boðsunds
sveit Íslands í 4x50 fjórsundi sem
setti nýtt landsmet þegar Anton,
Kolbeinn Hrafnkelsson, Kristinn
Þórarinsson og Dadó Fenrir Jasm
inuson komu í mark á 1:36,97.
Það er því af nógu að taka hjá
Antoni sem segir erfitt að svara því
hvort árangurinn hafi farið fram úr
eigin væntingum fyrir mótið þegar
Fréttablaðið heyrir í honum eftir
lokasundið.
„Það var erfitt að setja sér einhver
markmið fyrir þetta mót. Í fyrsta
sinn á mínum ferli hef ég náð að
einbeita mér 100 prósent að sund
ferlinum í ár í staðinn fyrir að vera
í skóla eða í vinnu sem hefur tekið
helminginn af tíma mínum og orku.
Þegar ég var að setja mér markmið
fyrir þetta mót með Hafrúnu Krist
jánsdóttur, íþróttasálfræðingi ÍSÍ,
sem hefur reynst mér of boðslega
vel komumst við að því að það væri
erfitt að setja sér eitthvert markmið
út frá fyrri afrekum. Aðstæðurnar
voru allt aðrar. Bæði líkamlega og
andlega var ég búinn að ná að ein
beita mér betur og ná góðri endur
heimt á milli æfinga í aðdraganda
mótsins.“
Anton var búinn að tryggja sér
þátttökurétt á ÓL og var Evrópu
mótið að hans sögn, góð leið til að
sjá hvar hann stendur.
„Pressan var minni í aðdraganda
mótsins eftir að hafa tryggt mér
sæti á ÓL fyrr á árinu. Ég hafði því í
raun engu að tapa og þetta var góð
áskorun í undirbúningnum fyrir
Ólympíuleikana. Góð leið til að sjá
hvað við erum að gera rétt, hvernig
tæknin er og þolið, hvernig á að haga
sér á milli sunda og auðvitað að læra
að hafa gaman. Ég kom inn í þetta
mót með frábæru liði og það small
allt saman,“ segir Anton sem fer
fögrum orðum um íslensku sveitina
sem tók þátt í Evrópumótinu þetta
árið.
„Liðsandinn var frábær og aðrir
í hópnum stóðu sig vel. Það skiptir
miklu máli á stórmótum að hafa
gaman, maður er búinn að æfa eins
og skepna en ef þú einblínir á að hafa
gaman líka nærðu yfirleitt betri
árangri. Maður getur ekki breytt
neinu líkamlega á síðustu stundu.
Það má ekki gleymast að njóta og
hafa gaman.“
Aðspurður út í árangurinn í 50
metra sundi sem hefur ekki verið
sterkasta grein hans segir Anton
hann hafa komið á óvart.
„Það var gaman að byrja mótið
af þessum krafti. Til þessa hefur 50
metra sundið verið mín lakasta grein
á pappírnum og það var jákvætt að
ná strax svona langt í fyrstu grein,“
segir Anton og heldur áfram:
„Við höfum ekki lagt jafn mikla
áherslu á 50 metrana en þarna sá
maður að styrktaræfingarnar og
sprettæfingarnar sem maður hefur
verið að vinna í voru að skila sér. Þá
höfum við verið að að læra betur á
hraðastjórnun og skipulagningu
fyrir sund, nota orkuna betur í stað
inn fyrir að sprengja sig of snemma.
Frekar að synda yfirvegað eins og ég
reyndi í öllum mínum úrslitasund
um og það hjálpaði mér gríðarlega.“
Fram undan er stutt frí hjá Ant
oni á Íslandi áður en hann heldur til
Bandaríkjanna þar sem Ólympíu
undirbúningurinn fer á fullt.
„Núna tekur við verðskuldað frí,
heimkoma til að hlaða batteríin áður
en ég fer til Bandaríkjanna í byrjun
næsta árs og held áfram með undir
búninginn fyrir Tókýo. Þarf að gefa
huganum og líkamanum smá hvíld
en svo fer allt af stað á ný á nýju ári,“
segir Anton að lokum
kristinnpall@frettabladid.is
Góð mælistika fyrir Ólympíuleikana
Sundkappinn Anton Sveinn McKee er að vonum ánægður eftir að hafa sett sjö Íslandsmet og tvö Norðurlandamet á EM í 25 metra
laug sem lauk í Glasgow um helgina. Hann segist vera ánægður með framfarirnar í aðdraganda Ólympíuleikanna næsta sumar.
Anton Sveinn var að vonum ánægður með framfarirnar í aðdraganda Ólympíuleikanna. NORDICPHOTOS/GETTY
9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð